Galopið ávísanahefti skattgreiðenda í Hafnarfirði Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar 23. febrúar 2026 12:02 Heimildin, DV og Vísir sögðu frá því fyrir helgi að Hafnarfjarðarbær hafi samið við mig um bætur vegna þeirrar ólöglegu ákvörðunar skólastjóra Hraunvallaskóla að afturkalla ráðningu mína í starf deildarstjóra tómstundamiðstöðvar skólans. Ákvörðunin um afturköllun ráðningar var tekin þremur vikum eftir ráðningu mína í starfið og daginn eftir að ég skrifaði grein um málefni ungmennahússins Hamarsins þar sem ég gagnrýndi meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar harðlega.Í fréttunum kemur fram að bæturnar til mín séu ekki einsdæmi. Tveir aðrir einstaklingar hafa fengið bætur frá Hafnarfjarðarbæ vegna uppsagna á yfirstandandi kjörtímabili meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Annars vegar í nóvember 2024 og hins vegar í maí 2025. Bæturnar mínar voru því þær þriðju sem greiddar hafa verið til fyrrum starfsmanna vegna ófaglegrar stjórnsýslu sveitarfélagsins á 14 mánaða tímabili. 16 manns til viðbótar hafa fengið starfslokasamninga á kjörtímabilinu. Mistök leiðrétt með annarra manna fé Um fleiri milljónir króna er að ræða sem koma úr sjóðum sveitarfélagsins - sameiginlegum sjóðum okkar skattgreiðenda í bænum. Þetta eru peningar sem hægt hefði verið að nýta í heimaþjónustu aldraðra, betri þjónustu við börn í skólunum okkar, samgönguúrbætur og aðra nauðsynlega þjónustu.Öll gerum við mistök og þau eru til þess að læra af þeim. En þegar sömu mistökin eru gerð ítrekað þá er það merki um að eitthvað mikið sé að í stjórnsýslunni. Forsenda þess að hægt sé að læra af mistökum er að þau séu viðurkennd. Það er ekki nóg að taka upp ávísanaheftið í hvert skipti og leysa málið með peningum úr sameiginlegum sjóðum okkar íbúa.Í mínu tilfelli hafa engin mistök verið viðurkennd. Stjórnsýsla bæjarins hefur enga tilraun gert til að velta við steinum og komast að því hver vildi koma í veg fyrir ráðningu mína í umrætt starf og hvers vegna. Á meðan slíkt uppgjör fer ekki fram er engin ástæða til að trúa því að mistökin endurtaki sig ekki.Þessa stjórnsýslu eigum við Hafnfirðingar ekki að sætta okkur við. Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar og varafulltrúi Samfylkingarinnar í fjölskylduráði Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Hafnarfjörður Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Heimildin, DV og Vísir sögðu frá því fyrir helgi að Hafnarfjarðarbær hafi samið við mig um bætur vegna þeirrar ólöglegu ákvörðunar skólastjóra Hraunvallaskóla að afturkalla ráðningu mína í starf deildarstjóra tómstundamiðstöðvar skólans. Ákvörðunin um afturköllun ráðningar var tekin þremur vikum eftir ráðningu mína í starfið og daginn eftir að ég skrifaði grein um málefni ungmennahússins Hamarsins þar sem ég gagnrýndi meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar harðlega.Í fréttunum kemur fram að bæturnar til mín séu ekki einsdæmi. Tveir aðrir einstaklingar hafa fengið bætur frá Hafnarfjarðarbæ vegna uppsagna á yfirstandandi kjörtímabili meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Annars vegar í nóvember 2024 og hins vegar í maí 2025. Bæturnar mínar voru því þær þriðju sem greiddar hafa verið til fyrrum starfsmanna vegna ófaglegrar stjórnsýslu sveitarfélagsins á 14 mánaða tímabili. 16 manns til viðbótar hafa fengið starfslokasamninga á kjörtímabilinu. Mistök leiðrétt með annarra manna fé Um fleiri milljónir króna er að ræða sem koma úr sjóðum sveitarfélagsins - sameiginlegum sjóðum okkar skattgreiðenda í bænum. Þetta eru peningar sem hægt hefði verið að nýta í heimaþjónustu aldraðra, betri þjónustu við börn í skólunum okkar, samgönguúrbætur og aðra nauðsynlega þjónustu.Öll gerum við mistök og þau eru til þess að læra af þeim. En þegar sömu mistökin eru gerð ítrekað þá er það merki um að eitthvað mikið sé að í stjórnsýslunni. Forsenda þess að hægt sé að læra af mistökum er að þau séu viðurkennd. Það er ekki nóg að taka upp ávísanaheftið í hvert skipti og leysa málið með peningum úr sameiginlegum sjóðum okkar íbúa.Í mínu tilfelli hafa engin mistök verið viðurkennd. Stjórnsýsla bæjarins hefur enga tilraun gert til að velta við steinum og komast að því hver vildi koma í veg fyrir ráðningu mína í umrætt starf og hvers vegna. Á meðan slíkt uppgjör fer ekki fram er engin ástæða til að trúa því að mistökin endurtaki sig ekki.Þessa stjórnsýslu eigum við Hafnfirðingar ekki að sætta okkur við. Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar og varafulltrúi Samfylkingarinnar í fjölskylduráði Hafnarfjarðar.
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar