Handbolti

Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðla­keppni HM

Aron Guðmundsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Magdeburg, var frábær með íslenska landsliðinu á nýafstöðnu Evrópumóti þar sem að Ísland endaði í fjórða sæti.
Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Magdeburg, var frábær með íslenska landsliðinu á nýafstöðnu Evrópumóti þar sem að Ísland endaði í fjórða sæti. Vísir/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Þetta kemur fram í frétt sem birtist á vef Alþjóða handknattleikssambandsins fyrr í dag en dregið verður í riðla fyrir HM þann 10.júní síðar á þessu ári. 

Ísland endaði í fjórða sæti á nýafstöðnu Evrópumóti og tryggði sér þar með sæti á HM næsta árs.

Spilað verður í fjögurra liða riðlum á HM og er liðunum 32 sem tryggja sér þátttökurétt á mótinu skipt niður í fjóra, átta liða, styrkleikaflokka fyrir dráttinn þar sem að eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki mynda fjögurra liða riðil.

Riðlarnir verða því átta talsins og þar munu efstu þrjú lið hvers riðils fyrir sig tryggja sér sæti í milliriðlum.

Við vitum því fyrir víst að við getum ekki mætt þeim liðum í riðlakeppni mótsins sem eru með okkur í efsta styrkleikaflokki. 

Þau lið eru: Ríkjandi heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar Danmerkur, Þjóðverjar Alfreðs Gíslasonar, Króatar Dags Sigurðssonar, Portúgal, Svíþjóð, Egyptaland og Argentína. 

Nítján lið hafa nú þegar tryggt sér sæti á HM en enn eiga þrettán lið til viðbótar eftir að tryggja sér sæti á mótinu. 

Nú þegar hafa fjórir íslenskir þjálfarar tryggt liðum sínum sæti á mótinu. Auk Snorra Steins (Ísland), Alfreðs Gíslasonar (Þýskaland) og Dags Sigurðssonar (Króatía) hefur landslið Kúveit, sem spilar undir stjórn Arons Kristjánssonar, einnig tryggt sér sæti á HM gegnum Asíumótið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×