Leikskólastjóri og fyrrverandi fótboltamaður fram fyrir Miðflokkinn Eiður Þór Árnason skrifar 4. mars 2026 17:45 Efstu fimm frambjóðendur Miðflokksins í Kópavogi. Miðflokkurinn Kjördæmastjórn Miðflokksins í Kópavogi hefur staðfest hvaða frambjóðendur verða í efstu fimm sætunum á lista flokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Greint var frá því í síðustu viku að Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður flokksins, yrði oddviti í bæjarfélaginu.
Nú er ljóst að Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari, verður í öðru sæti listans og Beitir Ólafsson, byggingaverktaki og fyrrverandi fótboltamaður, í því þriðja. Þettta kemur fram í tilkynningu en næst fylgja Thelma Bergmann Árnadóttir atvinnurekandi í fjórða sæti og Trausti Örn Þórðarson lögfræðingur sem vermir fimmta sæti listans í Kópavogi. Miðflokkurinn hefur ekki átt sæti í bæjarstjórn Kópavogs á yfirstandandi kjörtímabili. Ákveðið var að stilla upp á lista Miðflokksins í sveitarfélaginu fyrir komandi kosningar. Oddvitinn Einar Jóhannes Guðnason er 32 ára og hefur starfað sem rekstrar- og sölustjóri til átta ára, hjá Eloomi, Maze og síðast 50skills, samkvæmt tilkynningu sem flokkurinn sendi út í síðustu viku. Hann er giftur og á eitt barn. Einar er varaþingmaður flokksins og sagður hafa staðið að því að endurvekja ungliðahreyfingu flokksins. Auk þess sitji hann í stjórn Kópavogsdeildar Miðflokksins, stjórn flokksins í Suðvesturkjördæmi og í nefnd um innra starf flokksins. Fréttin hefur verið uppfærð: Í upphaflegri útgáfu var ranglega staðhæft að Beitir væri fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta. Byggði það á upplýsingum útgefnum af Miðflokknum.
Miðflokkurinn Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður Miðflokksins, verður oddviti Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. 26. febrúar 2026 09:30 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira
Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður Miðflokksins, verður oddviti Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. 26. febrúar 2026 09:30