Nýir tímar í landeldi á laxi – stefnumótandi tækifæri fyrir Ísland Steinþór Pálsson skrifar 20. febrúar 2026 13:30 Ísland býr yfir náttúrulegum skilyrðum til að verða leiðandi í heiminum í landeldi. Með endurnýjanlegri raforku, miklum jarðvarma, hreinu ferskvatni og sjó auk greiðra samgönguleiða til helstu markaða, hefur Ísland ákveðið samkeppnisforskot. Með réttri þróun getur landeldi á laxi orðið mikilvæg virðisaukandi stoð fyrir þjóðarbúskapinn, skapað tekjur í erlendum gjaldeyri, styrkt sveitarfélög og búið til verðmæt störf í ýmsum greinum. Fyrirsjáanleiki og svigrúm Á móti kemur að náttúrulegir kostir og jákvæðir staðhættir með tilliti til samgangna duga ekki einir og sér. Atvinnugreinin nær ekki að eflast nema regluverk, innviðir og stofnanaumhverfi styðji við hana. Landeldi er orkufrek atvinnugrein. Efla þarf flutnings- og dreifikerfi raforku svo hægt sé að koma til móts við ný framleiðslusvæði. Sömuleiðis nýtist jarðvarmi ekki sem öflugur kostur fyrir hitastýringu nema viðeigandi dreifikerfi sé til staðar. Án samræmdrar skipulagningar raforkuflutnings og hitaveitu verður vöxtur atvinnugreinarinnar takmarkaður. Samhliða þurfa samgönguinnviðir og hafnaraðstaða að byggjast upp til að mæta þeim mikla vexti í útflutningi sem atvinnugreinin getur skapað. Skilvirkt leyfisveitingaferli sem byggir á vísindum er jafn mikilvægt. Fjárfestar þurfa fyrirsjáanleika regluverks. Fjármagnsfrek mannvirki krefjast skýrleika til lengri tíma með tilliti til umhverfisstaðla, losunarmarka og rekstrarskilyrða. Með samræmingu löggjafar, skipulags innviða, orkustefnu og umhverfisstaðla minnkar áhættan og aðgengi að fjármagni batnar. Samtvinnum bestu tæknina og umhverfið Tæknin er til staðar. Hér á landi reiða landeldisverkefnin sig á kerfi þar sem vatn er síað og hreinsað, súrefnismettað og endurnýtt í stýrðu umhverfi. Þessi kerfi draga úr notkun ferskvatns, lágmarka útsetningu laxins fyrir sjúkdómum, viðhalda líffræðilegum stöðugleika og tryggja rekjanlega framleiðslu allt árið um kring. Umhverfisvernd byggð á vísindalegum gögnum er óumdeild. Meðhöndlun á seyru og losunarmörk næringarefna ættu að byggjast á traustum vísindum og umhverfis- og áhættumati, vernda vistkerfin en tryggja um leið sanngirni og fyrirsjáanleika. Afar mikilvægt er að landeldi verði gert kleift að viðhalda sterkri hringrásarnálgun. Seyra frá hreinum kerfum, laus við skaðleg efni, samanstendur aðallega af lífrænum efnum og næringarefnum. Rétt meðhöndlaða seyru er hægt að nota til framleiðslu áburðar og lífgass og til jarðvegsbóta. Samþætting við ylrækt og aðra lífiðnaðarstarfsemi getur skapað samtengd auðlindakerfi sem hámarka skilvirkni. Þær spurningar sem við stöndum frammi fyrir snúast um hvort meðhöndluð, hrein næringarefni úr fiskeldi gætu lagt sitthvað jákvætt að mörkum fyrir lífríkið með því að veita þeim út í haf, að undangengnu burðarþols og umhverfismati, sér í lagi þar sem sterkir straumar eru við strendur landsins. Slíkt gæti þýtt víðtækari tækifæri á leiðinni frá úrgangsstjórnun yfir í að bæta lífríkið. Ákall um samhæfðar aðgerðir Uppbygging á landeldi er ekki bara tækifæri fyrir atvinnulífið, heldur er hún stefnumótandi þróunarverkefni fyrir Ísland. Landeldi getur skapað fjölbreyttan útflutning, aukið fæðuöryggi og styrkt byggðaþróun. Árangurinn er þó háður samhæfðum aðgerðum. Stjórnvöld, sveitarfélög, veitufyrirtæki og aðrir verða að tryggja að raforkuflutningur, hitaveitur, skipulag, hafnir og umhverfisstjórnun, svo helstu þættir séu nefndir, séu efld og vísindamiðuð eftir því sem við á. Þegar þessi skilyrði eru til staðar getur einkafjármagn, nýsköpun og langtímaverðmætasköpun fylgt í kjölfarið. Fari saman regluverk, innviðir og stefnumótun stjórnvalda við náttúrulega kosti Íslands, getur landeldi orðið hornsteinn efnahagsframþróunar hér á landi svo um muni. Höfundur er forstjóri Thor Salmon. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landeldi Fiskeldi Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar