Skál! - Í boði lífeyrissjóðanna Þorsteinn Sæmundsson skrifar 4. mars 2026 13:15 Eftirlaunasjóðir íslenskra erfiðismanna eru fyrirferðarmiklir á hlutabréfamarkaði hér á landi. Sjóðirnir eiga m.a. mjög rífan meirihluta í smásölukeðjunum Högum og Festi sem skila metafkomu hvern ársfjórðunginn eftir annan í krafti fákeppni og þegjandi samkomulags um verðmyndun. Forstöðumenn keðjanna hafa mætt í viðtöl undanfarandi glaðbeittir yfir góðum árangri sem von er. Í máli forstöðumannanna hefur komið fram að hækkun vöruverðs sé vegna hækkana birgja. Nú verða menn að tala skýrar. Stærstu birgjar Bónuss og Hagkaupa eru í eigu Haga sjálfra. Forstjóri Haga verður að nafngreina þá birgja sem hækkað hafa verð svo unnt sé að sniðganga vörur þeirra. Aðrir forstjórar stóru verslanakeðjanna verða að gera slíkt hið sama. Nýleg verðbólgumæling sýnir breiðari hækkun á matvörumarkaði en fólk hafði almennt gert sér grein fyrir. Þar er greinilega maðkur í mysunni og staða til leiðréttingar á okurverðinu. Forstjóri Festi hafði í nýlegu sjónvarpsviðtali áhyggjur af launaskriði í fyrirtækinu sem er að hennar áliti ein ástæða þess að ekki er hægt að selja vörur á hagstæðu verði. Forstjórinn nefndi eigin launakjör ekki í viðtalinu en laun hennar munu nú vera um sex milljónir á mánuði eftir að hafa hækkað um 70% á síðustu tveim árum. Forstjóri Haga nýtur sambærilegra kjara. Forstjóri Haga nefndi síðan einn vaxtarsprota fyrirtækisins til sögunnar í nýlegu viðtali en það er sprúttsala Haga sem stunduð er í besta falli á veikum lagalegum grunni. Margir hafa orðið til að gagnrýna sprúttsölu fyrirtækisins þ.á.m. fjármálaráðherra og forystumenn lífeyrissjóða sem eiga hlut í félaginu. Skiljanlegt er að forkólfar lífeyrissjóða hafi blendnar tilfinningar til sprúttsölu Hagkaupa þar sem aukin örorkubyrði vegna aukinnar áfengisdrykkju mun lenda að einhverju leyti á sjóðunum þegar tímar líða fram. Það er enda óverjandi að lífeyrissjóðir vilji gera sér ógæfu hluta umbjóðenda sinna að féþúfu. Engin breyting hefur þó orðið á sprúttsölu Hagkaupa enn. Svo enn er skál í boði lífeyrissjóðanna í Hagkaupum. Það virðist sem íslenskir lífeyrissjóðir hafi engar siðareglur vegna fyrirtækja sem sjóðirnir fjárfesta í. Sé svo þarf að vinda bráðan bug að leiðréttingu þar á. Auðvitað er það engin hemja að eftirlaunasjóðir erfiðismanna fjárfesti í fyrirtækjum sem misnota einokunaraðstöðu sína eins og stærstu fyrirtæki á neysluvörumarkaði gera hér. Verkalýðsrekendur sem skipa menn í stjórn keðjanna hljóta að vera stoltir yfir þeim launamun sem þeir skapa með því að samþykkja launakjör forstjóra stórverslananna. Þeir hljóta einnig að vera stoltir yfir því að erfiðisfólk skuli þurfa að mynda sín eigin eftirlaun með því að greiða okurverð fyrir nauðsynjar árum saman. En stoltastir hljóta þeir að vera með nýju sprúttsöluna sem þeir hafa komið á fót í trássi við lög. Skál í boðinu! Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Sæmundsson Netverslun með áfengi Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar