Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Kjartan Kjartansson skrifar 2. febrúar 2026 11:13 Joanna Rubinstein á samkomu hjá World Childhood Foundation sem Svíadrottning stofnaði á sínum tíma. Vísir/Getty Joanna Rubinstein, yfirmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð, sagði af sér eftir að í ljós kom að hún hefði heimsótt einkaeyju Jeffreys Epstein, bandaríska kynferðisbrotamannsins. Hún segist hafa vitað af brotum Epstein en ekki umfangi þeirra.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið birti aragrúa skjala úr rannsókn þess á Epstein fyrir helgi. Fjölda fyrirmenna um allan heim bregður fyrir í skjölunum, sumir þeirra vegna beinna samskipta við auðkýfinginn. Í þeim hópi er Rubinstein. Skjölin sýna að hún heimsótti alræmda eyju Epstein í Karíbahafi með fjölskyldu sinni árið 2012. Hún sagði af sér sem yfirmaður flóttamannastofnunarinnar (UNHCR) í Svíþjóð eftir að sænskir fjölmiðlar greindu frá heimsókninni. Heimsóknin átti sér stað eftir að Epstein hlaut dóm fyrir kynferðisbrot á Flórída á fyrsta áratug þessarar aldar. Rubinstein segist hafa verið meðvituð um það. „Það sem hefur síðar komið í ljós um umfang misnotkunarinnar er hræðilegt og er eitthvað sem ég fordæmi afdráttarlaust,“ segir hún. Rubinstein þessi stýrði meðal annars bandarískri deild World Childhood Foundation, góðgerðasamtaka sem Silvía Svíadrottning stofnaði. Norska krónprinsessan einnig í klandri Epstein-skjölin hafa einnig valdið írafári í Noregi þar sem þau vörpuðu ljósi á náin tengsl Mette-Marit krónprinsessu við níðinginn, jafnvel eftir að eldri brot hans gegn konum voru afhjúpuð. Virðist Mette-Marit meðal annars hafa verið Epstein innan handar í makaleit. Ráðlagði hún Epstein að París væri hentug borg til framhjáhalds. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir krónprinsessuna hefjast réttarhöld yfir syni hennar vegna nauðgunar og líkamsárásar nú í vikunni.
Svíþjóð Mál Jeffrey Epstein Kynferðisofbeldi Sameinuðu þjóðirnar Erlend sakamál Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira