„Hann var stressaður og það var svo krúttlegt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 12:01 Kateryna Kotsar er að eiga mjög eftirminnilega Vetrarólympíuleika, bæði innan og utan keppni. Getty/IOC Fyrir flesta íþróttamenn væri það meira en nógu mikil spenna fyrir eitt kvöld að komast í fyrsta sinn í úrslit á Ólympíuleikum en kvöld úkraínsku skíðafimikonunnar Katerynu Kotsar var rétt að byrja.
Eftir að hafa komist í úrslit í stökki í skíðafimi skrifaði Kotsar „frelsi minningarinnar“ á hanskann sinn til að mótmæla banni sem samlandi hennar, Vladyslav Heraskevych, fékk fyrir að vera með myndir af föllnum íþróttamönnum á hjálminum sínum. Og Valentínusardagurinn sem hún mun aldrei gleyma tók aðra óvænta stefnu þegar kærasti hennar, Bohdan Fashtryha, fór á skeljarnar og bað hennar. Skil ekki alveg hvað gerðist í kvöld „Hann spurði á úkraínsku hvort ég vildi giftast honum, ekkert annað,“ sagði Kotsar. „Hann var stressaður og það var svo krúttlegt. Ég er enn þá spennt og skil ekki alveg hvað gerðist í kvöld, því þetta eru tveir virkilega stórir hlutir fyrir mig,“ sagði Kateryna Kotsar. Kotsar, sem lenti í ellefta sæti í undankeppninni, sýndi glitrandi demantshringinn sinn og viðurkenndi að hún hefði ekki búist við bónorðinu. Í dag fékk ég þá tilfinningu „Yfirleitt fæ ég á tilfinninguna að eitthvað frábært sé að fara að gerast,“ sagði hún. „Í dag fékk ég þá tilfinningu, en ég hélt að það væri vegna þess að komast í úrslit. Ég var með slæma tilfinningu í gær, mér leið illa. Í dag var stærsta markmiðið mitt að klára og gera hrein stökk, en þau voru nógu hrein til að komast í úrslit. Nú er ég full af orku,“ sagði Kotsar. Hin 25 ára gamla íþróttakona frá Kænugarði mun keppa á móti ríkjandi Ólympíumeistaranum Eileen Gu og tíu öðrum íþróttamönnum í úrslitum í stökki í dag en hún viðurkenndi að hún myndi hugsa til samlanda sinna heima fyrir. „Þú býrð án rafmagns, án hita, án möguleika á að þvo fötin þín og gera nokkuð einfalda hluti,“ sagði hún. „Yfirleitt förum við á flestar snjóæfingar okkar erlendis, til Austurríkis, Ítalíu og Sviss, en ég hef samt nægan tíma í Úkraínu til að fara í ræktina og á trampólínæfingar,“ sagði Kotsar. View this post on Instagram A post shared by Guardian Sport (@guardian_sport)
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Sjá meira