Fjórtán góð ráð gegn krabbameinum Sigurdís Haraldsdóttir og Sigríður Gunnarsdóttir skrifa 5. mars 2026 09:32 Forvarnir gegn krabbameinum: Hvað er mikilvægt að vita? Mottumars, árlegt árvekniátak Krabbameinsfélags Íslands, hefur það markmið að fækka þeim sem greinast með krabbamein, fjölga þeim sem lifa og auka lífsgæði þeirra sem lifa eftir greiningu krabbameins. Krabbamein eru ein helsta dánarorsök í heiminum, en hægt er að koma í veg fyrir allt að 40% krabbameina með heilbrigðum lífsstíl. Alþjóðasamtök fyrir rannsóknir á krabbameinum (International Agency for Research on Cancer - IARC), sem heyrir undir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, hafa þróað svokallaðan Krabbameinsvegvísi Evrópu (European code against cancer). Þetta eru ítarlegar leiðbeiningar sem ætlað er að fræða almenning um hvernig hægt er að draga úr áhættu á krabbameinum. Einnig er nýnæmi í þessari útgáfu að sérstakar leiðbeiningar eru fyrir stjórnvöld, enda hlutverk þeirra og ábyrgð á að efla lýðheilsu ótvírætt. Þekking á þessum ráðleggingum gerir einstaklingum og samfélögum kleift að taka fyrirbyggjandi skref og stuðla að heilbrigðari lífsstíl. Hvað er Krabbameinsvegvísir Evrópu? Krabbameinsvegvísir Evrópu eru leiðbeiningar byggðar á gagnreyndri þekkingu sem miða að því að draga úr áhættunni á því að greinast með krabbamein. Hann kom fyrst út árið 1987 en kom nýverið út í 5. útgáfu. Í honum er lögð áhersla á að hægt er að draga úr líkunum á því að fá flest krabbamein með því að forðast þekkta áhættuþætti og tileinka sér heilbrigðar lífsstílsvenjur. Hann samanstendur af 14 mikilvægum skilaboðum sem snúa að hegðun einstaklinga, umhverfi og persónulegu vali til að minnka áhættuna á krabbameini en tekur einnig á mögulegum aðgerðum stjórnvalda til að draga úr samfélagslegri byrgði krabbameina. Áhrif reykinga Reykingar eru helsta orsök krabbameina á heimsvísu. Reykingatíðni á Íslandi er einhver sú lægsta í Evrópu en engu að síður myndi það skila sér í lækkaðri tíðni krabbameina á Íslandi að draga enn frekar úr beinum og óbeinum reykingum. Reykingar, hvort sem það er í formi reykinga á sígarettum eða vindlum og notkun reyklaus tóbaks eru sterkur áhættuþáttur margra tegunda krabbameina. Að hætta reykingum skilar miklum ávinningi með lækkun á áhættu, jafnvel eftir margra ára reykingar. Samfélagslegar aðgerðir og stuðningur gegna mikilvægu hlutverki eins og sannast best á árangri Íslendinga í tóbaksvörnum en herða þarf róðurinn gegn útbreiðslu annarra nikótínvara s.s. nikótínpúðum sem eru mjög ávanabindandi og geta haft krabbameinsvaldandi áhrif á slímhúðir í munni. Félag norrænna krabbameinsskránna benti nýverið á mikilvægi samræmdrar löggjafar gegn tóbaksvörum í bréfi til Evrópusambandsins. Áhrif áfengis Áfengi er annar mikilvægur áhættuþáttur. Áfengi eykur áhættu á mörgum krabbameinum eins og í munnholi, koki, vélinda, lifur, ristli og brjóstum. Ráðlagt er að takmarka neyslu áfengis eða sleppa því alveg. Jafnvel það að minnka neyslu lítillega skilar ávinningi fyrir heilsu. Mikilvægt er að takmarka aðgengi að áfengi eins og gert hefur verið með einkasölu ríkisins hér á landi og banna auglýsingar. Áhrif líkamsþyngdar og hreyfingar Offita er áhættuþáttur fyrir margar tegundir krabbameina, meðal annars brjósta-, ristil- og nýrnakrabbamein. Hreyfingarleysi er líka sjálfstæður áhættuþáttur. Það að ná og viðhalda kjörþyngd með fjölbreyttu matarræði og reglulegri hreyfingu getur dregið verulega úr áhættu á því að fá krabbamein. Fullorðnir einstaklingar eru hvattir til að hreyfa sig í að minnsta kosti 150 mínútur á viku til dæmis með því að ganga, hjóla eða synda. Matarræði Næringarrík fæða í samræmi við ráðleggingar Embættis landlæknis þar sem áhersla er á neyslu grænmetis, ávaxta, heilkorns og magurra próteingjafa er verndandi gagnvart því að fá krabbamein. Mælt er með því að takmarka neyslu á unnum matvælum, rauðu kjöti og fæðutegundum sem innihalda mikið magn sykurs og forðast alveg unna kjötvöru. Hollt matarræði stuðlar að almennri heilsu og styrkir ónæmiskerfið. Sólarvarnir Útfjólubláir geislar frá sólinni og ljósabekkjum eru krabbameinsvaldandi. Mælt er með því að nota sólarvörn og hlífðarfatnað og leita í skugga þegar sólin er sterkust og sleppa því alveg að nota ljósabekki til að minnka áhættu á krabbameini. Bólusetningar og skimun Sum krabbamein er hægt að fyrirbyggja með bólusetningum og snemmgreiningu. HPV-bóluefnið verndar gegn leghálskrabbameini og öðrum HPV-tengdum krabbameinum. Bólusetning gegn lifrarbólgu B verndar gegn lifrarkrabbameini. Mælt er með því að mæta regluleg í skimun í samræmi við ráðleggingar. Á Íslandi er skimað fyrir brjósta-, legháls- og ristilkrabbameini auk þess sem sérstakar skimanir eru í boði fyrir fólk í ákveðnum áhættuhópum. Skimun stuðlar að því að greina krabbamein fyrr og eykur líkur á lækningu. Umhverfisþættir Það að minnka umhverfisógnir, svo sem loftmengun og hættuleg efni, gegnir einnig mikilvægu hlutverki í forvörnum. Stjórnvöld og samfélög geta tekið upp stefnu til að bæta loftgæði og draga úr útsetningu fyrir hættulegum efnum. Almenningur á Íslandi hefur að undanförnu orðið meðvitaðri um mengun og loftgæði og full ástæða til að leita leiða til að draga úr mengun og auka loftgæði. Áhrif hormóna Notkun kvenhormóna á breytingaskeiði getur verið gagnleg þeim konum sem upplifa mikil tíðahvarfaeinkenni. Samsett hormónameðferð með estrógeni og prógesteróni getur aukið áhættu á brjóstakrabbameini og því ætti að nota hana í eins skamman tíma og hægt er. Brjóstagjöf getur dregið úr áhættu á brjóstakrabbameini. Að lokum Krabbameinsvegvísir Evrópu undirstrikar að hægt er að fyrirbyggja mörg krabbamein. Með því að taka upplýstar lífsstílsákvarðanir—með því að takmarka áfengi, forðast tóbak, viðhalda kjörþyngd, borða hollt, vernda sig gegn UV-geislum og taka þátt í bólusetningum og skimunum—er öllum kleift að minnka sína eigin áhættu. Auk þess geta stjórnvöld auðveldað fólki að aðhyllast heilbrigðan lífsstíl, t.d. með því að takmarka aðgengi að tóbaki og áfengi og setja skatta á óholla vöru s.s. sykurskatt og lækka álögur á ávexti og grænmeti. Almenn vitund og samfélagsátak eru lykilatriði til að skapa heilbrigðari framtíð þar sem færri þurfa að takast á við krabbamein og afleiðingar þess. Sameiginlega getum við unnið að því að skapa heilbrigðara og krabbameinslaust samfélag. Í þessari viku stendur yfir fundur í samstarfsverkefni Evrópuþjóða (EUnetCCC) á Landspítala sem miðar að því að fjölga vottuðum krabbameinsmiðstöðvum í Evrópu og auka aðgengi íbúa að bestu mögulegu krabbameinsþjónustu. Liður í því verkefni er að auka forvarnir og draga þannig úr þeim fjölda sem greinist með krabbamein. Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir á Landspítala og prófessor í krabbameinslækningum. Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs-Krabbameinsskrár hjá Krabbameinsfélagi Íslands og prófessor í krabbameinshjúkrun. Heimildir: https://ncu.nu/wp-content/uploads/2026/02/NCU-Joint-letter-to-Comission-2026.pdf https://cancer-code-europe.iarc.who.int/ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Heilbrigðismál Mest lesið Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar