Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Atli Ísleifsson skrifar 12. febrúar 2026 08:45 Reiturinn sem um ræðir. Þegar er búið er rífa gamla Morgunblaðshúsið sem er að finna neðst á myndinni. Vísir/Anton Brink Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögu götunafnanefndar um að ný vistgata sem verður til á Kringlureit fái nafnið Mjóamýri. Í rökstuðningi segir að á umræddum reit hafi verið að finna vestustu holur fyrsta golfvallar Reykjavíkur sem kallaðist golfvöllurinn í Mjóumýri.
Tillagan var tekin fyrir á fundi ráðsins í gær. Reiturinn sem um ræðir afmarkast af Kringlunni til austurs, Listabraut til suðurs og Kringlumýrarbraut til vesturs. Þó er ljóst að umrædd gata mun síðar meir koma til með að teygja sig inn á annan byggingaráfanga sem verður reistur síðar. Framkvæmdir á svæðinu eru þegar hafnar með niðurrifi gamla Morgunblaðshússins. Framkvæmdir á svæðinu taki um fimm til sjö ár og munu um 420 íbúðir rísa á svæðinu í fyrsta áfanga. Í greinargerð götunafnanefndar segir að ýmsir kostir að nafni hafi verið skoðaðir, meðal annars tillögur Reita fasteignafélags sem stendur að uppbyggingu á svæðinu. Reiturinn sem um ræðir afmarkast af Kringlunni til austurs, Listabraut til suðurs og Kringlumýrarbraut til vesturs. Reykjavíkurborg „Niðurstaða nefndarinnar var hins vegar að horfa frekar til sögulegs gildis svæðisins innan borgarinnar, sem er talsvert, enda um að ræða svæði sem stóð á tímabili til að gera að nýjum miðbæ Reykjavíkur. „Litið var til gamalla staðarheita og kennileita innan borgarhlutans (Háaleiti-Bústaðir, borgarhluti 5), sem einkennist af holtum og ásum en á milli þeirra lágu á árum áður miklar mýrar sem nú eru horfnar; Kringlumýri, Fossvogsmýri, Sogamýri og Krossamýri. Svæðið sem hér var helst litið til er vestast í borgarhlutanum, í kringum Kringlumýri, en þar hafa mörg eldri staðarheiti frá því fyrir aldamót 1900 lifað góðu lífi í heitum gatna sem þar hafa myndast við uppbyggingu borgarinnar. Þar má nefna Grensásveg, Háaleitisbraut, Bústaðaveg, Leynimýri og sjálfa Kringlumýrarbraut. Þá er helsta kennileiti svæðisins í dag, Kringlan, auðvitað nefnd í höfuðið á gömlu mýrinni,“ segir í greinargerðinni. Fyrsti golfvöllur Reykjavíkur Um Kringlumýri segir að svæðið hafi náð allt frá suðausturhluta Rauðarárholts og vestur á Grensás. Sá hluti Kringlumýrar sem lengst hafi staðið óbyggður og Kringlureiturinn standi meðal annars á hafi borið nafnið Mjóamýri. Áður hafi það heiti verið mikið notað yfir svæðið sem hér er til umfjöllunar. „Mjóumýrarvegur lá m.a. frá Kringlunni og niður að Bústaðarvegi, þar sem Útvarpshúsið stendur nú, og þá stóð fyrsti golfvöllur Reykjavíkur á svæðinu, golfvöllurinn í Mjóumýri, sem var í umsjá Golfklúbbs Íslands. Reiturinn sem hér er til umfjöllunar, Kringlureitur, stendur einmitt þar sem vestustu holur gamla golfvallarins í Mjóumýri lágu áður. Vinnuvélar hafa verið að störfum á Kringlureitnum síðustu mánuði og verða áfram. Vísir/Anton Brink Götunafnanefnd þykir einsýnt að ný gata sem myndast við uppbyggingu á Kringlureit verði nefnd eftir þessu gamla heiti svæðisins, sem hefur horfið með tímanum eftir mikla uppbyggingu þess og hvarf kennileita sem áður voru nefnd í höfuðið á því. Með því yrði haldið í ríka hefð í nafngiftum gatna og kennileita þessa hluta borgarinnar með vísun í gömlu mýrarnar sem einkenndu áður þetta svæði,“ segir í greinargerðinni.
Reykjavík Borgarstjórn Skipulag Golfvellir Örnefni og götunöfn Tengdar fréttir Stefnt að mikilli uppbyggingu á Kringlusvæðinu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita undirrituðu viljayfirlýsingu um nýtt rammaskipulag fyrir Kringlusvæðið í dag. Mikil uppbygging er fyrirhuguð á svæðinu. 17. janúar 2018 12:44 Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Nýjar íbúðir seljast verr en gamlar íbúðir vegna þess að nýjar íbúðir eru á þrengra stærðarbili. Tvöfalda þyrfti magn smærri íbúða á fasteignamarkaði til að anna eftirspurn. Meiri verðhækkun og minni sveiflur á fasteignamarkaði en á markaði innlendra hlutabréfa er til marks um óeðlilega stöðu á eignamarkaði á Íslandi samkvæmt HMS. 23. apríl 2025 06:26 Niðurrif hafið á gamla Morgunblaðshúsinu Niðurrif á Morgunblaðshúsinu hófst í dag. Búist er við því að framkvæmdin taki tvo til þrjá mánuði. Rúmlega fjögur hundruð íbúðir verða byggðar á svæðinu. Fyrstu íbúðir verði afhentar í byrjun 2029 og er stór hluti þeirra um 75 fermetrar að stærð. 22. október 2025 21:47 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Lækkar eigin laun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira
Stefnt að mikilli uppbyggingu á Kringlusvæðinu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita undirrituðu viljayfirlýsingu um nýtt rammaskipulag fyrir Kringlusvæðið í dag. Mikil uppbygging er fyrirhuguð á svæðinu. 17. janúar 2018 12:44
Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Nýjar íbúðir seljast verr en gamlar íbúðir vegna þess að nýjar íbúðir eru á þrengra stærðarbili. Tvöfalda þyrfti magn smærri íbúða á fasteignamarkaði til að anna eftirspurn. Meiri verðhækkun og minni sveiflur á fasteignamarkaði en á markaði innlendra hlutabréfa er til marks um óeðlilega stöðu á eignamarkaði á Íslandi samkvæmt HMS. 23. apríl 2025 06:26
Niðurrif hafið á gamla Morgunblaðshúsinu Niðurrif á Morgunblaðshúsinu hófst í dag. Búist er við því að framkvæmdin taki tvo til þrjá mánuði. Rúmlega fjögur hundruð íbúðir verða byggðar á svæðinu. Fyrstu íbúðir verði afhentar í byrjun 2029 og er stór hluti þeirra um 75 fermetrar að stærð. 22. október 2025 21:47