Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. febrúar 2026 07:48 Hillary svaraði spurningum nefndarinnar í gær en í dag er komið að Bill. Getty/David Dee Delgado Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsetafrú, var ómyrk í máli þegar hún mætti fyrir þingnefnd í gær, þar sem hún virðist hafa verið spurð bæði út í Jeffrey Epstein en einnig aðra alls óskylda hluti.
Clinton sagði fundinn „veiðiferð“ til að beina athyglinni frá Donald Trump og kallaði hann einnig „pólitískt leikverk“ og „móðgun við bandarísku þjóðina“. „Þið hafið neytt mig til að bera vitni, vitandi það að ég bý ekki yfir neinni vitneskju sem getur aðstoðað ykkur við rannsókn ykkar, eingöngu til að draga athyglina frá gjörðum Trump forseta og til að hylma yfir þær þrátt fyrir lögmæt áköll um svör,“ sagði Clinton þegar hún ávarpaði þingnefndina. Hún sagði fundinn hannaðan til að vernda Trump og Repúblikanaflokkinn, ekki til að komast að sannleikanum og ná fram réttlæti til handa þolendum Epstein. Bill Clinton mun mæta fyrir nefndina í dag en bæði höfðu óskað eftir því að sýnt yrði frá fundunum í beinni. Repúblikanar höfnuðu þeirri bón. Hlé var hins vegar gert á fundinum í gær eftir að áhrifavaldurinn Benny Johnson birti mynd frá fundinum á samfélagsmiðlum. Myndin var tekin af Lauren Boebert, einum nefndarmanna Repúblikanaflokksins. Clinton sagði eftir fundinn að hún hefði ítrekað þurft að svara því að hún þekkti ekki Jeffrey Epstein. Þá sagði hún spurningarnar stundum hafa farið langt út fyrir efnið, til að mynda þegar hún var spurð um fljúgandi furðuhluti (UFOs). Robert Garcia, þing- og nefndarmaður Demókrataflokksins, sagði eftir fundinn að Clinton hefði óskað eftir því að afrit af fundinum og vitnisburði hennar yrði birt opinberlega innan sólahrings. Garcia sagði einnig að hann hefði verið fylgjandi því að Bill Clinton yrði kallaður fyrir þingnefndina en hann krefðist þess einnig að Donald Trump myndi mæta og svara spurningum um samband sitt við Epstein.
Bandaríkin Donald Trump Mál Jeffrey Epstein Bill Clinton Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira