Smokkarnir kláruðust í Ólympíuþorpinu á þremur dögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2026 16:30 Ólympíuhringarnir myndaðir úr fimm smokkum. Getty/Claire Mackintosh Það átti að vera nóg af smokkum í boði í Ólympíuþorpi keppenda í Cortina á Vetrarólympíuleikunum en þeir voru ekki lengi að klárast.
Í Ólympíuþorpinu í Cortina voru tíu þúsund ókeypis smokkar í boði fyrir íþróttafólkið. Þeir entust aðeins í þrjá daga. Það er ítalska dagblaðið La Stampa sem greinir frá smokkanotkuninni í Cortina. Blaðið ræddi við keppanda sem vildi ekki láta nafns síns getið. „Birgðirnar kláruðust á aðeins þremur dögum. Þeir lofuðu að það kæmi meira, en hver veit hvenær,“ segir viðkomandi. Úthlutun smokka í Ólympíuþorpum á sér langa hefð. Fyrir vetrarleikana í ár hefur Attilio Fontana, héraðsstjóri Lombardy, látið prenta merki héraðsins á smokkapakkningarnar. „Heilsan í fyrirrúmi: forvarnir og skynsemi,“ hljómar slagorðið. La Stampa skrifar jafnframt að þörfin fyrir smokka virðist vera meiri en talið var. Að sögn blaðsins var þrjú hundruð þúsund smokkum dreift til þátttakenda á Sumarólympíuleikunum í París, tveimur á dag. Ekki er gert ráð fyrir jafn miklu umfangi á Ítalíu. Nú fylgir það sögunni að fjöldi þátttakenda er líka mun meiri á Sumarólympíuleikunum en Vetrarólympíuleikunum. Íþróttafólkið í þorpunum úthugsar leiðir til að finna sér næði. Í Mílanó, til dæmis, þar sem heimsóknir í gistirými íþróttafólks frá öðrum löndum eru bannaðar, er slökunarherbergið mjög vinsælt. „Fusion-tónlist, dempuð lýsing, skór eru bannaðir; og umfram allt, tveir skilveggir til að fela sig á bak við fyrir einkaíhugun... eða íhugun fyrir tvo,“skrifaði blaðamaður La Stampa. „Maður verður að nota ímyndunaraflið,“ sagði fyrrnefndur íþróttamaður við La Stampa. Á meðan er tímanum aftur eytt í þorpunum við að spila PlayStation, á meðan beðið er eftir nýjum birgðum.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira