Ætla þessir öryrkjar að setja samfélagið á hausinn? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 21:30 Miklar umræður hafa skapast á Alþingi um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um að tengja lífeyri almannatrygginga (örorkulífeyri og ellilífeyri) við launavísitölu í stað launaþróunar eins og gert er í dag. Markmið frumvarpsins er að stöðva kjaragliðnun lífeyris almannatrygginga og launa. Umræðan hefur jafnframt verið hávær utan Alþingis. Í upplýstu samfélagi er eðlilegt að tekist sé á um opinber fjármál en það er óumdeilanlegt að umræðan hefur bæði verið hörð og niðurlægjandi fyrir hóp fólks sem reiðir sig á lífeyrisgreiðslur almannatrygginga. Orðræðan um örorkulífeyristaka Áður en lengra er haldið er rétt að árétta að það er ekki val að fatlast eða veikjast. Það er heldur engin skömm að fatlast eða veikjast. Umræðan hefur aftur á móti verið þess eðlis að um sé að ræða slíkan forréttindahóp að annað eins fyrirfinnist ekki í samfélaginu. Á það má benda að stór hópur örorkulífeyristaka á ekki húsnæði og er á almennum leigumarkaði, sem er einmitt í eigu þeirra sem ekki reiða sig á örorkulífeyri. Enn fremur má benda á að stór hópur örorkulífeyristaka býr við fátækt og sárafátækt. Þetta hafa rannsóknir ítrekað sýnt. Þessi hópur er foreldrar barna sem búa ekki við sömu lífsskilyrði og önnur börn, börn sem hafa ekki kost á að stunda tómstundir, íþróttir eða annað félagsstarf sem felur í sér hvers konar útlagðan kostnað. Nýjar rannsóknir hafa líka sýnt að sami hópur veigrar sér við að sækja læknisþjónustu og leysa út nauðsynleg lyf. Því hefur verið fleygt fram að meginþorri þessara örorkulífeyristaka hafi það betra en þau sem leggja til samfélagsins með vinnuframlagi og að „rangir hvatar“ felist í frumvarpinu. Hið sama virðist vera sagt um flest frumvörp sem hafa þann tilgang að bæta aðstæður örorkulífeyristaka. Þessir meintu „röngu hvatar“ fela í sér að nú muni holskefla af fólki sækja um örorku í stað þess að fara aftur á vinnumarkaðinn og setja þar með ríkið og samfélagið á hausinn. Staðreyndin er sú að áratugum saman hafa röngu hvatarnir ekki legið hjá öryrkjanum heldur kerfinu. Öryrkjum hefur verið gert ókleift að bæta hag sinn, enda mættu þeim linnulausar skerðingar og tekjutengingar.Svo virðist það gleymast að örorkulífeyristakar greiða skatt af sínum greiðslum, og virðisauka eins og aðrir. Þá má rifja upp að þann 1. september s.l. tóku gildi breytingar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga sem voru sérstaklega útfærðar með hvata fyrir fólk með skerta starfsgetu til að hefja eða endurhefja þátttöku á vinnumarkaði. Í umræðunni um ranga hvata og holskeflu af afætum kerfisins hefur þó gleymst að nefna hversu mjög svo strangir matskvarðarnir eru, sæki maður um örorkulífeyri. Síðustu ár hafa stjórnvöld lagt áherslu á að minnka nýgengi örorku. Nálarauga gamla örorkumatsins og nýs samþætts sérfræðimats er það smátt að hár kemst ekki í gegnum það. Stefnan hefur verið að hvetja fólk til að snúa aftur á vinnumarkað með endurhæfingu, jafnvel þótt úrræðin séu stundum ekki til og burtséð frá því hvort endurhæfing sé yfir höfuð möguleg í ákveðnum tilfellum. Örorkulífeyrir er stjórnarskrárvarinn réttur þess sem hefur ekki tök á að framfleyta sér og sínum með öðrum hætti. Réttur sem búið er að smætta og fjalla um sem einhverskonar ölmusu af verstu gerð. Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með þessari umræðu sem elur af sér tortryggni og viðheldur fordómum og jaðarsetningu í garð hópsins sem á allt sitt undir. Rýnt í frumvarpið Með frumvarpinu er lögð til breytinga á orðalagi 62. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007 sem er núna svohljóðandi: „Greiðslur almannatrygginga ... skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“ Tillaga frumvarpsins er að í stað orðsins „launaþróun“ komi „þróun launavísitölu, sbr. lög um launavísitölu“. Hækkanir lífeyris almannatryggingar samkvæmt frumvarpinu eiga að fylgja launavísitölu hlutlægt í stað þess stjórnvöld framkvæmi mat á launaþróun líkt og gert hefur verið. Með því að tengja lífeyrisgreiðslur almannatrygginga við launavísitölu er markmiðið að þær haldist betur í hendur við almenna þróun kjara á vinnumarkaði en nú er. Með þessari tengingu er betur tryggt að lífeyrisgreiðslurnar dragist ekki aftur úr öðrum hvað kaupmátt varðar. Verði frumvarpið að lögum er það til þess fallið að vernda kjör lífeyristaka, einkum þess hóps sem aðeins fær greiddan lífeyri almannatrygginga og hefur ekki aðrar tekjur, s.s. örorkulífeyri frá lífeyrissjóðum eða atvinnutekjur. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að á tímabilinu 2014-2024 hefur launavísitala hækkað að meðaltali um 1.7% á ári umfram hækkun almannatrygginga sem hefur miðast við launaþróun. Í þessu samhengi er áhugavert að skoða samanburð á ellilífeyri, örorkulífeyri og lægstu launum hjá Eflingu: Ellilífeyrir: 365.592 kr., örorkulífeyrir: 416.950 kr., lægstu laun samkvæmt samningi SA og Eflingar: 476.093 kr. Gangi frumvarpið eftir gætu útgjöld ríkissjóðs aukist um allt að 4-5 milljarða á ári. Þegar tekið hefur verið tillit til skatttekna og útsvars vegna þessarar hækkunar lífeyris verða raunáhrifin á bilinu 2.5 til 3.1 milljarða útgjaldaaukning fyrir ríkissjóð á ári. ÖBÍ telur markmið frumvarpsins um stöðvun kjaragliðnunar og vernd kjara þeirra hópa sem verst standa í samfélaginu vera mikilvægt og tímabært réttindamál. ÖBÍ fær ekki séð að 2,5-3,1 milljarða útgjaldaaukning geti á einhvern hátt talist verið ógn við stöðu ríkissjóðs. Það mál sem hér er til umræðu er mikilvægt og snertir hagsmuni tugþúsunda lífeyristaka. ÖBÍ leggur áherslu á að umræðan taki mið af réttum forsendum og að sama skapi er mikilvægt að upplýst og vönduð umræða eigi sér stað um það bæði á Alþingi og úti í samfélaginu. ÖBÍ skorar á Alþingi og stjórnvöld að vanda til verka í greiningum og upplýsingagjöf um málið og tryggja gagnsæi og samráð. Höfundur er formaður ÖBÍ réttindasamtaka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma Ýr Ingólfsdóttir Tenging almannatrygginga við launavísitölu Málefni fatlaðs fólks Eldri borgarar Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar