„Á rangri leið“ með háa raunvexti sem feli í sér tilfærslu fjármuna milli kynslóða
Áframhaldandi áhersla Seðlabankans á að viðhalda yfir þriggja prósenta raunvaxtaaðhaldi samhliða litlum sem engum hagvexti sýnir svo „ekki verður um villst“ að bankinn er á „fullkomlega rangri leið“, að mati forstjóra eins umsvifamesta fjárfestingafélags landsins, sem kallar eftir umræðu um hvað sé meðal annars eðlilegt raunvaxtastig og verðbólgumarkmið fyrir hagkerfið. Hann segir hið háa vaxtastig ekki vera neitt annað en tilfærsla á fjármunum milli kynslóða þar sem þeir sem eldri eru njóta ávinningsins í formi hærri ávöxtunar á innlán og ellilífeyri.
Tengdar fréttir
Íslenskir bankar „allt of litlir“ og sér engar hindranir í vegi samruna Kviku og Arion
Einn stærsti hluthafi Arion og Kviku vonast til að boðuð sameining bankanna „gangi hratt og vel fyrir sig“ og sér ekki hvaða fyrirstaða ætti að vera fyrir samrunanum út frá samkeppnislegum sjónarmiðum enda sé mikil samkeppni á öllum sviðum innlendrar bankaþjónustu. Forstjóri Stoða er sem fyrr afar gagnrýninn á vaxtastefnu Seðlabankans, sem hann segir að sé komin í „algjöra sjálfheldu“, og að hátt vaxtastig er farið að valda verðhækkunum á nýbyggingum.
„Meiri líkur en minni“ að skráning Stoða frestist fram á næsta ár
Fjárfestingafélagið Stoðir, sem hefur að undanförnu unnið að undirbúningi að hlutafjárútboði og skráningu í Kauphöllina, mun ósennilega láta verða af skráningunni fyrir áramót heldur er núna talið að hún muni færast yfir á fyrri hluta ársins 2026. Á kynningarfundi með fjárfestum var meðal annars bent á að stærstu óskráðu eignir Stoða væru varfærnislega metnar í bókunum miðað við verðmatsgreiningu á mögulegu virði félaganna.