Svartir sauðir eða stjórnunarvandi? Hilja Guðmundsóttir skrifar 17. febrúar 2026 16:30 Undanfarið hefur verið talað um starfsfólk sem „svarta sauði“ í tengslum við aukna veikindafjarveru á vinnustöðum. Að starfsfólk misnoti réttindi sín. Að þau taki veikindadaga af því þau megi það. Þegar umræðan er komin þangað erum við komin á villigötur. Veikindafjarvera er ekki siðferðisdómur yfir einstaklingum. Hún er merki. Og þegar við bregðumst við merkjum með tortryggni í stað forvitni lokum við samtalinu áður en það hefst. Allt of oft einkennist umræðan af eftirliti, tortryggni og grunsemdum. Að takast á við veikindafjarveru snýst ekki um að finna sökudólga. Hún snýst um að skilja mynstur. Hún snýst um að horfa á þá þætti innan vinnustaðar sem ýta undir fjarveru eða jafnvel viðveru starfsfólks. Að stilla veikindafjarveru upp sem andstæðu trausts er einföldun.Raunverulega spurningin er þessi: hvernig vinnuumhverfi erum við að skapa? Veikindafjarvera mótast af stjórnarháttum Stærsta hættan í þessari umræðu er að við gerum hana að siðferðisumræðu um einstaklinga. En veikindafjarvera verður ekki til í tómarúmi. Hún mótast af stjórnarháttum, menningu og aðstæðum sem stjórnendur bera ábyrgð á. Álag, óskýr hlutverk, veik forgangsröðun, skortur á endurgjöf og ótrygg samskipti eru ekki persónuleg vandamál starfsmanna. Þetta eru breytur sem stjórnendur hafa áhrif á. Það er eðlilegt að ræða kostnað. Veikindafjarvera kostar milljarða. Svo mikið hefur umræðan að undanförnu kennt okkur. En sá kostnaður lækkar ekki með harðari tón eða auknu eftirliti. Hann lækkar þegar stjórnendur taka ábyrgð á því umhverfi sem þeir skapa. Fjarvera er einkenni, ekki vandamálið sjálft Að takast á við veikindafjarveru má aldrei snúast um eftirlit með einstaklingum. Hún þarf að snúast um að skilja hvað er að gerast. Fjarvera er nefnilega sjaldnast vandamálið sjálft. Fjarvera segir okkur að eitthvað sé ekki í lagi. Hún er ekki orsökin, hún er afleiðingin. Óhóflegt álag, óskýr markmið, veik tengsl við stjórnanda, skortur á stuðningi eða sanngirni. Þetta eru ekki aukaatriði. Þetta eru þættir sem rannsóknir sýna að hafa bein áhrif á heilsu og viðveru. Þegar starfsmaður er veikur tvo daga í mánuði er spurningin ekki:„Er hann að misnota kerfið?“ Spurningin er:„Hvað í okkar stjórnunarháttum eða skipulagi gæti verið að kalla þetta fram?“ Það þýðir þó ekki að misnotkun eigi sér aldrei stað. Auðvitað geta einstaklingar farið of langt í þessu, eins og öðru. En einstaka misnotkun réttlætir ekki alhæfingar og tortryggni í garð heildarinnar. Ábyrgð og fagleg nálgun þarf að geta tekið á slíkum málum, skýrt og af sanngirni, án þess að byggja menningu á tortryggni og vantrausti sem smitar út frá sér og grefur undan trausti til allra. Gögnin sýna okkur leiðina Þegar fjarvera er skoðuð út frá gögnum sjáum við oft skýr tengsl við undirliggjandi þætti eins og mönnun og stjórnunarhætti. Starfsmannapúlsar sýna oft á tíðum dvínandi helgun og starfsánægju löngu áður en fjarverutölur hækka og starfsmannavelta eykst oft í kjölfar langvarandi álags. Merkin eru til staðar, við þurfum bara að læra að lesa í þau. Í dag höfum við aðgang að meiri gögnum en nokkru sinni fyrr. En gögn ein og sér breyta engu. Ef þau eru notuð sem sönnunargögn í eftirlitsskyni loka þau samtalinu. Ef þau eru hins vegar notuð sem viðvörunarljós, sem tilefni til að staldra við og spyrja betri spurninga, geta þau opnað á það mikilvæga samtal sem þarf að eiga sér stað og senda merki um það að okkur, stjórnendum, standi ekki á sama um starfsfólk okkar. Forvarnir í stað slökkvistarfs Það er mikill munur á vinnustað sem slekkur elda og vinnustað sem vinnur markvisst að forvörnum. Í stað þess að benda fingri á þau sem eru fjarverandi, ættum við að rýna í heildarmyndina. Ef við ætlum að draga úr veikindafjarveru dugir ekki að telja dagana eða herða reglurnar þegar tölurnar hækka. Við þurfum að skoða heildarmyndina: álagið, skipulagið, samskiptin og leiðtogann. Í stað þess að benda fingri á þau sem eru fjarverandi þurfum við að spyrja:Hvað erum við að skapa?Hvaða vinnuumhverfi erum við að byggja? Umræða um veikindafjarveru á ekki að snúast um eftirlit. Hún á að snúast um ábyrgð. Traust verður ekki til með tortryggni. Það verður til þegar fólk finnur að stjórnendum stendur raunverulega ekki á sama. Höfundur er ráðgjafi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði hjá Mental ráðgjöf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun