Aðeins þriðji karlinn til að vinna þrjú Alpagreinagull á sömu leikum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 14:02 Franjo von Allmen sést hér með þriðju gullverðlaunum sem hann vinnur á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Getty/Sean M. Haffey Ólympíuleikarnir eru nýhafnir en það er þegar orðið ljóst að Svisslendingurinn Franjo von Allmen endar sem ein stærsta stjarna leikanna.
Von Allmen kom sér í hóp fremstu skíðamanna Ólympíusögunnar með því að vinna risasvig karla í dag og tryggja sér þar með sín þriðju gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. THE KING FRANJO VON ALLMEN 👑⛷️The first alpine skier since 1968 to win three gold medals in a single edition of the Games. Bormio bows to the Swiss athlete who is rewriting Olympic history.@swissteam #MilanoCortina2026 #Olympics #AlpineSkiing #FranjoVonAllmen #Bormio pic.twitter.com/5w0crkbNP6— Milano Cortina 2026 (@milanocortina26) February 11, 2026 Von Allmen kom í mark á tímanum ein mínúta og 25,32 sekúndur og varð þrettán hundraðshlutum úr sekúndu á undan Bandaríkjamanninum Ryan Cochran-Siegle. Marco Odermatt frá Sviss vann bronsverðlaun á þessum hlýja degi. Hinn 24 ára gamli von Allmen varð aðeins þriðji alpagreinaskíðamaðurinn í karlaflokki til að vinna þrjár greinar á einum vetrarólympíuleikum. Hinir tveir eru goðsagnir í íþróttinni: Jean-Claude Killy frá Frakklandi, sem vann þrjár greinar á leikunum í Grenoble árið 1968, og Austurríkismaðurinn Anton „Toni“ Sailer, sem vann þrefalt á vetrarleikunum 1956 í Cortina d'Ampezzo á Ítalíu. Franjo von Allmen is having the time of his life at his first Olympic Games!Two golds in three days for Switzerland 🤯🥇 Men's downhill🥇 Men's team combined with Tanguy Nef#AlpineSkiing #MilanoCortina2026 pic.twitter.com/Xe3MdC3eP2— The Olympic Games (@Olympics) February 9, 2026 Von Allmen vann brunið á laugardag og sigraði í nýrri liðakeppni í tvíkeppni á mánudag ásamt Tanguy Nef. Eftir hnökralausa ferð sína gaf von Allmen til kynna með hönskunum að þetta væri kannski ekki nóg. Hann rak líka út úr sér tunguna í gríni. Hann var sjöundi keppandinn og enn áttu mörg stór nöfn eftir að renna sér niður fjallið. Þetta reyndist vera nóg þar sem hann skráði sig enn frekar á spjöld sögunnar og varð fyrsti karlkyns keppandinn frá skíðaþjóðinni Sviss til að vinna risasvig á Ólympíuleikum. „Ég verð að vera alveg hreinskilinn, sem dreng dreymdi mig ekki endilega um að verða ólympíumeistari, ég var skíðamaður af því að mér fannst það svo gaman,“ sagði von Allmen nýlega. MITOLOGICO FRANJO VON ALLMEN Il fenomeno svizzero è oro anche in SuperG e completa così una tripletta di medaglie d'oro che, in una stessa Olimpiade, era riuscita a soltanto altri tre sciatori nella storia (Toni Sailer, Jean Claude Killy e Janica Kostelic) pic.twitter.com/MjwKeT5Kff— Eurosport IT (@Eurosport_IT) February 11, 2026
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira