Góðan daginn, hvernig hefur þú það? Stefán Hrafn Jónsson skrifar 19. febrúar 2026 09:02 Steingrímur Jónsson, bróðir minn, hefði orðið 56 ára í dag, 19. febrúar 2026, ef krabbameinið hefði ekki tekið hann frá okkur. Steini var rafmagnsverkfræðingur og vann við að tryggja öryggi og áreiðanleika raforku fyrir íbúa í dreifðum byggðum Norðurlands. Starf hans laut ekki að sviðsljósinu, heldur að því að halda samfélögum gangandi, að ljósin kviknuðu, að heimili héldust heit yfir veturinn og að fólk gæti búið, starfað og lifað í öryggi. Við tölum oft um framfarir í tengslum við tækni, ný kerfi og aukna afkastagetu. Framfarir í afhendingu rafmagns, hita, eflingu samgöngukerfa og fjarskipta skipta sköpum fyrir búsetu hér á landi. Þessir innviðir eru mikilvægir en eru ekki markmið í sjálfu sér heldur tæki sem gerir fólki kleift að lifa, tengjast og byggja upp samfélag. Í þessu fólst mikilvægi starfs Steina að tryggja þann efnislega grunn sem daglegt líf hvílir á. En eins og sagan kennir okkur felast dýpstu og varanlegustu framfarirnar ekki aðeins í kerfum og tækni, heldur í samskiptum fólks, í trausti, skilningi og hæfni okkar til að lifa saman í friði. Steini var friðarsinni og hélt mikið upp á tónlist Roger Waters og Pink Floyd, hverrar snilldar sem ég hef notið sífellt meira síðustu árin. Roger Waters hefur í áratugi notað tónlist sína og opinbera stöðu til að gagnrýna stríð, hervæðingu og valdníðslu. Persónuleg reynsla hans hefur líklega haft mikil áhrif þar á, þar sem faðir hans féll í seinni heimsstyrjöldinni. Reynslan af föðurmissi mótaði líklega viðhorf hans til stríðs og valdbeitingar. Í myndbandinu sem fylgir þessum skrifum syngur hann ásamt þeim Jess Wolfe og Holly Laessig lag sem John Prine samdi og gerði þekkt árið 1971. Lagið, sem mér og fleirum þykir afar gott, segir frá einmanaleika eldra fólks og hvernig það verður stundum afgangs í samfélaginu. Prine sem lést úr COVID þann 7. apríl 2020 mun hafa verið um tvítugt þegar hann samdi lagið og þykir hann þá hafa sýnt afar djúpan skilning og innsýn í reynslu og tilfinningar eldra fólks. Textabrotið úr laginu: „We lost Davy in the Korean War; And I still don't know what for; Don't matter anymore“ er ef til vill sígild áminning um að í hverju stríði syrgja foreldrar börn sín í tilgangsleysi sem engin rök, engin stefna og engin hernaðarleg útskýring getur bætt fyrir eða réttlætt. Þessi orð, samin fyrir meira en hálfri öld, enduróma enn í samtímanum þegar við hugsum til mannfalls í átökum nútímans, hvort sem það er í Súdan, í Úkraínu, í Ísrael, í Sýrlandi, í Íran, í Afganistan eða öðrum stríðshrjáðum löndum. Í þessari tengingu milli einstakrar sögu og sameiginlegrar reynslu okkar birtist kjarninn í því sem góð tónlist getur fært okkur: hún opnar glugga inn í líf og sorg annarra, hjálpar okkur að finna til með fólki sem við höfum aldrei hitt og dýpkar skilning okkar á því sem raunverulega skiptir máli. Kannski er það einmitt þetta sem við þurfum meira af í samtímanum. Ekki aðeins aukna áherslu á tækni og tæknigreinar, heldur dýpri skilning á mannlegri reynslu, hlusta meira á fjölbreytileikann, öðlast meiri samkennd og meiri hæfni til að setja okkur í spor annarra. Tæknin getur fært okkur nær hvert öðru í rými og í rafheimum, en tæknin tryggir ekki að við færumst nær hvert öðru sem manneskjur. Lög eins og þetta frá Prine minna okkur á að á bak við hverja látna manneskju, á bak við hverja tölu um fallinn hermenn er saga, tilfinningar og minningar hjá eftirlifendum. Fráfall hvers og eins skilur eftir sig tómarúm í lífi annarra og minningu sem engin tölfræði nær að fanga. Að banka upp á og spyrja „hvernig hefur þú það, kæra mamma, kæri bróðir, kæri vinur?“ er einföld athöfn sem sýnir samkennd, eitt af þeim grunngildum sem skipta sköpum í samfélagi okkar. Samfélagi sem byggir á trausti, tengslum og sameiginlegum markmiðum um mannvirðingu. Í félagsfræðinni hefur lengi verið bent á að slík hversdagsleg samskipti eru ekki léttvæg, heldur vefurinn sem heldur samfélögum saman. Traust myndast ekki aðeins í stórum yfirlýsingum eða formlegum kerfum, heldur í endurteknum, mannlegum samskiptum þar sem fólk upplifir að það sé sé viðurkennt og metið að verðleikum. Þannig tengsl mynda það sem kallað hefur verið félagsauður, ósýnilegur en afar raunverulegan grunnur að stöðugleika, samvinnu og velsæld. Stemming án þessara gilda er álíka gagnlaus og fullkomið skip án áhafnar, eða nákvæmt kort án áfangastaðar. Tæknin getur gefið okkur verkfærin, en hún segir okkur ekki til hvers við eigum að nota þau, né hvernig við eigum að lifa saman. Án trausts verður jafnvel fullkomnasta tækni brothætt. Það er þess vegna sem einföld athöfn, að banka upp á og spyrja „hvernig hefur þú það?“, hefur dýpri samfélagslega merkingu en virðist við fyrstu sýn. Í henni felst viðurkenning á tilvist hins, staðfesting á mannlegri reisn og styrking þess ósýnilega vefs sem heldur samfélaginu saman. Þar, í þessum smáu augnablikum, liggur hinn raunverulegi grunnur friðar, velsældar og varanlegra framfara. Mannfræðingurinn Margaret Mead benti á að eitt af elstu merkjum um samfélag væri gróið lærleggssbrot sem fast í fornleifum. Í náttúrunni lifir einstaklingur með slíkt brot sjaldnast af án hjálpar, en gróið bein sýnir að einhver annar hefur annast viðkomandi, verndað hann og gefið honum tíma til að ná bata. Þetta bendir til þess að samfélag verði til þegar fólk tekur ábyrgð hvert á öðru, þegar umhyggja og samkennd verða hluti af sameiginlegu lífi. Í þeim skilningi er raunverulegur grunnur samfélags ekki aðeins tæki, kerfi eða innviðir, heldur viljinn til að sjá hvert annað, styðja hvert annað og viðurkenna gagnkvæma tilvist og mikilvægi hvers og eins. Við eigum íslensk hugtök um öll þessi gildi sem skipta máli í íslensku samfélagi og þurfum því ekki að taka upp enskar skammstafanir til þess að ná til fólks. Þessi samfélagslegu gildi, eins og samstaða, umhyggja, náungakærleikur, ábyrgð hvert gagnvart öðru, virðing fyrir lífi og reynslu annarra, sanngirni og mannleg reisn, eru grundvöllur að friði, miklu frekar en aukin vopnavæðing. Rannsóknir í félagsfræði hafa ítrekað sýnt að samfélög sem einkennast af miklu trausti og sterkum félagslegum tengslum eru betur í stakk búin til að leysa ágreining með samræðu fremur en átökum, og að slík samfélög búa almennt við meiri velsæld og stöðugleika. Samningatækni, virðing og skilningur á gildum annarra þjóða eru meðal mikilvægustu undirstaðna þess að mannkynið þróist áfram í átt að meiri friði. Það krefst hæfni til að setja sig í spor annarra, skilja ólíka reynsluheima og viðurkenna að samfélög byggjast ekki aðeins á efnislegum innviðum, heldur einnig á siðferðilegum og félagslegum gildum. Það er á þessu sviði sem félags- og hugvísindin gegna lykilhlutverki: Að varpa ljósi á hvernig traust myndast, hvernig það rofnar og hvernig það er endurbyggt. Í þeirri þekkingu felst ein af mikilvægustu forsendum friðar og raunverulegra framfara, sem mælast ekki aðeins í efnislegum gæðum, heldur í velsæld, gagnkvæmum skilningi og getu okkar til að lifa saman sem samfélag friðar Höfundur er prófessor í félagsfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson Skoðun Sjálfbær landbúnaður er öryggismál Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson Skoðun Félagsleg heilsa ræsisrottnanna Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson Skoðun Fjallkonan Steinar Harðarson Skoðun Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Hver á að halda utan um hægri vænginn? Martha Árnadóttir Skoðun Ísland séð úr leikskóla Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson skrifar Skoðun Fáum samninginn á borðið Greta Lind Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hver á að halda utan um hægri vænginn? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Króna eða evra? Umræða sem á skilið meira en slagorð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Her- og gervimenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Húshjálp í skuldaborg - nýjasta froðan í Ráðhúsinu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Fjallkonan Steinar Harðarson skrifar Skoðun Ísland séð úr leikskóla Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Sjálfbær landbúnaður er öryggismál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Félagsleg heilsa ræsisrottnanna Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson Skoðun
Skoðun Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson skrifar
Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson Skoðun