Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Kjartan Kjartansson skrifar 7. febrúar 2026 07:01 Svona gæti nýr golfvöllur á Norðurnesi Álftaness litið út. Gert er ráð fyrir honum á skipulagi á ljósgrænmerktu svæðunum á myndinni. Vísir/Sara Nýr golfvöllur á norðanverðu Álftanesi er hluti af tillögu um framtíðarskipulag svæðisins sem er í forkynningu. Formaður Golfklúbbs Álftaness segir enn langt í að hann flytji á nýjan völl en vonast til að hann verði tilbúinn áður en klúbburinn þarf að yfirgefa þann gamla.
Rúm tuttugu ár eru frá því hugmyndir um nýjan golfvöll á Norðurnesi á Álftanesi komu fram. Hann á að koma í stað þess sem Golfklúbbur Álftaness hefur rekið síðasta tæpa aldarfjórðunginn sunnar á Álftanesi. Nú er skriður kominn á hugmyndirnar þar sem tillögur að framtíðarskipulagi Norðurness eru til umsagnar í Skipulagsgátt. Í þeim er gert ráð fyrir níu holu golfvelli, æfingasvæði og golfskála við Bessastaðatjörn sem teygir sig út að Kasthúsatjörn. Nýr völlur Golfklúbbs Álftaness á að liggja í kringum Bessastaðatjörn á Norðurnesi sem sést á miðri myndinni. Hann á einnig að teygja sig yfir veginn í átt að Kasthúsatjörn sem sést glitta í vinstra megin á myndinni.Garðabær Einar Georgsson, formaður Golfklúbbs Álftaness, segist búast við að fullbúin skipulagstillaga verði lögð fram á vormánuðum og í framhaldinu hefjist samningaviðræður við bæinn um nýja völlinn. „Það tekur einhver ár að byggja upp nýjan völl því það er ekki búið að gera neitt ennþá. Það eru nokkuð mörg ár í að við flytjum okkur ennþá,“ segir formaðurinn. Vonast til að þurfa ekki að fara áður en nýr völlur verður til Til stendur að taka gamla vallarsvæðið á Álftanesi undir íbúðabyggð. Einar segist ekki eiga von á að klúbburinn þurfi að yfirgefa núverandi völl áður en sá nýi verður að veruleika. Það segi hann með þeim fyrirvara að klúbburinn fari ekki með skipulagsvaldið og að Garðabær eigi ekki allt landið sem núverandi völlur liggur um. Einar Georgsson, formaður Golfklúbbs Álftaness.Golfklúbbur Álftaness „Ég óttast það ekki þó að það sé alveg fræðilegur möguleiki að það gerist. Ég vonast til þess að málið verði leyst á þessu ári þannig að það gerist ekki og að Garðabær leiði það verkefni. En það er ekki alveg fast í hendi,“ segir hann. Býst við að klúbburinn fjármagni völlinn sjálfur Formaðurinn reiknar með að klúbburinn muni sjálfur standa að mestu undir kostnaðinum við að byggja upp nýjan völl á Norðurnesi þó að bæjaryfirvöld leggi mögulega eitthvað af mörkum, til dæmis með aflöguefni. „Þær samningaviðræður hafa ekki farið almennilega fram en við væntum þess að mest af fjármögnuninni fari í gegnum okkur. Við eigum bara eftir að fara í gegnum þessa hluti, við erum ekki komin svo langt. Okkar hlutur núna er bara að styrkja klúbbinn með hagkvæmum rekstri og eiga sjóði til að takast á við verkefnin,“ segir Einar. Um 460 manns eru nú skráðir í klúbbinn og hefur félögum fjölgað ört að undanförnu enda gríðarleg eftirspurn eftir golfi á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir. Biðlisti hefur verið til að fá aðild að klúbbnum undanfarin ár líkt og hjá mörgum öðrum klúbbum en Einar segir hann stefna á að hafa um fimm hundruð félagsmenn. „Golfið er bara sprungið, þar eru rosalega margir að spila golf,“ segir formaðurinn. Þurfa að teikna nýjan völl eða aðlaga eldri hugmyndir Vallarstæði nýja vallarins hefur breyst nokkuð frá því að teikningar voru gerðar af honum, að sögn Einars. Búið sé að mjókka svæði á Norðurnesinu þar sem tvær brautir eiga að liggja saman en spilda bæst við annars staðar. „Þannig að það þarf að fara í þá vinnu að teikna nýjan völl eða dusta rykið af hinum og aðlaga hann,“ segir hann. Skoða þurfi hvernig holunum verði komið fyrir á landsvæðinu og öryggismörk vallarins. „Okkar væntingar eru að við náum samningum við Garðabæ fyrir lok tímabils í sumar,“ segir Einar.
Garðabær Golfvellir Golf Skipulag Tengdar fréttir Ætla að hlífa trjám þegar golfbrautir verða mótaðar á skógræktarsvæði Framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG) segir að reynt verði að hlífa trjágróðri eftir fremsta megni þegar nýjar golfbrautir verða mótaðar í skógræktarsvæði í Smalaholti. Klúbburinn fær svæðið í stað lands sem Garðabær tekur undir nýja íbúðabyggð. 10. mars 2025 08:00 Mest lesið Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Innlent Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Innlent „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Páll Winkel varð fyrir valinu Innlent Fleiri fréttir Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Vendingar í borginni, vandræði vegna verktaka og Pepsi-sátt Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Reykjadalur fær tugi milljóna eftir allt saman en aðrir minna Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Landspítali fær 25 milljónir vegna stuðnings við Bakkakotsbörn Páll Winkel varð fyrir valinu Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Borgarfulltrúi sem hlaut ekki náð fagnar endurnýjun „Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu“ Reykjavíkurborg játar ranga upplýsingagjöf en umboðsmaður segir spurningum enn ósvarað Deilt um framkvæmdir í Ölduselsskóla og flug í samt lag á ný Fái að hitta lækni fyrr með nýju skipulagi á bráðamóttökunni Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Bein útsending: Heilsan okkar – Fíknivandi ungmenna Kveður Þorgerði og snýr sér að Guði Segja verktakann hafa fallið á prófinu Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Hafa til sunnudags að breyta dvalartíma upp á nýju gjöldin Sjá meira
Ætla að hlífa trjám þegar golfbrautir verða mótaðar á skógræktarsvæði Framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG) segir að reynt verði að hlífa trjágróðri eftir fremsta megni þegar nýjar golfbrautir verða mótaðar í skógræktarsvæði í Smalaholti. Klúbburinn fær svæðið í stað lands sem Garðabær tekur undir nýja íbúðabyggð. 10. mars 2025 08:00