Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Stefán Árni Pálsson skrifar 18. febrúar 2026 13:51 Rakel og Adrián hafa komið sér einstaklega vel yfir ytra. Rakel Eyfjörð Tryggvadóttir var einstæð móðir á Skagaströnd þegar hún kynntist Spánverja sem var að vinna í fiskvinnslu á Djúpavogi. Síðan þá hefur líf hennar snúist á hvolf, þau eru nú flutt til Andalúsíu þar sem þau fjárfestu í stóru húsi við Costa Tropical í Andalúsíu og ákváðu að ganga í heilagt víkingahjónaband undir funheitri Spánarsólinni.
Rakel og Adrián Sánchez Garrido eiginmaður hennar keyptu þar 250 fermetra hús með sundlaug og fullt af veröndum á tæpar 40 milljónir króna. Lóa Pind Aldísardóttir og Hákon Pálsson myndatökumaður fylgdust með lífi Rakelar og Adriáns í aðdraganda brúðkaupsins í haust og fengu að skyggnast inn í líf íslensk-spænskra hjóna - sem völdu að setjast að við strendur Andalúsíu í stað Akureyrar þar sem þau bjuggu saman í fimm ár. Afraksturinn af heimsókninni má sjá í fimmta þætti af sjöundu þáttaröð Hvar er best að búa? sem er kominn inn á Sýn+ og fer seinna í línulega dagskrá. Í myndbandinu sem hér fylgir má sjá nokkur brot úr þættinum. Klippa: Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á 40 milljónir Lóa heimsækir í þáttaröðinni alls konar fólk, unga frumkvöðla sem ákváðu að setjast að nálægt alþjóðaflugvöllum til að auðvelda ferðalög milli heimsálfa, kjarnafjölskyldu úr Hafnarfirði sem hafnaði íslenska lánakerfinu og eiga nú skuldlaust hús í spænskri sveit, körfuboltafjölskyldu sem hefur verið í fjarbúð milli ótal landa og deilir nú tíma sínum milli Njarðvíkur og Póllands og hjónum á besta aldri sem höfðu kjark til að setjast að í alræmdri stórborg í Nígeríu umkringd vopnuðum öryggisvörðum. Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumenn eru Ívar Kristján Ívarsson og Hákon Pálsson, klippingu annaðist Magnús Ingvar Bjarnason. Framleitt af Lóu Production fyrir Sýn.
Hvar er best að búa? Spánn Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben og fyrstu árin voru erfið „Fyrstu árin voru rosalega erfið,“ segir Ynja Mist Aradóttir, 28 ára stofnandi og framkvæmdastjóri kökufyrirtækisins Bake My Day í Kaupmannahöfn. Hún var rétt liðlega tvítug, nýflutt til Kaupmannahafnar og ótalandi á dönsku þegar hún ákvað að stofna kökufyrirtæki. Upprunalega hugðist hún fara í nám í Kaupmannahöfn en þegar hún komst ekki inn í skólann datt henni í hug að stofna þetta fyrirtæki - sem henni tókst þegar mamma hennar ákvað að taka lán á Íslandi til að hjálpa henni með stofnkostnaðinn. 16. febrúar 2026 18:01 Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Fleiri fréttir Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Sjá meira
Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben og fyrstu árin voru erfið „Fyrstu árin voru rosalega erfið,“ segir Ynja Mist Aradóttir, 28 ára stofnandi og framkvæmdastjóri kökufyrirtækisins Bake My Day í Kaupmannahöfn. Hún var rétt liðlega tvítug, nýflutt til Kaupmannahafnar og ótalandi á dönsku þegar hún ákvað að stofna kökufyrirtæki. Upprunalega hugðist hún fara í nám í Kaupmannahöfn en þegar hún komst ekki inn í skólann datt henni í hug að stofna þetta fyrirtæki - sem henni tókst þegar mamma hennar ákvað að taka lán á Íslandi til að hjálpa henni með stofnkostnaðinn. 16. febrúar 2026 18:01