Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 15. febrúar 2026 13:03 Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna á fundinum á Selfossi á fimmtudaginn. Magnús Hlynur Hreiðarsson Formaður Bændasamtakanna segir mikil tækifæri í skógrækt á Íslandi eins og nytjaskógrækt og skjólbeltarækt til að búa til skjól fyrir hús og búpening í sveitum landsins svo eitthvað sé nefnt.
Trausti Hjálmarsson, bóndi í Austurhlíð í Bláskógabyggð og formaður Bændasamtakanna var gestur í opnu húsi hjá eldri borgurum á Selfossi á fimmtudaginn þar sem hann kom víða við í erindi sínu og svaraði fjölmörgum spurningum. Trausta var tíðrætt um skógrækt og hvað væru miklir möguleikar þar þegar bændur og búalið eru annars vegar. „Það eru mikil tækifæri í skógrækt á Íslandi eins og skjólbeltarækt, hagaskógrækt og nytjaskógrækt, bara nefndu það. Allt er hægt að gera, sem tengist skógrækt til að auka landið, bæta búsetuskilyrði á jörðum, hækka hitastig á jörðum, rækta landið og búa til skjól fyrir hús og búpening. Þarna eiga Íslendingar alveg gríðarleg tækifæri og íslenskir bændur,” sagði Trausti. Magnús Jóhannes Magnússon, formaður Félags eldri borgara á Selfossi og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna.Magnús Hlynur Hreiðarsson Trausti segist oft heyra í umræðunni ógn af skógrækt á Íslandi en hann segist aldrei hafa orðið hræddur við tré. „Ef að ríkisstjórnin ætlar að ná árangri í því, sem kallað er loftlagsmál, sem ég vil bara kalla verðmætasköpun, þetta er ekkert annað en verðmætasköpun að planta trjám, þá þarf að vinna það með bændum vegna þess að bændur eiga landið enn þá, við þurfum að gera það á meðan bændur eiga enn þá landið,” sagði Trausti. Trausti hvetur bændur, sem eru ekki í skógrækt að fara í skógrækt. „Við þurfum að vera dálítið klókir núna íslenskir bændur í því að efla skógrækt og nýta þetta sem tækifæri og horfa ekki á þetta sem ógn,” sagði formaður Bændasamtakanna. Guðmundur Lárusson í Stekkum var einn af þeim, sem stóð upp á fundinum og hrósaði Trausta fyrir erindið og spurði hann spurninga. Guðmundur var um tíma formaður Landssambands kúabænda.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Skógrækt og landgræðsla Eldri borgarar Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira