Stal kreditkorti liðsfélaga og fagnaði gulli fyrir framan hana Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. febrúar 2026 07:01 Julia Simon stakk út tungu og sussaði líka í fagnaðarlátunum. Hendrik Schmidt/picture alliance via Getty Images Julia Simon varð í gær fyrsta franska konan til að vinna gullverðlaun í einstaklingskeppni í 15 kílómetra skíðaskotfimi og fagnaði gullverðlaununum fyrir framan liðsfélaga sinn sem hún stal peningum af.
Simon missti marks á skífunum aðeins einu sinni og kláraði brautina á 41 mínútu og 15 sekúndum, en óvíst var um tíma hvort hún myndi keppa á Vetrarólympíuleikunum. Árið 2023 var Simon kærð af liðsfélaga sínum í franska landsliðinu, Justine Braisaz- Bouchet sem endaði í 80. sæti í dag, fyrir að stela kreditkorti hennar og versla með því á netinu fyrir tæplega 2.000 evrur. Simon var á síðasta ári dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og greiddi 15.000 evra sekt fyrir greiðslukortasvik og þjófnað. Hún var dæmd í sex mánaða bann af aganefnd franska skíðasambandsins í nóvember síðastliðnum, en fékk fimm mánuði skilorðsbundna og náði þannig að taka þátt á ÓL. Braisaz-Bouchet lenti hins vegar í miklu netníði eftir að hafa kært liðsfélaga sinn. „Ég sagði mína sögu árið 2023, eftir þetta ótrúlega tímabil hjá Juliu Simon, og margir sáu þetta bara þannig að ég væri að búa til vandamál“ sagði Braisaz-Bouchet. „Hún veit hver hún er“ Þegar Simon fór yfir marklínuna setti hann fingur við munn og sussaði, en vildi ekki segja hvers vegna. „Þetta var fyrir eina manneskju, hún veit hver hún er því við höfum talað saman. Ég ætla ekki að tjá mig meira um þetta“ sagði Simon og vildi heldur ekki tjá sig um dóminn eða bannið sem hún hlaut. Oh le geste de Julia Simon à l'arrivée de l'épreuve individuelle de biathlon 🤫Suivez les Jeux sur Eurosport et HBO Max pic.twitter.com/im1PV8eCXG— Eurosport France (@Eurosport_FR) February 11, 2026 „Ég einbeiti mér bara að minni íþrótt, það er það sem ég elska mest. Ég var með markmið og setti alla mína orku í það. Þetta var erfiður mánuður en í dag fékk ég fullkomin úrslit, mér líður bara eins og í draumi“ sagði Simon. Þessi skandall var sá stærsti af nokkrum frönskum skíðaskotfimiskandölum á síðustu árum. Á síðasta ári varð Lou Jeanmonnot, sem vann silfurverðlaun í dag, fyrir morðhótunum eftir að hafa tapað nokkrum keppnum. Annar franskur keppandi, Jeanne Richards, var vikið tímabundið úr landsliðinu fyrir að eiga við riffil liðsfélaga síns. Skíðaskotfimin má ekki við mikið fleiri hneykslismálum og hefur vandlega unnið að því undanfarin ár að endurheimta orðspor sitt, síðan Anders Besseberg fyrrum formaður alþjóða skíðaskotfimisambandsins sagði af sér árið 2018 fyrir að þiggja mútur frá Rússum í miðri lyfjanotkunarrannsókn, eftir því sem kemur fram í umfjöllun The Guardian.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira