Andlát Davíðs Oddssonar

Fréttamynd

Arf­leifð Davíðs

Það má flokkast undir hótfyndni að leiðir okkar Davíðs Oddssonar lágu óvænt saman – allt út af tengslum Íslands við Evrópu. Ég þekkti hann bara af afspurn. Bryndís talaði um listræn tilþrif í Bubba kóngi á Herranótt MR. Sjálfur hafði ég lúmskt gaman af gráglettni þeirra Matthildunga. Sumsé: Maðurinn var sagður skjótur til ákvarðana og að hann hefði húmorinn í lagi.

Skoðun
Fréttamynd

Kvöddu Davíð hinsta sinni

Forsetar, ráðherrar, Sjálfstæðismenn og samferðafólk Davíðs Oddsonar úr ýmsum áttum streymdu í Hallgrímskirkju í hádeginu til að votta honum virðingu sína. Forsætisráðherrann fyrrverandi var kvaddur með opinberri útför í Hallgrímskirkju. Ljósmyndari Vísis myndaði athöfnina.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Út­för Davíðs Odds­sonar

Davíð Oddsson, fyrrverandi borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og ritstjóri verður jarðsunginn í dag klukkan 13. Útförinni verður streymt á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs

Kattavinafélag Íslands minnist Davíðs Oddssonar með hlýhug og þökkum í minningarorðum. Félagið hafi mætt miklum skilningi í borgarstjórnartíð Davíð, fengið góðar undirtektir hjá honum og þann fjárstyrk sem það vantaði til að ljúka við fyrsta áfanga í byggingu Kattholts.

Lífið
Fréttamynd

„Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“

Enginn lék Davíð Oddsson jafnoft í gegnum tíðina og grínistinn Örn Árnason. Þeir þekktust lítið en voru málkunnugir og hittust nokkrum sinnum. Davíð vissi að það þýddi ekki að reiðast hirðfíflinu og hafði gaman af eftirhermum Arnar. Ein ráðlegging Davíðs til Arnar er sérstaklega eftirminnileg.

Lífið
Fréttamynd

Davíðs minnst á Al­þingi

Alþingismenn minntust Davíðs Oddsonar við upphaf þingfundar dagsins, með því að rísa úr sætum að loknum minningarorðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Minnis­stæð heim­sókn til Davíðs fyrir jól

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að með fráfalli Davíðs Oddssonar fyrrverandi formanns flokksins, borgarstjóra og forsætisráðherra sé fallinn frá einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu íslenska lýðveldisins. Hún segir boð á heimili Davíðs fyrir jól eina af þeim minningum sem sitji eftir.

Innlent
Fréttamynd

Minnast Davíðs: Hug­rakkur, hnyttinn og stór í sniðum

Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra.

Lífið
Fréttamynd

Davíð Odds­son er látinn

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri.

Innlent