LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 17:14 Kristín Eysteinsdóttir er rektor Listaháskóla Íslands. Saga Sig Listaháskóli Íslands reið á vaðið og setur á skólagjöld fyrir nemendur utan EES-svæðisins, að undanteknum nemendum frá Grænlandi, Færeyjum og Sviss. Hækkunin, sem nemur nokkrum milljónum króna, er vegna lagabreytinga háskólaráðherra.
Logi Einarsson háskólaráðherra mælir fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um opinbera háskóla. Frumvarpið hefur þegar farið í gegnum fyrstu umræðu á Alþingi og er komið til allsherjar- og menntamálanefndar. Verði frumvarpið að lögum verður skólum heimilt að innheimta sérstakt gjald af nemendum sem koma utan EES, fyrir utan þá frá Grænlandi, Færeyjum og Sviss. Allir háskólar landsins munu geta innheimt gjaldið en Listaháskóli Íslands er sá fyrsti sem birtir uppfærða gjaldskrá. Frumvarpið tæki gildi þann 1. júlí 2026. Þeir sem ætla að stunda nám í arkítektúr, myndlist, hönnun og listkennslu þurfa að greiða 4,5 milljónir króna fyrir hvert skólaár. Þeir sem ætla að læra tónlist, leiklist og kvikmyndagerð þurfa að greiða 5,5 milljónir króna. Gjaldið nemur raunkostnaði skólans sem liggur að baki náminu. „Við erum með fáa nemendur í bekk, þetta er mjög einstaklingsbundið nám og mikil einkakennsla,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, og tekur fram að til að mynda í námi líkt og tónlist sé mun meiri einstaklingskennsla en í listkennsla. Snemma vegna inntökuferlisins Listaháskóli Íslands er samt sem áður ekki skilgreindur sem opinber háskóli en fylgir sömu viðmiðum og opinberir háskólar enda fjármagnaðir af háskólaráðuneytinu líkt og þeir. Myndu þau ekki taka upp gjaldskrána þyrfti skólinn að greiða raunkostnað námsins úr eigin vasa. Listaháskóli Íslands er sá fyrsti til að birta nýja gjaldskrá þar sem umsóknarfresturinn opnaði fyrir umsóknir mun fyrr heldur en aðrir háskólar hérlendis. „Inntökuferlið tekur langan tíma, það þarf að fara í gegnum möppur eða taka inntökupróf og annað slíkt, við þurfum að hafa þetta skýrt og gátum því ekki beðið,“ segir Kristín. Breyting í samræmi við Norðurlöndin Í dag eru þrjátíu af rúmlega sjö hundruð nemendum skólans sem koma utan EES-svæðisins. Samkvæmt frumvarpi Loga voru 23.361 nemandi skráður í háskólanám á Íslandi árið 2025 og 7,44 prósent þeirra koma frá löndum utan EES-svæðisins, eða 1737 nemendur. Til samanburðar var hlutfall erlendra háskólanema með ríkisfang utan EES lægst í Danmörku, 2,3 prósent, og hæst í Finnlandi, 6,3 prósent. Kristín segir lagabreytinguna vera í samræmi við lög um háskóla á hinum Norðurlöndunum. „Við erum búin að rýna mjög vel í þetta. Þegar þessu var breytt í Noregi þá fækkaði umsóknum nemenda utan EES. Þetta hefur áhrif á alþjóðlegt samtal og námsumhverfi innan skólans, það er ókostur þar. Hins vegar hafa nánast allir háskólar á Norðurlöndunum innleitt þetta,“ segir hún. Þar sem að flestir skólarnir hafi innleitt samskonar lög hafi kúrsinn rést aftur af og fjölgar nemendum í skólanum sem koma utan EES-svæðisins. Möguleiki er á einhvers konar undanþágum, til að mynda fyrir þá sem eru búsettir hér á landi. Kristín segir að ráðuneytið þurfi að ákvarða um það og því sé ekki búið að skýra hverjar undanþágurnar eru að sinni.
Háskólar Skóla- og menntamál Hagsmunir stúdenta Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira