„Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Smári Jökull Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 22:01 Michael Claesson er yfirmaður sænska hersins. Vísir/Lýður Valberg Æðsti yfirmaður sænska hersins segir alltaf hættu á stigmögnun á Norður-Atlantshafi með þá utanríkismálastefnu sem Rússar reka. Æfingar flughersins hér á landi séu mikilvægar og Íslendingar sinni sínu hlutverki afar vel.
Flugsveit sænska flughersins mun sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi næstu vikurnar. Svíar leggja til sex stríðsþotur í verkefnið en auk þeirra hafa danskar og þýskar herþotur tekið þátt í hinu svokallaða Arctic Sentry verkefni Atlantshafsbandalagsins. Þá hófst opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlnads í morgun en hún er farin í kjölfar hótana Donald Trump Bandaríkjaforseta um mögulega yfirtöku Grænlands. Æðsti yfirmaður sænska hersins kom hingað til lands í gær og fundaði með skrifstofustjóra og og starfsmönnum varnarmálaskrifstofu Íslands. Hann segir málefni Norðurslóða sífellt fyrirferðarmeiri og afar mikilvægt að greina allar mögulegar sviðsmyndir. „Það er alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur. Þess vegna er mikilvægt innan bandalagsins og NATO að vera sýnileg á þessu svæði og með nálgun sem byggist á fælingu, þ.e. að fæla Rússa frá því að beita hervaldi í okkar nærumhverfi,“ sagði Michael Claesson yfirmaður sænska hersins. „Þið sinnið því mjög vel“ Þó Svíar séu nýlega gengnir í Nato segir hann Svíþjóð ekki nýtt land og hafi oft sinnt verkefnum utan heimalandsins. Mikilvægi samvinnu NATO-ríkjanna sé þó mikið og hið herlausa Ísland gegni stóru hlutverki. „Það gengur afar vel. Staðan í Norður-Atlantshafi er þannig að hér koma þjóðir með flugheri sína sem gerir það að verkumað við getum æft saman og það nýtist bandalaginu vel.“ Ísland býr ekki yfir neinum her, hvernig getum við hjálpað til? „Framlag Íslands sem gestgjafaríki er afar mikilvægt og þið sinnið því mjög vel.“ Skilaboðin fyrst og fremst til Rússlands Varnarmálaskrifstofa Íslands ásamt utanríkisráðuneytinu heldur utan um heimsókn sænska hersins hér á landi. „Við eigum regluleg og mjög góða samskipti við yfirmenn herafla NATO-ríkja og sérstaklega Norðurlanda. Það er mjög gott að taka á móti honum hér og hann sér þá hvernig sænski flugherinn er að vinna hér í tengslum við loftrýmisgæsluna,“ sagði Jónas Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu Íslands. Jónas Allansson er skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu Íslands.Vísir/Lýður Valberg Hann segir mikilvægt að senda skilaboð um fælingu og varnir fyrir Íslands. „Við erum fyrst og fremst að senda skilaboð til Rússlands. Það er mjög mikilvægt að það komi fram af hálfu bandalagsríkja að viðvera og fæling sé til staðar hér eins og annars staðar þó mesta áherslan sé á landamærin í austri.“ „Þó við séum herlaus þá erum við ekki varnarlaus“ NATO standi mjög sterkt hernaðarlega og mikilvægt sé a sýna getu þess á krefjandi tímum á Norðurslóðum. „Evrópa er að styrkja sig og er að leggja meiri framlög til varnarmála. Það er verið að auka liðsafla og heilt yfir stendur bandalagið mjög sterkt og sendir mjög skýr skilaboð um það.“ Hann segir bandamenn okkar meta framlag Íslands mikils. „Það þarf að hafa í huga að þó við séum herlaus þá erum við ekki varnarlaus. Við leggjum mikið af mörkum og erum að styðja okkar bandamenn sem hafa getu og liðsafla til að vinna á okkar svæði. Án þess stuðnings þá væri mjög erfitt að vinna þau verkefni sem bandalagið þarf að vinna á Norður-Atlantshafi. Það svæði skiptir gríðarlega miklu máli fyrir öryggi Norður-Ameríku og fyrir Evrópu og það skilja okkar bandamenn mjög vel og meta okkar framlag,“ sagði Jónas að lokum.
Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Svíþjóð Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira