Eitrað bræðralag – hver tapar og hver græðir? Sigurður Sigurðsson skrifar 14. febrúar 2026 07:02 Verðbólga, verðtrygging og stýrivextir hafa myndað eitrað bræðralag í Íslensku efnahagslífi. Þetta er verðhækkunarmaskína sem malar stöðugt: verð hækkar, vextir hækka, verðtrygging hækkar, höfuðstólar verðtryggðra lána blása út og almenningur borgar. Á meðan heimilin finna fyrir sársaukanum og jafnvel hrynja eru aðrir sem hafa hagnast gríðarlega á sama kerfi. Við verðum að þora að ræða það upphátt en ekki fara alltaf í fýlu. Auðlindin sem skapaði miklar eignir handa fáum Á undanförnum árum hafa stærstu aðilar í sjávarútvegi hagnast gríðarlega á fiskveiðiauðlindinni sem hefur oft verið rakið í fréttum. Kvótakerfið hefur skapað eignir sem hafa margfaldast í verði meðal annars með verðtryggingu. Auðlind sem tilheyrir þjóðinni allri hefur orðið grunnur að mikilli einkasöfnun auðs á fárra höndum sem síðan erfist í ættir auðmannanna. Það er ekki ólöglegt. Það er ekki sjálfkrafa rangt. En þegar arðurinn af sameiginlegri auðlind safnast að stórum hluta þannig séð á fáar hendur verður eðlilegt að spyrja: fær þjóðin eðlilegan hlut? Hver verður aðgangur annarra afkomenda Íslenskra þjóðfélagsþegna að auðlindinni í framtíðinni? Ef aðeins afkomendur núverandi kvótahafa eignast einir allan aðgang að auðlindinni gegnum fjölskyldubönd - þá fá aðrir ekkert. Gjaldtaka af nýtingunni hefur lengi verið pólitískt viðkvæmt mál á Íslandi. Hún hefur oft verið mildari en efni stóðu til. Á sama tíma hefur verðmæti kvótans hækkað gríðarlega og styrkt stöðu þeirra fáu sem þegar voru inni í kerfinu en ríkissjóður blæðir þar sem það virðist halla á ríkissjóð og undirliggjandi verðbólguþrýstingur vex. Stjarnfræðilegur aukakostnaður við opinberar framkvæmdir Samhliða þessari Íslensku útgerðar-togstreytu hafa stórar opinberar framkvæmdir ítrekað farið langt fram úr kostnaðaráætlunum. Þegar verkefni fara úr böndunum skapast ekki aðeins tap fyrir ríkissjóð – heldur einnig gríðarlegar aukatekjur fyrir verktaka, ráðgjafa og fjármagnseigendur og aðra sem taka þátt í framkvæmdunum. Maður skilur ekki eftirlit og aðhaldsleysi ríkissjóðs í mörgum opinberum stórverkefnum. Það bara gusast stundum peningar út úr ríkissjóði stjórnlaust. Því meiri tafir - því meiri kostnaðaraukning og því meiri velta í kringum verkefnið. Ríkið bara tapar himinháum fjárhæðum - nánast blindandi eins og ekkert sé. Ríkissjóður blæðir og undirliggjandi verðbólguþrýstingur vex ennþá meira. Ríkissjóður og þjóðin situr eftir með reikninginn. Skuldir ríkisins hækka. Vaxtakostnaður eykst. Þegar hallinn á ríkissjóði verður viðvarandi eykst undirliggjandi verðbólguþrýstingur í hagkerfinu. Þá grípur Seðlabankinn til hærri stýrivaxta til að kæla eftirspurn. Þannig tengist opinbert stjórn- og agaleysi beint við auknar álögur og greiðslubyrði á heimilin og taprekstur vex en auður eignafólks og afkomenda þeirra snarhækkar. Verðtryggingin – tveir veruleikar Þriðja stoðin í þessu eitraða bræðralagi og fjármagnsleka ríkissjóðs er verðtryggingin. Fyrir venjulegt heimili þýðir hún að höfuðstóll lána hækkar þegar verðbólga eykst. Fólk borgar mánaðarlega – en skuldirnar geta samt vaxið - stundum umfram eignir. Óvissan étur upp skipulag og öryggi heimilanna því Seðlabankinn hækkar stýrivexti sem hækkar verðtryggingu á heimilunum þegar ríkið er í ruglinu. Fátækir verða fátækari. Fyrir þá sem eiga eignir er myndin önnur. Fjármunir og sjóðir eru oft verðtryggðir eða bundnir í raunávöxtun. Fasteignasöfn hafa rokið upp í verði á tímum verðbólgu. Leigutekjur hækka. Eignir hækka – bæði á pappír og í raun. Þetta er ekki samsæri. Þetta er kerfisleg niðurstaða og stefna stjórnvalda og fjármálakerfisins. Í verðbólguumhverfi hækka raunverulegar eignir – en skuldir þeirra sem eru að kaupa sig inn í kerfið geta hækkað umfram eignamyndun þannig að venjulegt fjölskyldufólk tapar oft eignum sínum - smátt og smátt. Þeir sem áttu eignir fyrir styrkjast. Þeir sem hafa skuldað, veikjast. Verðhækkunarmaskínan Þegar þetta er allt sett saman verður til verðhækkunarmaskína: 1) Ríkissjóður tapar og skuldsetur sig. 2) Verðbólga eykst. 3) Stýrivextir hækka. 4) Verðtryggð lán blása út. 5) Fasteignaverð hækkar. 6) Eignaeigendur styrkjast. 7) Heimilin bera þyngstu byrðina - og verða fátækari. Á meðan ungar fjölskyldur sjá drauminn um eigið húsnæði fjarlægjast hafa þeir sem sátu á kvóta, opinberum ríkis-verktakasamningum og stórum fasteignum séð eigið fé sitt vaxa stjarnfræðilega hratt. Þetta er hættuleg þróun. Ekki bara efnahagslega heldur samfélagslega. Ef almenningur upplifir að tap sé félagsvætt en gróði einkavæddur rofnar traustið. Og án trausts virkar hvorki peningastefna né ríkisfjármálastefna. Hvað þarf að gera? Lausnin er ekki að ráðast á atvinnulífið né refsa árangri. Lausnin er að leiðrétta hvata kerfisins. Í fyrsta lagi: Aga ríkisfjármálin. Kostnaðaráætlanir verða að standast og ábyrgð þarf að vera skýr. Þegar ábyrgðin brestur - hrynur traust ríkissjóðs. Ríkissjóður má ekki vera opinn ávísanareikningur sem ýtir undir verðbólgu. Í öðru lagi: Tryggja stöðuga og sanngjarna gjaldtöku af sameiginlegum auðlindum með fyrirsjáanlegri og faglegri stefnu í sátt við atvinnulífið. Í þriðja lagi: Draga markvisst úr vægi verðtryggingar í lánakerfinu. Hagkerfi þar sem skuldir heimila hækka sjálfkrafa með verðbólgu en launin óverðtryggð er ekki jafnvægiskerfi – það er spennukerfi. Og loks þarf pólitískt hugrekki til að viðurkenna að háir stýrivextir eru afleiðing. Orsökin liggur í stjórn ríkisfjármála og uppbyggingu kerfisins. Valið er okkar Við stöndum frammi fyrir skýru vali. Annað hvort látum við eitraða bræðralagið mala áfram – þar sem eignir hækka hraðar en laun fólksins í landinu og skuldir heimila þyngjast ár frá ári. Eða við endurstillum kerfið með ábyrgð, gagnsæi og sanngirni. Spurningin er einföld: Á efnahagskerfið fyrst og fremst að verja uppsafnaða auðsöfnun – eða að tryggja stöðugleika og jafnvægi fyrir heildina? Ef við svörum henni ekki núna og bregðumst við af alvöru mun hin miskunnarlausa verðhækkunarmaskína halda áfram að mala samfélagið niður í svaðið. Sýnishorn af því hefur verið í fréttunum undanfarið um ástandið á bráðadeild Landspítalans. Á sama tíma og hafsjór af peningum flæðir inn í opinbert hlutafélag: NLSH ohf - sem átti að byggja Nýjan Landspítala fréttist ekkert hvort sá spítali sé nokkuð að verða að veruleika. Bara alger þögn meðan fólk liggur fárveikt næstum í hundraða tali á gólfinu á bráðadeildinni. Veit ríkissjóður ekkert hvað varð um alla peningana sem hefur verið dælt inn í NLSH ohf á síðustu áratugum eða eru peningarnir mögulega bara týndir. Þetta er eitt dæmið um allt ruglið í kerfinu - peningar ríkisins tapast og streyma í meintar sjúkrahússframkvæmdir meðan sjúklingarnir liggja í hrúgu á bráðadeildinni þar sem enginn Nýr Landspítali er byggður fyrir alla peningana. Þeir mögulega gufuðu bara upp? Og reikningurinn lendir – enn og aftur – hjá almenningi - verðbólgan og verðtrygging hækka - vextirnir hækka og eitraða bræðralagið dafnar. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðunargreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson Skoðun Mygla í útveggjum nýbygginga Sigurður Sigurðsson Skoðun Menn sem hata konur Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson Skoðun Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Evrópusambandssinnar - það er bannað að plata! Birgir Finnson Skoðun „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Sjávarauðlindin í ESB Björn Leví Gunnarson Skoðun Skoðun Skoðun Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar Skoðun Veikt flutningskerfi er sóun á náttúruauðlindum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar Skoðun ESB-pakkinn er galopinn Bergþór Ólason skrifar Skoðun Opið bréf til umhverfisráðherra Ragnhildur Elín Skúladóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson skrifar Skoðun Börnin okkar – sameiginleg ábyrgð Hanna Borg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ísland í brennidepli: Lýðfræðilegar breytingar og nýtt jafnvægi á vinnumarkaði Ingvar Freyr Ingvarsson ,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Skilvirkir ferlar, betri reglur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson,Arndís Seinþórsdóttir skrifar Skoðun Hvað er að gerast í skapandi greinum? Erla Rún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson skrifar Skoðun Blómin í haganum og börnin í boxinu Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Samgönguáætlun og samkeppni í flutningum Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Samferða á föstunni Hjalti Jón Sverrisson, Árni Þór Þórsson,Guðný Hallgrímsdóttir,Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir,Kristín Pálsdóttir,Toshiki Toma skrifar Skoðun Evrópusambandssinnar - það er bannað að plata! Birgir Finnson skrifar Skoðun Erum við tilbúin í umbreytingu? Agnes Ósk Snorradóttir skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra vegna stöðu einhverfra Ármann Pálsson,Ragnheiður Ösp Sigurðardóttirp ,Sigurjón Már Svanbergsson,Halldóra Hafsteinsdóttir,Eyrún Halla Kristjánsdóttir,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Ekki ein tomma en hvar eru aðgerðirnar? Telma Árnadóttir skrifar Skoðun Getur tölva dæmt betur en maður? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Réttindi, réttlæti, aðgerðir: Hvers vegna jafnrétti kynjanna skilgreinir framtíð ESB Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hið nýja siðfár? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir skrifar Skoðun „Pólitíkin ræður“ Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Það sem koma skal? Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Flestir fjölmiðlar eru ríkisfjölmiðlar á Íslandi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir skrifar Sjá meira
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar
Skoðun Opið bréf til umhverfisráðherra Ragnhildur Elín Skúladóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar
Skoðun Ísland í brennidepli: Lýðfræðilegar breytingar og nýtt jafnvægi á vinnumarkaði Ingvar Freyr Ingvarsson ,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Skoðun Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson,Arndís Seinþórsdóttir skrifar
Skoðun Samferða á föstunni Hjalti Jón Sverrisson, Árni Þór Þórsson,Guðný Hallgrímsdóttir,Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir,Kristín Pálsdóttir,Toshiki Toma skrifar
Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra vegna stöðu einhverfra Ármann Pálsson,Ragnheiður Ösp Sigurðardóttirp ,Sigurjón Már Svanbergsson,Halldóra Hafsteinsdóttir,Eyrún Halla Kristjánsdóttir,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Réttindi, réttlæti, aðgerðir: Hvers vegna jafnrétti kynjanna skilgreinir framtíð ESB Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir skrifar
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun