Undir yfirborði íslensku hamingjunnar Björg Sigríður Hermannsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 10:02 Í fyrra náðu Íslendingar þriðja sæti þegar lífshamingja var mæld meðal fólks í 147 löndum heims.[1] Einungis Danir og Finnar sögðust ríkari að lífshamingju en við. Þetta var jafnframt fimmta árið í röð sem við lentum í þriðja sæti, eftir að hafa verið í því fjórða í nokkur ár þar á undan. Á sama tíma, voru Íslendingar fremstir í notkun þunglyndislyfja af öllum þjóðum OECD bandalagsins.[2] Hamingjusama þjóðin í fallega landinu með hreina loftið og allar sundlaugarnar á met í notkun lyfja sem framleidd eru til að slá á vanlíðan. Eru þetta tveir ólíkir hópar – fólk sem líður vel og svarar hamingjukönnun og svo fólk sem líður illa og svarar könnun um lyfjanotkun? Eða er þetta ein og sama þjóðin? Kannski má púsla þessu saman á nokkra vegu. Margir eru hamingjusamir, sem betur fer, vel tengdir vinum og fjölskyldu, sáttir við sitt hlutskipti og taka virkan þátt í því sem skiptir þá máli. Aðrir vakna með hnút í maganum og eiga erfitt með að komast í gegnum daginn. Og svo eru margir þarna einhvers staðar mitt á milli. Það er til fólk sem segir alltaf “allt gott”, þegar einhver spyr. Stundum er það satt, og stundum ekki. Stundum er raunverulegra svarið miklu lengra, eins og – “jú ég hef það ágætt en ég hef sofið illa síðustu vikur því ég hef nagandi tilfinningu fyrir því að ég sé ekki á réttum stað í lífinu en ég get ekki fest fingur á hvað ég ætti annað að gera, vinnan er að drepa mig og mér finnst ég hvergi fá þá viðurkenningu sem ég þarf, síst af öllu heima þar sem allir virðast hafa eitthvað út á mig að setja, og svo eru lánin orðin þung og ég sé ekki fyrir endann á þessu öllusaman”. Með öðrum orðum, “jú ég hef það ágætt, alltaf nóg að gera”. Á sama hátt og uppstilltar myndir á samfélagsmiðlum gefa okkur takmarkaða sýn á það hvernig líf fólks lítur raunverulega út, gefa tölur um lífshamingju þjóðar einfaldaða mynd af því hvernig fólki líður innst inni. Hamingjutölur byggðar á stuttum svörum við spurningakönnun geta ekki sýnt nema afmarkaðan hluta þeirrar flóknu myndar sem vellíðan og lífshamingja í rauninni eru. Kannski er þessi flókna mynd eitthvað skyld þeirri upplifun að verða foreldri. Lífsfyllingin, tilgangurinn og öll yndislegu augnablikin kallast á við rifrildin yfir því hver á að skutla, bugunina sem fylgir þriðju leikskólapestinni í röð og morgnana þegar klukkan er korter í, enginn er kominn í föt og allir eru að fara á límingunum. Ástin sem fyllir hjartað þegar horft er á sofandi barnið og yfirþyrmandi pirringurinn sem brýst fram þegar það vaknar grátandi í níunda sinn seinna um nóttina. Stoltið sem fylgir útskrift litla barnsins úr grunnskóla og óbærilegur kvíðinn þegar unglingurinn skilar sér ekki heim. Sem sálfræðingur heyri ég mörg dæmi um þessa sífelldu togstreitu lífsins. Ég fæ innsýn í streituna sem hlaðist getur upp hjá þeim sem setja vinnu og efnislegan árangur ofar öllu, inn í einmanaleikann sem fólk getur upplifað í hjónabandinu sínu og áhyggjurnar sem sækja að mörgum þegar slökkt hefur verið á öllum skjám á kvöldin. Ég kynnist þeim hliðum fólks sem það deilir síður á samfélagsmiðlum og sýnir stundum ekki sínum nánustu. Hliðum sem fólk skammast sín fyrir eða skilur ekki hvaðan koma. Ég sé líka merki um hamingjuna. Hvað það er sem virkilega skiptir máli í lífi fólks þegar allt kemur til alls. Hvernig sumt fólk nær að kynnast sjálfu sér upp á nýtt eftir að hafa gengið í gegnum erfið tímabil. Hversu mikill léttir það getur verið að sættast við fortíðina, fjölskyldumeðlimi eða sjálfan sig. Hvernig sumir prófa í fyrsta sinn að fylgja eigin sannfæringu og gera mistök án þess að rífa sig niður. Hversu eflandi það getur verið að takast á við það sem við óttumst og hversu mikill léttir getur fylgt því að fella grímuna, jafnvel bara í smástund, og segja upphátt það sem við meinum. Það getur verið virkilega erfitt að ræða það sem máli skiptir. Að horfast í augu við okkur sjálf kostar hugrekki og auðmýkt. Að gera það í samtali með annarri manneskju og takast á við flækjurnar, óttann, skömmina, sorgina, skuggana – krefst að auki einlægni og trausts. Margir taka ekki það samtal. Ég velti því áfram fyrir mér hvernig þriðju hamingjusömustu þjóðinni líður. Hvernig hún myndi svara ef hún væri spurð: “Hvernig hefur þú það?” Ef svarið mætti vera langt og snúið. Hvert væri þitt svar? Höfundur er sjálfstætt starfandi sálfræðingur. 1. https://data.worldhappiness.report/table 2. https://worldpopulationreview.com/country-rankings/antidepressant-use-by-country Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar