Heilsa og líðan barnanna okkar Alma D. Möller skrifar 8. febrúar 2026 09:01 Við stöndum frammi fyrir fjölda áskorana er varða lýðheilsu barna og ungmenna. Þar má nefna skjá- og samfélagsmiðlanotkun, of litla hreyfingu og frjálsan leik, gjörunnar matvörur og óhollt mataræði, notkun orkudrykkja, nýjar nikótínvörur og aukið aðgengi að áfengi og vímuefnum. Afleiðingarnar eru versnandi geðheilsa; depurð, kvíði, einmanaleiki og sjálfsskaði en einnig offita, ónógur svefn sem hefur víðtækar afleiðingar, námsörðugleikar, hegðunarvandi, vímuefnavandi, fíkn og ofbeldi. Á sama tíma og lágþröskulda úrræðum hefur fjölgað og þjónusta við börn verið aukin, fjölgar þeim börnum sem glíma við alvarlegan vanda. Samhliða hefur lyfjanotkun aukist og biðlistar eftir greiningum og þjónustu lengjast. Við þessu þarf að bregðast frekar, vissulega með aukinni þjónustu, en ekki síður með því að ráðast að rótum vandans. ,,Kvíðakynslóðin“ Geðheilsa er eitt stærsta velferðarmál samtímans - en líka til framtíðar því það er jú unga fólkið sem erfir þær stóru áskoranir sem blasa við heiminum. Rannsóknir á líðan barna sýna að geðheilsa barna og ungmenna fer versnandi, um það höfum við góð gögn á Íslandi, m.a. íslensku æskulýðsrannsóknina. Sífellt fleiri börn upplifa kvíða, depurð og einmanaleika og sem dæmi upplifa 40% barna í 10. bekk depurð og 50% kvíða vikulega eða oftar. Þessi þróun hefur átt sér stað um allan hinn vestræna heim, allt frá árunum 2010-2012 eins og glöggt er sýnt fram á í metsölubókinni Kvíðakynslóðin eftir félagssálfræðinginn Jonathan Haidt. Áhrifin eru meiri á stúlkur hvað varðar svokallaðar innhverfar raskanir (kvíði, depurð) en úthverfar raskanir (hegðunarvandi, ofbeldi, áhættusækni) eru algengari hjá drengjum. Í bókinni eru færð sannfærandi rök fyrir því að notkun samfélagsmiðla sé að miklu leiti um að kenna. Tölur frá Bandaríkjunum sýna að um helmingur unglinga er „nánast alltaf“ á netmiðlum. Eflum geðheilbrigðisþjónustu Unnið er að endurskipulagningu geðheilbrigðisþjónustu barna á Íslandi til að efla skilvirkni og aðgengi. Efla á lágþröskuldaþjónustu enn frekar þannig að börn fái skjótt viðtal við fagaðila og viðeigandi stuðning. Búið er að styrkja starfsemi hálparsíma Rauða krossins, Píeta samtakanna og Bergsins og ánægjulegt er að sjá að biðtími eftir sálfræðiþjónustu í heilsugæslu hefur styst á undanförnu ári þó svo að biðtíminn sé enn of langur. Sem heilbrigðisráðherra hef ég frá upphafi lagt áherslu á að stytta biðlista barna og er unnið að fjölda verkefna þar að lútandi. Geðheilsumiðstöð barna hefur verið styrkt, sömuleiðis Barna- og unglingageðdeild Landspítala sem og Barna- og unglingageðteymi á Norðurlandi auk þess sem áfram er unnið að uppbyggingu geðheilsuteyma á landsbyggðinni. Búið er að tryggja geðþjónustu í framhaldsskólum. Þá er unnið að því að hefja markvissa skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum og uppbyggingu áfallamiðstöðvar á Landspítala fyrir þolendur ofbeldis. Í tíð minni sem heilbrigðisráðherra hefur samtals um 600 milljónum króna verið varið til styrkingar þessara úrræða auk 1700 milljóna til eflingar annarrar geðheilbrigðisþjónustu. Loks skal nefnt að hópur undir stjórn forsætisráðuneytisins rýnir hvernig meðferð og þjónustu fyrir börn með vímuefnavanda verði best fyrir komið. Forvarnir – betra er heilt en vel gróið Vaxandi vandi verður ekki leystur með fjölgun meðferðarúrræða. Breyttar venjur og bætt lýðheilsa eru öflugustu tækin sem við höfum til að vinda ofan af þeim vanda sem við blasir. Við þurfum öll að taka höndum saman, stjórnvöld, stofnanir, skólar, foreldrar og börn. Skólaheilsugæsla er afar mikilvæg nærþjónusta. Þar sameinast þær meginstoðir sem öflugt forvarnarstarf og góð lýðheilsa grundvallast á – snemmtækar íhlutanir og jafnt aðgengi. Styrking skólaheilsugæslunnar er að mínu mati nauðsynleg ef við ætlum að efla lýðheilsu barna. Unnið er að nýrri reglugerð um skólaheilsugæslu og að endurskoðun fræðsluefnis með áherslu á líkamlega heilsu, tilfinningalæsi, sjálfshjálp og markvissa geðrækt í skólaumhverfi, auk sjálfsvígsforvarna. Á næstu mánuðum hefst í fyrsta sinn á Íslandi markviss skimun fyrir ofbeldi meðal barna í grunnskólum. Skimað verður fyrir því hvort börn hafi sjálf orðið fyrir ofbeldi eða orðið vitni að ofbeldi og byggð upp áfallamiðuð meðferð og þjónusta til samræmis (Bryndísarhlíð). Heilbrigðisráðuneytið vinnur að lagafrumvarpi, um vernd barna gagnvart nikótínvörum og að þingsályktun um aðgerðir gegn offitu. Þar liggja fjölmörg tækifæri, Norðmenn hafa nýverið bannað markaðssetningu á óhollri matvöru og lagt bann við sölu orkudrykkja til barna undir 16 ára aldri. Þá þarf áfram að vinna gegn auknu aðgengi að áfengi. Þegar í vor sem leið setti ég á laggirnar starfshóp um aðgerðir til að takast á við þessar nýju áskoranir varðandi heilsu og líðan barna og eflaust verða ráðleggingar um fleiri aðgerðir í niðurstöðu hópsins. Minni samfélagsmiðlanotkun er lykilatriði Við verðum að horfast í augu við slæm áhrif samfélagsmiðla og netnotkunar en barnamálaráðherra vinnur að viðbrögðum og reglum þar að lútandi. Höfundur áður tilvitnaðar bókar leggur til eftirfarandi: 1.Engir snjallsímar fyrr en á unglingastigi grunnskóla. 2.Engir samfélagsmiðlar fyrir 16 ára aldur. 3.Símalausir skólar. 4.Miklu meiri eftirlitslaus leikur og sjálfstæði í barnæsku. Sem ráðherra lýðheilsumála legg ég til að við tökum höndum saman og kennum börnum útivist og leiki bernsku okkar; t.d. boltaleiki eins og yfir, stikk-og-sto, stórfiskaleik, teygjutvist, snú-snú, parís, fallna spýtu og allt hvað þeir hétu. Við þurfum að veita börnunum okkar tækifæri til að upplifa barnæsku leiksins í stað barnæsku snjallsímans og skjásins. Auk þess þarf að leggja áherslu á afþreyingu eins og lestur, handavinnu, föndur og spil. Án snjalltækja og samfélagsmiðla fá krakkarnir frið til að stjórna eigin athygli. Börnin gera ekki eins og við segjum, þau gera eins og við gerum Við fullorðna fólkið; foreldrar, forráðamenn, ömmur og afar erum börnunum mikilvægar fyrirmyndir. Því verðum við sjálf að hegða okkur eins og við viljum að börnin hegði sér; vera meira til staðar og minna í símanum og iPaddinum. Við vitum að samverustundir með fjölskyldu eru afar mikilvægar og eins þátttaka í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi. Þá þurfum við að skoða hvernig við fylgjumst með börnunum. Jonathan Haidt heldur því fram að hluti vandans sé að við ofverndum börnin í raunheimum, t.d. er varðar frjálsan leik úti við en okkur takist illa að vernda þau í netheimum þar sem dæmin sanna að börn sjá óhugnalega hluti sem þau skortir þroska til að takast á við. Hann færir fyrir því rök að foreldrar ættu að viðhafa minna eftirlit í raunheimum og meira í netheimum. Það er skýrt í mínum huga að vandinn verður ekki leystur nema með breyttum lifnaðarháttum og bættri lýðheilsu. Við gerðum það á Íslandi varðandi áfengis- og tóbaksneyslu unglinga er við fórum úr hæstu neyslu í Evrópu í þá lægstu. Þó áskoranirnar séu stórar eru þær ekki óyfirstíganlegar en við þurfum að vera róttæk; við þurfum samstöðu og samstillt átak, pólitískan vilja og markvissa vinnu studda af bestu þekkingu. Verkefnið er ekki einfalt en það getur orðið árangursríkt og ekki síður skemmtilegt ef við þorum að taka skrefið. Höfundur er heilbrigðisráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Símanotkun barna Alma D. Möller Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar