„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. febrúar 2026 10:02 Ásmundur Atlason, markaðsstjóri Dominos, viðurkennir að það geti tekið nokkurn tíma fyrir konuna að koma honum og eldri syni þeirra fram úr á morgnana. Þegar það loksins tekst þarf síðan að drífa sig. Vísir/Vilhelm Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? Stóra breytan í því er hversu langan tíma það tekur konuna mína að vekja mig og eldri son okkar. Við feðgarnir erum algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst en ætli það sé ekki yfirleitt upp úr átta sem við játum okkur sigraða?“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Fylgifiskur morgunvenja okkar feðga er sá að það má ekki mikinn tíma missa þegar við loksins komumst af stað svo yfirleitt er það frekar hógvær morgunrútína þar sem passað er upp á að allir hafi í sig og á og svo rjúkum við út í daginn.“ Hvaða orð kemur fyrst upp í hugann þegar þú hugsar um fermingarmyndina af þér? „Nettur. Fermingarmyndin mín er úr myndatöku fyrir Gallerý 17. Þarna fékk ég fyrstu alvöru jakkafötin mín, ekki að ég sé mikill jakkafatakall en ég man að mér fannst ég vera mjög nettur.“ Ásmundur hefur nýtt sér flest til að halda utan um skipulagið en segir það ráð virka vel að taka frekar ákvörðun og framkvæma en að velta sér um of hvort maður hafi 110% rétt fyrir sér. Það einfaldi skipulagið mikið.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana? „Um þessar mundir snýst allt um nýfædda son okkar – ætli það sé ekki stærsta verkefnið þessa dagana en vinnulega séð er það klárlega nýtt útlit Domino‘s. Við erum í yfirhalningu á öllu okkar útliti, bæði hvað varðar verslanir okkar og útlit. Mjög spennandi tímar fram undan.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég reyni almennt að vera skipulagður og hef beitt flestum tiltækum ráðum til þess. Svo er ég líka lánsamur að samstarfsfólk mitt og samstarfsaðilar halda mér á tánum og innan marka. Annars hef ég líka haft í hávegum heilræði frá mínum fyrrum yfirmanni, Magnúsi Hafliðasyni, sem kenndi mér á sínum tíma að taka frekar ákvörðun og framkvæma heldur en að velta því fyrir sér um of hvort maður hafi 110% rétt fyrir sér öllum stundum. Það einfaldaði mitt skipulag mikið. Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég er að fara að sofa öðru hvoru megin við miðnætti.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00 Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00 Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00 „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin. 31. janúar 2026 09:16 Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, móðgaðist mjög þegar Viðskiptablaðið sagði hana hundleiðinlega og húmorslausa. Enda er hún að grínast allan daginn! Höllu finnst alræði A-fólksins í þjóðfélaginu nokkuð ýkt. 24. janúar 2026 10:01 Mest lesið Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Neytendur Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Uppsagnir fram undan og óttinn vex Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Sjá meira
Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00
Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00
Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00
„Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin. 31. janúar 2026 09:16
Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, móðgaðist mjög þegar Viðskiptablaðið sagði hana hundleiðinlega og húmorslausa. Enda er hún að grínast allan daginn! Höllu finnst alræði A-fólksins í þjóðfélaginu nokkuð ýkt. 24. janúar 2026 10:01