Fjöldi síma kom á óvart Bjarki Sigurðsson skrifar 11. febrúar 2026 19:27 Birgir Jónasson er settur fangelsismálastjóri. Vísir/Anton Brink Það kom verulega á óvart að fimm af níu föngum sem voru handteknir vegna gruns um aðild að alþjóðlegum glæpasamtökum væru með síma í fangaklefum, að sögn Fangelsismálastjóra. Verið sé að rannsaka hvernig símarnir bárust til fanganna og hvort hægt sé að nota einhvers konar búnað til að koma í veg fyrir notkun þeirra í fangelsinu.
Níu þeirra ellefu sem handteknir voru hér á landi í aðgerðum lögreglunnar við upprætingu alþjóðlegs glæpahrings sem flutti fíkniefni frá Suður-Ameríku til Íslands, sátu þegar inni í fangelsi þegar handtökurnar áttu sér stað. Þeir voru því innan veggja fangelsa landsins þegar þeir voru handteknir, ýmist að afplána dóm eða biðu dóms í gæsluvarðhaldi. Hinum tveimur hefur verið sleppt úr haldi. Eftir handtökurnar í fangelsunum var gerð leit í klefum fanganna og fundust farsímar í fimm þeirra. Talið er að þeir hafi notað tækin í áframhaldandi skipulagningu innflutnings. Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, segir þetta hafa komið flatt upp á sig. „Það gerist að sjálfsögðu öðru hverju að það finnast símar við klefaleitir, en ekki í þessu mæli,“ segir Birgir. Fangar nýti tækin oftast í að ræða við ástvini, en það sé nýr veruleiki að menn taki þátt í skipulagðri glæpastarfsemi innan veggja fangelsanna. „Það myndi ég telja að væri verulegt áhyggjuefni sem knýr okkur til þess að skoða öryggismál í þessu skyni. Hugsa þetta svolítið upp á nýtt,“ segir Birgir. Fangar smygli ýmsu öðru inn, líkt og fíkniefnum og netbeinum. Yfirvöld eru í samskiptum við kollega erlendis um nýjar smyglaðferðir sem ber að hafa varann á. „Við erum að líka að skoða það að hugsanlega kaupa einhvern búnað sem getur hjálpað okkur varðandi smygl á farsímum,“ segir Birgir.
Fangelsismál Smygl Lögreglumál Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira