Lægðirnar nái ekki til landsins Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 10. febrúar 2026 21:01 Guðrún Nína Petersen fagstjóri Veðurlíkanaþróunnar á Veðurstofu Íslands segir ýmislegt hafa verði óvanalegt þegar kemur að veðrinu í vetur. Vísir/Bjarni Öfgar í veðrinu eru að aukast um allan heim og má búast við meiri úrkomu hér á landi samhliða loftlagsbreytingum að mati veðurfræðings. Óvenjulegt sé að hér á landi sé sama veðurlag til lengri tíma líkt og sést hefur í vetur.
Á nokkrum dögum varð mikið landrof í Reynisfjöru og mætir nú gjörbreytt fjara ferðamönnum sem fara um svæðið líkt og sjá mátti í fréttatímanum í gær. Ástæðan er þrálát austanátt á svæðinu sem flutt hefur sandinn úr fjörunni til vesturs en veðrið hefur verið fremur óvenjulegt undanfarið á svæðinu. „Það er kannski óvenjulegt að við séum með sama veðurlag til lengri tíma. Þetta er í rauninni búinn að vera mjög óvenjulegur vetur að því leyti að við vorum með þurran og kaldan nóvember. Við fengum fyrsta snjóinn hérna á Reykjavíkursvæðinu í október og svo bara liggur við ekki neitt. Svo kemur hlýr desember. Ég held að það sé þriðji hlýjasti desember síðan mælingar hófust,“ segir Guðrún Nína Petersen fagstjóri veðurlíkanaþróunar hjá Veðurstofunni. Þá var mikill kuldi í byrjun janúar og veðrið snerist svo við þegar leið á mánuðinn. Úrkoma var líka með minnsta móti. Ein skýringin á veðrinu undanfarið er að lægðir hafa ekki náð til landsins. „Lægðirnar sem við erum svona vön að gangi hérna upp til okkar og eru að gefa okkur hlýju og bleytu eru allar suður í sjó og fara bara beint inn á Bretlandseyjar í staðinn og við sitjum uppi með hægviðrisveður í staðinn.“ Með hlýnun jarðar séu öfgar í veðri að aukast um allan heim. „Við erum að sjá á heimsvísu að öfgar eru að aukast og við getum kannski tekið dæmi frá okkur frá Íslandi. Hitabylgjan sem við vorum með í maí síðastliðnum það er talið líklegt að hún hafi verið líklegri vegna loftlagsbreytinga og sömuleiðis að hún hafi magnast af þeim.“ Þá séu líkur á frekari breytingum. „Það eru líkur á því að úrkoma aukist og kannski dögum fækki þannig að við fáum meiri úrkomu þegar við fáum úrkomu. Það eru líka möguleikar á að við fáum meira af frostrigningu að vetri til eins og við erum búin að sjá síðastliðnar vikur hér á suðvesturhorninu, að það rigni hreinlega á frosna jörð og frjósi og við fáum hálku.“
Veður Tengdar fréttir Telja að manngerð hlýnun hafi valdið 16.500 viðbótardauðsföllum í sumar Hnattræn hlýnun af völdum manna olli um það bil 16.500 viðbótardauðsföllum vegna hita í Evrópu í sumar samkvæmt mati hóps faralds- og loftslagsfræðinga. Það eru 68 prósent allra þeirra sem létust af völdum hita í álfunni. 18. september 2025 09:26 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira
Telja að manngerð hlýnun hafi valdið 16.500 viðbótardauðsföllum í sumar Hnattræn hlýnun af völdum manna olli um það bil 16.500 viðbótardauðsföllum vegna hita í Evrópu í sumar samkvæmt mati hóps faralds- og loftslagsfræðinga. Það eru 68 prósent allra þeirra sem létust af völdum hita í álfunni. 18. september 2025 09:26