Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Sunna Sæmundsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 11:52 Enn er óvíst hvar mesta snjókoman verður en fólk er beðið um að fylgjast vel með færð. vísir/Anton Brink Lögreglan og Vegagerðin biðja ökumenn á suðvestanverðu landinu að fylgjast vel með aðstæðum í dag en búist er við mikilli snjókomu og hríðarveðri. Björgunarsveitir þurftu að koma allnokkrum til bjargar í vetrarveðrinu sem gekk yfir á Austurland í gærkvöldi.
Lögreglan á Suðurnesjum biðlaði í gærkvöldi til fólks um að fara ekki af stað á vanbúnum bifreiðum, taka ekki óþarfa áhættu og fylgjast vel með færð. Búist er við hríðarveðri á suðvestanverðu landinu og snjókomubakki er nú að ganga inn á land, að sögn Daníels Þorlákssonar, veðurfræðings Vegagerðarinnar. „Inni í þessum bakka er ákveðinn kjarni sem er með mjög mikilli snjókomu og það verður blint þar en það er ekki gott að segja nákvæmlega hvar hann lendir. Nýjustu spár eru með hann yst á Reykjanesi og í kringum Akranes á Vesturlandi en það þarf lítið að bregða út af svo þetta sé austar og þá jafnvel á Hellisheiði eða jafnvel hér á höfuðborgarsvæðinu með erfiðri vetrarfærð,“ segir Daníel. Spáin mun skýrast eftir því sem líður á daginn. Þar sem fyrrnefndur kjarni lendir verður ákefðin mest á milli klukkan tvö og sex. Daníel bendir fólki á að fylgjast vel með spám um færð á síðu Vegagerðarinnar. „Ef það væri meiri vissa í spám að þá væri mögulega búið að gefa út veðurviðvörun, en þetta er svolítið erfitt að eiga við þetta þar sem maður veit ekki hvort það sé verið að tala um Reykjanesbrautina eða Selfoss. En fólk ætti bara að fylgjast með.,“ Vetrarveður gekk yfir Austurland í gærkvöldi og björgunarsveitarfólk sinnti fjölda verkefna þar sem margir voru á ferli. Ákveðið var að loka veginum yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi vegna veðurs og björgunarsveitir voru þá sendar til að koma þeim sem þar voru þegar staddir til aðstoðar. „Þar voru ansi margir á ferðinni og tvö ökutæki sem að höfðu lent utan vegar. Farþegarnir sem að í þeim voru voru teknir um borð í björgunarsveitarbíla og þeim var komið til byggða. Á sama tíma fór smárúta af á Fagradal rétt fyrir ofan Reyðarfjörð og við fórum í það verkefni að flytja þaðan fjórtán manns yfir til Egilsstaða,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Jón Þór bendir vegfarendum á að fylgjast vel með aðstæðum í dag. „Skoða hvernig færðin er, til dæmis inn á umferdin.is og ef þú ætlar að fara yfir fjallveg að vera sæmilega búinn með vel hlaðinn síma og jafnvel skóflu í bílnum. Og ekki hika við að óska eftir aðstoð ef að eitthvað bjátar á.“
Veður Færð á vegum Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira