Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 23:30 Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn með hundinn sinn Leo sem er nú allur. @lindseyvonn Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn lenti í árekstri í brunkeppninni í byrjun Ólympíuleikanna. Hún fótbrotnaði og hefur farið í fjórar aðgerðir síðan þá.
Vonn hefur birt nokkrar færslur á Instagram eftir áreksturinn og á miðvikudaginn deildi hún afar sorglegum fréttum. Það er eitt að lenda í slíkum meiðslum og missa af möguleika á að keppa um verðlaun á Ólympíuleikunum en lenda líka á sama tíma í miklum missi. Sennilega þeir erfiðustu á ævinni „Síðustu dagar hafa verið ótrúlega erfiðir, sennilega þeir erfiðustu á ævi minni. Ég er enn ekki búin að meðtaka að hann sé farinn“, skrifaði Vonn. Hún segir að hundurinn Leo hafi nýlega verið greindur með lungnakrabbamein. „Daginn sem ég lenti í árekstri, þá hrundi Leo líka. Hann hafði nýlega verið greindur með lungnakrabbamein (hann sigraðist á eitilfrumukrabbameini fyrir einu og hálfu ári síðan) en nú var hjartað að gefa sig. Hann var kvalinn og líkaminn gat ekki lengur fylgt sterku huganum,“ skrifar Vonn. Kvöddum stóra strákinn minn Leo drapst daginn eftir áreksturinn. Vonn segir að hundurinn hafi alltaf stutt hana þegar hún þurfti mest á því að halda. „Þegar ég lá í sjúkrarúminu daginn eftir slysið kvöddum við stóra strákinn minn. Ég hafði misst svo mikið sem skipti mig máli á svo stuttum tíma. Ég trúi því ekki. Strákurinn minn hefur verið með mér síðan ég sleit krossband í annað sinn, þegar ég þurfti mest á honum að halda,“ skrifaði Vonn. Hressti mig við þegar ég var niðurdregin „Hann hélt mér félagskap í sófanum þegar ég horfði á Ólympíuleikana í Sotsjí. Hann hressti mig við þegar ég var niðurdregin. Hann lá hjá mér og kúrði, lét mér alltaf finnast ég vera örugg og elskuð. Við höfum gengið í gegnum svo mikið saman á þrettán árum,“ skrifar Vonn. Hún er komin til Bandaríkjanna eftir sjúkraflug frá Ítalíu og fór þar í sína fimmtu aðgerð á fætinum. Verður alltaf með mér „Það mun taka mig smá tíma að vinna úr þessu tilfinningalega en ég veit að hann verður alltaf með mér. Ég veit að hann er þarna uppi með Lucy og Bear og mömmu minni og ömmu og afa og svo mörgum sem ég hef misst á síðustu árum. Og ég finn huggun í því að vita að hann er ekki lengur kvalinn,“ skrifar Vonn. View this post on Instagram A post shared by L I N D S E Y • V O N N (@lindseyvonn)
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira