Sofnaði í aftursætinu á leið á Ólympíuleikana og komst aldrei alla leið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 06:33 Brasilíska skíðagöngukonan Bruna Moura náði að keppa á Vetrarólympíuleikunum fjórum árum eftir að hún lenti í svakalegu bílslysi á leið á leikana 2022. @brunamouraxcbt Þær eru margar sögurnar í kringum íþróttafólkið á Vetrarólympíuleikunum og mörg þeirra vinna stóra sigra þótt þau fái ekki verðlaun um hálsinn.
Brasilíska skíðagöngukonan Bruna Moura á eina af þessum sögum. Hún gafst ekki upp þótt það liti út fyrir að örlög hennar væru að keppa aldrei á Ólympíuleikunum. Þegar Bruna Moura var á leið á Vetrarólympíuleikana í Peking árið 2022 lenti hún í alvarlegu umferðarslysi og missti af leikunum. Fjórum árum síðar rættist Ólympíudraumurinn loksins. Átti að vera mitt tækifæri „Ég var glöð að sjá liðsfélögum mínum ganga vel, en það var biturt á sama tíma. Ég vissi jú að þetta hefði í raun átt að vera mitt tækifæri til að vera með á Ólympíuleikunum,“ sagði Bruna Moura þegar hún 2022 átti að vera árið þegar brasilíska skíðagöngukonan fengi loksins stóra draum sinn uppfylltan – að verða Ólympíufari. En bílferðin á leiðinni þangað endaði með harmleik. „Ég vissi ekki einu sinni sjálf hvernig við beygðum skyndilega og lentum í árekstri,“ sagði Moura við NRK. Hún hafði sofnað í aftursæti bíls sem átti að flytja hana til München. Áætlunin var að vera þar í nokkra daga áður en flogið yrði áfram til Peking. En þegar hún vaknaði hafði bíllinn lent í árekstri við flutningabíl. Bílstjórinn sem keyrði bílinn lést samstundis af sárum sínum. Hefur ekki hugmynd um hvað gerðist „Ég hef ekki hugmynd um hvað gerðist. Á sama tíma hugsaði ég að einhver hefði dáið vegna þess að ég vildi láta draum rætast,“ sagði Moura. Svo tók við endurhæfing og fjögur ný ár í leit að Ólympíudraumnum. „Leiðin hefur verið erfið. Ég myndi aldrei gera þetta aftur,“ sagði þessi 31 árs gamla kona. Hún lýsir slysinu sem stærstu líkamlegu áskorun lífs síns. Þurfti að takast á við svo margt „En líka þeirri erfiðustu andlega, því ég þurfti að takast á við svo margt á sama tíma. Að vissu leyti hafði ég líka samviskubit yfir bílstjóranum sem lést, þótt ég hafi ekki keyrt sjálf,“ sagði Moura. Moura segir að það hafi tekið langan tíma að skilja og sætta sig við að það hafi ekki verið henni að kenna að bílstjórinn lést. „Á keppnistímabilunum, þegar ég hef verið að elta þennan Ólympíudraum, hef ég haft hann og fjölskyldu hans í huga. Ég hef aldrei talað við fjölskyldu hans en ég ber þetta enn með mér. Þetta er eitthvað sem mun alltaf fylgja mér,“ sagði Moura. Þótt það hafi tekið lengri tíma en búist var við missti Moura hvorki vonina né trúna á að hún myndi keppa á Ólympíuleikunum 2026. Hugsaði um að nú væri hún Ólympíufari „Ég gat auðvitað ekki spáð fyrir um framtíðina eða verið viss um neitt. En ég vissi að ég væri tilbúin að berjast og ég vissi hversu mikið ég myndi berjast fyrir því að þetta myndi gerast. Það gaf mér sjálfstraust til að trúa því að ég yrði hér í dag,“ sagði Moura. Brasilíska konan hefur keppt bæði í sprettgöngu og 10 kílómetra göngu. Nú fékk hún loksins að vera með á Ólympíuleikunum. „Það var frábært. Ég var mjög glöð þegar ég byrjaði. Ég hugsaði að um leið og ég væri búin, væri ég Ólympíufari,“ sagði Moura.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Harmsaga Mudryk heldur áfram Enski boltinn Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Enski boltinn Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Enski boltinn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Íslenski boltinn Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Enski boltinn Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Golf Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Golf Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Fótbolti Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Fótbolti Fleiri fréttir Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Mikael beittur kynþáttaníði Frysta egg frítt fyrir landsliðskonur Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Er Mourinho búinn að missa það? Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Räikkönen skrifar undir hjá Red Bull Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Sjá meira