Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Lovísa Arnardóttir skrifar 13. febrúar 2026 06:47 Á svæðinu er mikið líf fugla og sjávardýra. Vísir/Vilhelm Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti í fyrradag, með sex greiddum atkvæðum gegn einu, stækkun á friðlendi í Gróttu og Seltjarnar. Bæjarstjóri telur tillögu um friðlýsingu ganga of langt og segir afar skiptar skoðanir meðal íbúa. Unnið hefur verið að stækkun friðlendisins í um sex ár. Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í málinu og bæjarstjórinn greiddi einn atkvæði gegn tillögunni.
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, segist alltaf hafa lagt sig fram um að hlusta á bæjarbúa varðandi mál sem séu til umfjöllunar hjá bænum og í bæjarstjórn. „Það er ljóst að skiptar skoðanir eru á tillögu að friðlýsingu Seltjarnarness allrar og í samtölum mínum við bæjarbúa hef ég bæði heyrt raddir þeirra sem eru fylgjandi tillögunni en ekki síður þeirra fjölmörgu sem vilja halda óbreyttri friðlýsingu í kringum Gróttu,“ segir Þór í bókun í fundargerð bæjarstjórnar frá því í fyrradag. Hann segir það sína skoðun að tillaga um friðlýsingu Seltjarnar gangi of langt og sé ekki til hagsbóta fyrir bæinn og bæjarbúa. „… því greiði ég ekki atkvæði með tillögunni. Ég virði hins vegar að sjálfsögðu lýðræðislega afgreiðslu málsins í bæjarstjórn þótt ég sé ekki sammála niðurstöðunni,“ segir í bókun hans um málið. Samþykkt að setja í farveg í fyrra Fram kemur í fundargerð að bæjarstjórn hafi samþykkt á fundi þann 23. apríl í fyrra að tillaga starfshóps að nýjum friðlýsingarskilmálum Gróttu og Seltjarnarness yrði kynnt og málið sett í viðeigandi lögbundinn farveg í samræmi við lög um náttúruvernd nr. 60/2013. Í fundargerð kemur fram að tillagan hafi verið borin til samþykktar og hún samþykkt, eins og segir að ofan, með sex atkvæðum gegn einu, það er atkvæði bæjarstjórans. Málinu hefur í kjölfarið verið vísað í lögbundinn farveg. Friðlýst svæði er nú töluvert stærra en áður. Vísir/Vilhelm Í fundargerð er einnig að finna bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og óháðra, þeirra Magnúsar Arnar Guðmundssonar, Ragnhildar Jónsdóttur, Svönu Helen Björnsdóttur, Sigurþóru Bergsdóttur og Karen Maríu Jónsdóttur. Athygli vekur að Sjálfstæðisflokkurinn virðist klofinn í þessu máli en Magnús, Ragnhildur og Svana tilheyra öll Sjálfstæðisflokki, eins og bæjarstjórinn. Magnús og Ragnhildur eru að hætta í bæjarstjórn en Svana heldur áfram eins og Þór. Bæjarstjórn frá 2025. Neðri röð: Sigurþóra Bergsdóttir, Þór Sigurgeirsson og Ragnhildur Jónsdóttir. Efri röð: Bjarni Torfi Álfþórsson, Karen María Jónsdóttir, Svana Helen Björnsdóttir og Magnús Örn Guðmundsson. Silla Páls Fjölsótt útivistarsvæði og mikilvægt varpland Í bókun þeirra segir að á vesturhluta Seltjarnarness séu einstæðar náttúruminjar og fjölbreytt fuglalíf. „Þar er eitt fallegasta og fjölsóttasta útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu. Ósnortin náttúran myndar eitt samfellt vistkerfi sem gegnir lykilhlutverki fyrir varp, fæðuöflun og hvíld fugla. Friðlýsing Bakkatjarnar, Gróttu, og nú einnig Seltjarnar, er mikilvægur liður í því að varðveita þessi mikilvægu verðmæti. Í friðlýsingu felst ákvörðun okkar Seltirninga um að nýta svæðið í óbreyttri mynd til framtíðar og hindra á sama tíma að því verði raskað með óafturkræfum framkvæmdum,“ segir í bókuninni. Afar vinsælt er að ganga út að Gróttuvita. Vísir/Vilhelm Þá kemur einnig fram þar að friðlýsingin sé hluti af aðalskipulagi bæjarins frá 2015 til 2033 og deiliskipulagi svæðisins auk þess sem Suðurnesið ásamt strandlengju er á náttúruminjaskrá samkvæmt lögum. „Umhverfisnefnd Seltjarnarnesbæjar hefur unnið á faglegan og þverpólitískan hátt að málinu í sex ár og nú liggur fyrir einróma tillaga nefndarinnar,“ segir að lokum. Auglýsing um breytingu á mörkum friðlandsins. Seltjarnarnes Friðlýst svæði árið 1974. Seltjarnarnes
Seltjarnarnes Skipulag Umhverfismál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Lækkar eigin laun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira