Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2026 20:32 María Þórisdóttir hefur spilað sinn síðasta landsleik. Hún á norska móður en íslenskan föður og gat því valið á milli þess að spila fyrir norska eða íslenska landsliðið. Samsett/@mariathorisdottir María Þórisdóttir hefur nú formlega kvatt norska fótboltalandsliðið eftir að hafa spilað 71 landsleik. Hún segir árin tíu með landsliðinu hafa verið frábær.
Eins og mörgum er kunnugt er María dóttir Þóris Hergeirssonar handboltaþjálfara og hefði hún því vel getað valið sér að spila frekar fyrir íslenska landsliðið. Þessi 32 ára miðvörður fæddist hins vegar og ólst upp í Noregi og hefur verið stoltur fulltrúi þjóðarinnar frá því í yngri landsliðum. Nú er hins vegar komið að leiðarlokum, eins og María tilkynnti sjálf á Instagram í dag. View this post on Instagram A post shared by 𝑴𝒂𝒓𝒊𝒂 𝑻𝒉𝒐𝒓𝒊𝒔𝒅𝒐𝒕𝒕𝒊𝒓 (@mariathorisdottir) „Eftir 10 frábær ár er kominn tími til að kveðja landsliðið❤️Ég hef fengið að spila fyrir Noreg 71 sinni og í hvert einasta skipti hef ég borið fánann á brjóstinu með stolti og heiðri. Landsliðið hefur þýtt óendanlega mikið fyrir mig og að fá að spila fyrir Noreg hefur verið það stærsta sem ég hef gert á ferlinum. Það hefur verið gríðarlegur hvati á þessu ferðalagi.Ég hef fengið að upplifa svo mikla gleði og alveg sérstakar stundir, en líka erfið tímabil sem hafa verið sársaukafull og markað sín spor. Það sem stendur þó upp úr er allt það frábæra fólk sem ég hef fengið að deila þessu ferðalagi með – bæði liðsfélagar og stuðningslið. Fólk sem hefur lagt sitt að mörkum, stutt við, skorað á og tekið þátt í að skapa minningar og vináttu fyrir lífstíð,“ skrifaði María. María hóf félagsliðaferil sinn með Klepp en spilaði síðan með Chelsea, Manchester United, Brighton, Marseille og Brann áður en hún sneri í vetur aftur heim í Klepp.
Fótbolti Norski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira