„Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. mars 2026 11:28 Örn Árnason lék Davíð Oddsson í tugum sketsa í bæði Spaugstofunni og Áramótaskaupinu frá níunda áratugnum og fram á Hrunárin. Sýn/Vísir/Vilhelm Enginn lék Davíð Oddsson jafnoft í gegnum tíðina og grínistinn Örn Árnason. Þeir þekktust lítið en voru málkunnugir og hittust nokkrum sinnum. Davíð vissi að það þýddi ekki að reiðast hirðfíflinu og hafði gaman af eftirhermum Arnar. Ein ráðlegging Davíðs til Arnar er sérstaklega eftirminnileg.
Einn áhrifamesti stjórnmálamaður Íslands, Davíð Oddsson, lést á sunnudaginn og hafa fjölmargir vinir, vandamenn, samferðamenn og pólitískir andstæðingar minnst hans. Fyrir utan þá sem þekktu Davíð persónulega var einn maður sem tengdist honum óvenjulegum böndum. Örn Árnason, grínisti og gamanleikari, lék Davíð um áratugaskeið, frá seinni hluta níunda áratugarins fram á fyrsta áratug þessarar aldar. Davíð og Davíð í heimildarþáttunum Þetta er bara spaug... stofan.Rúv Saga Spaugstofunnar var rekin í tíu þátta heimildaþáttaröðinni Þetta er bara spaug... stofan árið 2015 og var Davíð þá spurður út í skoðun hans á gamanþáttunum vinsælu. „Ég var sannfærður um að það myndi hjálpa svona fyrirferðarmiklum stjórnmálamanni að það væri lamið svolítið hressilega á honum vikulega í þætti eins og þessum og það gerðu þeir svo sannarlega,“ sagði Davíð um Spaugstofuna í þáttunum. „Ég var bara innst inni sannfærður um það, fyrir utan hvað þetta var skemmtilegt, að þetta væri bara gott fyrir mig, þó ég kæmi auðvitað oft asnalega út,“ sagði Davíð jafnframt. Sagðist hann viss um að grínið hefði gert að verkum að fólk þoldi hann lengur. „Hey, ert þú ekki skemmtilegi maðurinn í Spaugstofunni?“ „Ég þekkti hann nú ekki en við vorum málkunnugir. Okkur var ekkert illa við hvorn annan enda hafði ég ekkert upp á hann að klaga og hann ekkert upp á mig. Enda vissi hann sem var, sem fyrrverandi grínari, handritshöfundur og annað, að það þýddi lítið að vera að gera grín að hirðfíflinu,“ segir Örn um Davíð í samtali við fréttastofu. „Hann var ekkert ósáttur við þetta, allavega í mín eyru,“ segir Örn. „Hann var reyndar ekki alltaf sammála því hvernig hárkollan var. „Mér finnst ég ekki vera orðinn svona grár,“ sagði hann einu sinni.“ Davíð Oddsson á Alþingi árið 2003.Vísir/Vilhelm Davíð hefði tekið höggunum meðan aðrir Alþingismenn voru viðkvæmari. „Hann hafði húmor fyrir þessu og hafði skilning á því að verandi í stjórnarstöðu fengi hann á sig stjórnarandstöðu og yfirleitt er grín alltaf í stjórnarandstöðu,“ segir Örn. Davíð þakkaði Erni meira að segja sérstaklega fyrir eftirhermurnar í eitt skiptið. „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér því að yfirleitt þegar ég rekst á krakka segja þau gjarnan: Hey, ert þú ekki skemmtilegi maðurinn í Spaugstofunni?“ „Jú, jú,“ segi ég þannig ætli ég verði ekki að þakka þér fyrir það,“ hafi Davíð eitt sinn sagt við Örn. Fylgdust að í áratugi Davíð var borgarstjóri frá 1982 til 1991, forsætisráðherra frá 1991 til 2004, seðlabankastjóri frá 2005 til 2009 og ritstjóri Morgunblaðsins frá 2009 til dauðadags. Spaugstofan var sýnd frá 1989 til 2016 (með nokkrum pásum inn á milli) og Davíð var oftar en ekki tekinn fyrir. „Við fylgdumst að meðan hann var borgarstjóri, forsætisráðherra og í Seðlabankanum. En ég náði ekki að gera grín að honum sem ritstjóra, ég man allavega ekki til þess,“ segir Örn. Ætli þetta séu ekki tugir, ef ekki hundruðir, atriða? „Eflaust, þetta var hellingur af sketsum,“ segir Örn. „Svo náttúrulega lék ég hann í Skaupinu. Þar var lag sem var mörgum mikið í minni, Dabbi kóngur hét það, rapplag með texta eftir Hallgrím Helgason. „Hann er Dabbi kóngur og ég er vinur hans“.“ „Aldrei að svara þegar þú ert reiður“ Ein kynni Arnar af Davíð sitja þó sérstaklega í minni hans. „Ég var að skemmta í Perlunni fyrir margt löngu síðan, tugum ára og hann var ræðumaður kvöldsins. Svo sátum við eftir skemmtunina, almennt tal brostið á og við sátum afsíðis og vorum að spjalla. Ég spurði hann: „Hvað hefur þessi blessaða pólitík kennt þér? Geturðu dregið einhvern lærdóm af þessu öllu?“.“ Davíð hafi hugsað sig aðeins um og sagt svo: „Aldrei að svara þegar þú ert reiður.“ „Hávaði leysir engan vanda og kannski segirðu eitthvað sem þú hefðir betur látið ósagt. Ég held að hann hafi tekið þann pólinn, er þetta svaravert eða ekki? Mér finnst þetta góð lexía,“ segir Örn. „Þetta er gangur lífsins en 78 ár eru engin ósköp. Það er skarð fyrir skildi og nú getur maður ekki hermt eftir honum.“
Andlát Davíðs Oddssonar Ríkisútvarpið Sýn Grín og gaman Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Vinur Davíðs Oddssonar og pólitískur samherji segir hann hafa á löngum og glæstum ferli verið harðan í horn að taka en á sama tíma verið hrókur alls fagnaðar. Davíð lést á heimili sínu í gær, 78 ára gamall. 2. mars 2026 21:02 Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra. 2. mars 2026 08:19 Davíðs minnst á Alþingi Alþingismenn minntust Davíðs Oddsonar við upphaf þingfundar dagsins, með því að rísa úr sætum að loknum minningarorðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis. 2. mars 2026 15:18 Mest lesið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið Sjá meira
Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Vinur Davíðs Oddssonar og pólitískur samherji segir hann hafa á löngum og glæstum ferli verið harðan í horn að taka en á sama tíma verið hrókur alls fagnaðar. Davíð lést á heimili sínu í gær, 78 ára gamall. 2. mars 2026 21:02
Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra. 2. mars 2026 08:19
Davíðs minnst á Alþingi Alþingismenn minntust Davíðs Oddsonar við upphaf þingfundar dagsins, með því að rísa úr sætum að loknum minningarorðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis. 2. mars 2026 15:18