Veist þú hver heldur á skærunum eða litar á þér hárið? Margrét Ósk Brynjólfsdóttir og Sigríður Valdís Bergvinsdóttir skrifa 25. febrúar 2026 14:02 Flest okkar telja sjálfsagt að ganga að því sem vísu að þegar við setjumst í stólinn hjá hársnyrti að manneskjan sem heldur á skærunum eða meðhöndlar sterk efni nálægt húð okkar og augum sé löggiltur fagmaður með tilskilin réttindi. Því miður er raunin sú að sífellt oftar er boðið upp á þjónustu sem hvorki stenst lög né faglegar kröfur, og í slíkum tilfellum bera neytendur alla áhættuna. Löggilt iðngrein sem byggir á öryggi og fagmennsku Hársnyrtiiðn er löggilt iðngrein á Íslandi og það er engin tilviljun. Til að öðlast réttindi þarf að ljúka formlegu námi, sveinsprófi og meistararskóla vilji viðkomandi reka hárgreiðslustofu. Þessar kröfur eru ekki settar fram til að útiloka, heldur til að tryggja gæði, öryggi og neytendavernd. Áhyggjuefni er að í auknum mæli hefur afmarkað erlent nám, sem nær einungis til tiltekinna verkþátta á borð við rakstur eða hárblástur og stendur jafnvel aðeins yfir í 8–12 vikur, verið metið til jafns við heildstæða fagmenntun í löggiltri hársnyrtiiðn á Íslandi. Slík nálgun samræmist ekki þeirri víðtæku þekkingu sem íslenskt iðnnám byggir á, þar sem lögð er áhersla á anatómíu, efnafræði, húð- og hársjúkdóma, hreinlæti og neytendavernd. Ef gerðar eru minni kröfur við mat á erlendu námi en gilda um innlenda menntun er hætta á að grafið sé undan bæði faglegum gæðum greinarinnar og öryggi neytenda. Fagmennska er fjárfesting í öryggi Þegar neytandi velur löggiltan hársnyrti er hann ekki einungis að greiða fyrir þjónustu, heldur fyrir ábyrgð, tryggingar og starfsemi innan ramma sem verndar hann ef eitthvað fer úrskeiðis. Löggiltir meistarar bera faglega og lagalega ábyrgð á sinni starfsemi, starfa undir eftirliti og uppfylla strangar kröfur heilbrigðisyfirvalda. Ólöggilt starfsemi býður enga slíka vernd. Þar stendur neytandinn einn eftir ef tjón verður – án trygginga, án úrræða og án skýrrar ábyrgðar. Efnameðferðir sem fara úrskeiðis geta valdið alvarlegum bruna og í verstu tilvikum varanlegum skaða. Svartur markaður grefur undan fagmenntun Ólögleg starfsemi skekkir samkeppnisstöðuna gríðarlega. Fagfólk sem rekur löglega sínar stofur undir handleiðslu meistara greiðir sína skatta, tryggingar, lögbundin laun og uppfyllir strangar kröfur heilbrigðiseftirlits. Þegar réttindalausir aðilar starfa utan kerfisins geta þeir boðið lægra verð, en það verð er niðurgreitt af skattgreiðendum og á kostnað öryggis neytenda. Ef við leyfum þessari þróun að halda áfram án afskipta, erum við kerfisbundið að grafa undan hvata ungs fólks að sækja sér iðnmenntun. Enginn hvati verður til staðar til að leggja á sig áralangt nám og vinnustaðanám ef stjórnvöld aðhafast ekki og horfa fram hjá þeirri staðreynd að hver sem er getur opnað rekstur og kallað sig hársnyrti. Reglur án eftirlits eru einskis virði Hér verða stjórnvöld að líta í eigin barm. Hérlendis eru í gildi lög um handiðnað og neytendavernd, en lög gera ekki mikið gagn ef þeim er ekki framfylgt. Skortur á virku og sýnilegu eftirliti hefur skapað mikið svigrúm fyrir ólögmæta starfsemi sem fær að þrífast óáreitt. Félag hársnyrtimeistara og –sveina í Reykjavík og Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi (FHMS og FHM), aðildarfélög innan Samtaka iðnaðarins, hafa margsinnis kallað eftir aðgerðum, auk annarra iðngreina innan samtakanna. Það þarf skýrari verkaskiptingu milli stofnana, raunhæf viðurlög við brotum og eftirfylgni. Það er hlutverk stjórnvalda að tryggja að leikreglur markaðarins séu virtar. Val neytandans og ábyrgð ríkisins Umræddar brotalamir í kerfinu eiga ekki einungis við um hársnyrtiiðn heldur allar löggiltar handverksgreinar. Þetta snýst um virðingu fyrir menntun og öryggi neytenda. Við hvetjum neytendur til að vera vakandi, spyrja um réttindi og velja löggilta fagaðila. Með því styðjið þið við fagmennsku og eigið öryggi. Neytandinn á ekki að þurfa að fara í rannsóknarvinnu um hvort hársnyrtistofur séu með tilskilin réttindi. Lagalega er það ófrávíkjanleg krafa. Eftirlit er ekki valkvætt – það er forsenda þess að hér sé hægt að reka heilbrigðan, öruggan og umfram allt sanngjarnan markað. Margrét Ósk er formaður Félags hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík og Sigríður Valdís er formaður Félags hársnyrtimeistara á Norðurlandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun