Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. febrúar 2026 11:29 Einn hinna handteknu ásamt fulltrúa spænsku og íslensku lögreglunnar sem fóru utan í tengslum við rannsóknina. Europol Alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að flutningi kókaíns frá Suður-Ameríku til Íslands hafa verið leyst upp. Samtökin notuðu burðardýr til að flytja efnin. Lögregla í Litháen, Spáni og Íslandi unnu með Evrópulögreglunni við rannsókn málsins óslitið í eitt ár og réðst í handtökur og húsleitir þann 4. febrúar síðastliðinn í samræmdum aðgerðum. Alls voru 24 handteknir, þar af 11 á Íslandi og eru íslenskir ríkisborgarar þar á meðal. Talið er að brotahópurinn hafi hagnast um fjórar milljónir evra með stórfelldu smygli eða um sex hundruð milljónir króna.
Af hinum þrettán sem voru handteknir voru sex teknir höndum í Litháen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Smyglleiðin frá Suður-Ameríku til Íslands var í gegnum Spán en burðardýr voru notuð til að koma með efnin til Íslands. Þrír íslenskir lögreglumenn til Spánar Ásamt handtökunum var farið í fjölda húsleita og mikið af munum og raftækjum haldlögð auk fjármuna, rafmyntaveskis, greiðslukorta og armbandsúra. Ein norræn- og þrjár evrópskar handtökuskipanir hafa verið gefnar út af hálfu Íslands á fjórum hinna handteknu, í Danmörku og á Spáni og fóru þrír íslenskir lögreglumenn til Spánar vegna aðgerðanna. Að neðan má sjá myndskeið frá Evrópulögreglunni þar sem menn eru handteknir, færðir í járn og hald lagt á mikið magn kókaíns. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum segir að glæpasamtökin hafi reitt sig að mestu á burðardýr, einstaklinga í viðkvæmri stöðu, til flytja efnin á milli landa. Burðardýrin földu kókaín ýmist í farangri sínum eða innvortis með því að gleypa pakkningarnar og í sumum tilfellum voru efnin flutt í fljótandi formi. Rannsókn lögregluyfirvalda leiddi í ljós að eftir að efnin komu til Íslands sá brotahópurinn um dreifingu þeirra. Ólögmæti hagnaðurinn var svo þvættaður í gegnum fasteignir og aðrar eignir í Litháen. Virk starfsemi í mörgum löndum „Vegna umfangs starfseminnar vann lögregla með lögregluyfirvöldum í Litháen og á Spáni í gegnum Europol og síðar einnig Eurojust þar sem yfirvöld á Íslandi og í Litháen stofnuðu sameiginlegt rannsóknarteymi (JIT). Eftir sameiginlega fundi í Hag í Hollandi var ljóst að brotahópurinn var með virka starfsemi í fleiri löndum til viðbótar við Ísland, Litháen og Spán, þ.e. Danmörku og Belgíu. Þá átti lögregla einnig gott samstarf við fíkniefnalögreglu Dóminíska Lýðveldisins,“ segir í tilkynningunni. Við leit í fimm af níu fangaklefum fundust símtæki og rafrænir munir sem unnið er að því að afrita og rannsaka innihald þeirra en rökstuddur grunur leikur á að notast hafi verið við þau tæki í áframhaldandi skipulagningu brotastarfseminnar.Vísir/Vilhelm Europol hafi stutt rannsókn málsins með því að auðvelda upplýsingaskipti, aðstoða við greiningar til að bera kennsl á grunaða og kortleggja uppbyggingu skipulagða brotahópsins. „Lögreglan vinnur nú að úrvinnslu haldlagðra gagna auk þess sem skýrslutökur standa yfir af hinum handteknu í öllum framangreindum löndum. Við leitir í fimm af níu fangaklefum fundust símtæki og aðrir rafrænir munir sem unnið er að því að afrita og rannsaka innihald þeirra en rökstuddur grunur leikur á að notast hafi verið við þau tæki í áframhaldandi skipulagningu brotastarfseminnar.“ Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum staðfestir að leitir í fangaklefum hafi alfarið verið á Íslandi. Tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum í heild sinni má sjá að neðan. Tilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum - Umfangsmiklar alþjóðlegar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi með aðstoð Europol og Eurojust. Rétt í þessu var send út sameiginlega tilkynning nokkurra landa með aðstoð Europol og EuroJust, sjá nánar: Drug trafficking network supplying cocaine to Iceland dismantled - The criminals relied on drug mules to evade law enforcement detection, underlining the evolution of cocaine trafficking techniques into Europe | Europol Efni tilkynningar er að löggæsluyfirvöld á Íslandi ásamt systurstofnunum erlendis upprættu í vikunni fjölþjóðlegan skipulagðan brotahóp sem staðið hefur fyrir umfangsmiklum innflutningi á fíkniefnum frá Suður-Ameríku til Evrópu, m.a. á kókaíni. Aðgerðirnar fóru fram í tengslum við samræmda rannsókn lögreglu- og ákæruvalds á Íslandi, í Litháen og á Spáni, með stuðningi Europol og Eurojust. Brotahópurinn er talinn hafa aflað sér um 4 milljóna evra í ólögmætum hagnaði með stórfelldu fíkniefnasmygli. Málið hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu í tæpt ár með aðkomu og aðstoð Tollgæslu og náði hámarki með samhæfðum alþjóðlegum aðgerðardegi þann 4. febrúar sl. þar sem 24 voru handteknir; 11 á Íslandi, sex í Litháen, fjórum á Spáni, tveimur í Belgíu og einni í Danmörku. Jafnframt var farið í fjölda húsleita og mikið af munum og raftækjum haldlögð auk fjármuna, rafmyntaveskis, greiðslukorta og armbandsúra. Ein norræn- og þrjár evrópskar handtökuskipanir hafa verið gefnar út af hálfu Íslands á fjórum hinna handteknu, í Danmörku og á Spáni og fóru þrír íslenskir lögreglumenn til Spánar vegna aðgerðanna. Brotahópurinn reiddi sig að mestu á burðardýr, einstaklinga í viðkvæmri stöðu, til flytja efnin á milli landa. Burðardýrin földu kókaín ýmist í farangri sínum eða innvortis með því að gleyma pakkningarnar og í sumum tilfellum voru efnin flutt í fljótandi formi. Rannsókn lögregluyfirvalda leiddi í ljós að eftir að efnin komu til Íslands sá brotahópurinn um dreifingu þeirra. Ólögmæti hagnaðurinn var svo þvættaður í gegnum fasteignir og aðrar eignir í Litháen. Vegna umfangs starfseminnar vann lögregla með lögregluyfirvöldum í Litháen og á Spáni í gegnum Europol og síðar einnig Eurojust þar sem yfirvöld á Íslandi og í Litháen stofnuðu sameiginlegt rannsóknarteymi (JIT). Eftir sameiginlega fundi í Hag í Hollandi var ljóst að brotahópurinn var með virka starfsemi í fleiri löndum til viðbótar við Ísland, Litháen og Spán, þ.e. Danmörku og Belgíu. Þá átti lögregla einnig gott samstarf við fíkniefnalögreglu Dóminíska Lýðveldisins. Europol studdi rannsókn málsins með því að auðvelda upplýsingaskipti, aðstoða við greiningar til að bera kennsl á grunaða og kortleggja uppbyggingu skipulagða brotahópsins. Lögreglan vinnur nú að úrvinnslu haldlagðra gagna auk þess sem skýrslutökur standa yfir af hinum handteknu í öllum framangreindum löndum. Við leitir í fimm af níu fangaklefum fundust símtæki og aðrir rafrænir munir sem unnið er að því að afrita og rannsaka innihald þeirra en rökstuddur grunur leikur á að notast hafi verið við þau tæki í áframhaldandi skipulagningu brotastarfseminnar. Að rannsókninni hér á landi standa embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem fer með rannsókn málsins, embætti héraðssaksóknara, embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og embætti ríkislögreglustjóra. Þá hefur lögreglu borist ómetanleg aðstoð frá tollgæsluyfirvöldum sem og fangelsismálayfirvöldum. Í málinu eru ríkir rannsóknarhagsmunir og er málið afar umfangsmikið enda hefur rannsókn á ætlaðri skipulagðri brotastarfsemi þessa hóps staðið yfir óslitið í eitt ár hér á landi eða frá febrúar 2025. Rannsóknin hefur verið tíma- og mannaflafrek en að mati lögreglu endurspeglar rannsóknin mikilvægi aukins og markviss samstarfs innlendra og erlendra löggæsluyfirvalda í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi sem og hópa sem starfa þvert á landamæri. Þá hefur viðvera tengslafulltrúa Íslands í Europol og Eurojust sannað ótvírætt gildi sitt í þessari umfangsmiklu rannsókn.
Fíkniefnabrot Lögreglumál Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Fleiri fréttir Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Sjá meira