„Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2026 10:46 Helga Sigrún Sigurjónsdóttir er rúmföst eftir að hafa hjólað á rafhlaupahjól sem lá á hjólastíg í Laugardalnum. Hún kallar eftir breytingum á reglum varðandi rafhlaupahjól. Helga Sigrún Sigurjónsdóttir telur sig heppna að ekki hafi farið verr þegar hún lenti í slysi á föstudaginn. Þá var hún á ferðinni á hjóli í Laugardalnum og varð fyrir því óláni að hjóla á mikilli ferð á rafhlaupahjól sem lá á hjólastígnum. Helga er óbrotin en tiltölulega illa farin og hefur verið rúmföst frá því á föstudaginn.
Í samtali við fréttastofu segir Helga að slysið hafið orðið í Laugardalnum þar sem lýsing hafi verið ágæt en rafhlaupahjólið hafi legið þannig á stígnum að það verið samlitt göngustígnum. „Ég er með tvenn ljós á hjólinu mínu og það var greinilega ekkert endurskin á þessu,“ segir Helga. Þar að auki segir hún að mjög kalt hafi verið og að hún hafi hlíft andlitinu vegna vindkælingar. Það hafi ekki hjálpað til. Eftir að hún féll í götuna gat Helga staðið upp af sjálfsdáðum og var hún sótt af eiginmanni sínum. Hjólið er skemmt og komið í viðgerð. „Ég er heppin að hafa ekki brotnað. Ég finn til í hendinni og úlpan er rifin upp að olnboga,“ segir Helga og er hún viss um að hún hafi sett höndina fyrir sig þegar hún féll. Hún skrifaði um slysið á Facebook og segir fólk þar hafa sagt frá því að hafa lent í svipuðum slysum. Einn sagðist til að mynda hafa rotast við að hjóla á rafhlaupahjól og það líka í Laugardalnum. Helga segir ástandið í Laugardalnum sérstaklega slæmt, þar sem rafhlaupahjól liggi oft á víð og dreif og spyr af hverju fólk sé að skilja þau eftir á miðjum göngu- og hjólastígum. „Ég hef ekkert á móti þessum hjólum. Það er fínt að þetta sé notað en það þarf bara að tryggja öryggi. Bæði þeirra sem nota þau og hinna sem þurfa að umgangast þau þar sem þau eru.“ Hún nefnir að til dæmis væri hægt að beita sektum og setja upp sérstök svæði þar sem fólki verði gert að skilja hjólin eftir, svo þau séu ekki úti um allt. Slíkt hafi til að mynda verið gert við Landspítalann, þar sem myndað var sérstakt svæði og fengu notendur afslátt við að skilja hjólin eftir þar. Áður hafi hjólin verið skilin eftir víðs vegar á lóð Landspítalans en það hafi gerbreyst. „Ef fyrirtæki væru sektuð þegar kúnnar leggja hjólum þar sem þau valda hættu, þá myndu fyrirtækin gera eitthvað í þessu. Alveg eins og þegar við leggjum bílum ólöglega, þá gerum við það bara einu sinni þegar við erum sektuð,“ segir Helga. „Það ætti að vera auðvelt að koma í veg fyrir þetta að stórum hluta. Peningarnir, þeir tala.“ Hún tekur fram að þetta sé ekki eingöngu notendum að kenna. Einhverjir séu að hrekkja og henda hjólum niður á stíga. Nýjar reglur samþykktar í síðasta mánuði Umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar samþykkti í síðasta mánuði nýjar reglur um frágang rafhlaupahjóla í borginni, þar sem verið var að breyta reglum frá 2019. Með þessum breytingum átti að auka sýnileika hjólanna og að lagning þeirra á hjólastígum, göngugötum og öðrum stöðum þar sem þau teljast hindra aðra umferðsé óheimil, svo eitthvað sé nefnt. Reglurnar fela einnig í sér að sé hjólum lagt á stöðum þar sem það á að vera óheimilt, hafi fyrirtækin þrjár klukkustundir til að fjarlægja þau. Þessar breytingar byggja á vinnu sem hófst í fyrra. Deilt um bótaskyldu Eva Hauksdóttir, lögfræðingur, skrifaði grein á Vísi í september þar sem hún sagði frá skjólstæðingi sínum sem hefði hjólað á rafhlaupahjól á hjólastíg síðasta vor. Það hlaupahjól lá undir ljósastaur sem logaði ekki. Hann féll og kom fólk skömmu síðar að honum þar sem hann lá í blóði sínu, illa áttaður og hjálmur hans brotinn. Við þetta hlaut maðurinn, samkvæmt Evu, mikla áverka. Miltað sprakk, hann fékk skurði og mörg beinbrot. „Hann væri líklega ekki á meðal okkar ef hann hefði ekki fundist svo fljótt eftir byltuna,“ skrifaði Eva í greinina sem bar titilinn Hættulegustu tækin í umferðinni. Grein hennar fjallaði þó meira um ábyrgð á slysum sem þessum en slysið sjálft. Tryggingafélag rafhlaupahjólaleigunnar neitaði bótaskyldu þar sem notendur hafi staðfest að hafa lesið skilmála um hvar og hvernig ætti að leggja rafhlaupahjólunum og fyrirtækið beri ekki ábyrgð á því að ljósið hafi ekki logað í ljósastaurnum. Eva sagði að mögulega hefði verið hægt að láta reyna á bótaskyldu fyrir dómi en það hafi ekki verið hægt þar sem lögregluþjónar hafi eingöngu tekið eina mynd af vettvangi slyssins og hún hafi verið tekin úr svo mikilli fjarlægð að hún dugði ekki til að sanna frá hvaða leigu rafhlaupahjólið væri. Þar að auki hafi nafn rangrar rafhlaupahjólaleigu verið skráð í skýrslu lögreglunnar.
Samgöngur Samgönguslys Hjólreiðar Rafhlaupahjól Reykjavík Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira