Körfubolti

Valskonur upp í annað sætið og Tinda­stóll sótti sterkan sigur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Alyssa Cerino var stigahæst Valskvenna. 
Alyssa Cerino var stigahæst Valskvenna.  Vísir/Pawel

Valur kom sér upp í annað sæti Bónus deildar kvenna með 78-69 sigri gegn Stjörnunni í 18. umferð. Á sama tíma sótti Tindastóll mikilvægan 59-78 sigur gegn Ármanni.

Valskonur voru þarna að vinna fjórða leikinn af síðustu fimm og komust upp fyrir ríkjandi Íslandsmeistara Hauka, sem töpuðu fyrir Njarðvík í toppslag í kvöld.

Leikur Vals og Stjörnunnar var spennandi framan af, en í seinni hálfleik stigu heimakonur á Hlíðarenda á bensíngjöfina.

Stjörnustelpurnar voru samt alltaf í baksýnisspeglinum og veittu fína samkeppni, minnkuðu muninn alla leið niður í eitt stig undir lok leiks en komust ekki nær.

Alyssa Marie Cerino var stigahæst í leiknum með 26 stig, greip að auki 10 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

Leikur Ármanns og Tindastóls var öllu minna spennandi. Gestirnir frá Sauðárkróki unnu öruggan, og mikilvægan, tæplega tuttugu stiga sigur.

Sigur Tindastóls breikkar bilið enn frekar milli efstu átta og neðstu tveggja liða deildarinnar. Tindastóll er núna með 12 stig en Ármann og Hamar/Þór aðeins með 4 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×