Segir Dag hafa beðist afsökunar Aron Guðmundsson skrifar 31. janúar 2026 15:38 Dagur lét evrópska handknattleikssambandið heyra það á blaðamannafundi á fimmtudaginn síðastliðinn Forseti Evrópska handknattleikssambandsins segir Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu hafa beðist afsökunar á því hvernig hann orðaði gagnrýni sína á keppnisfyrirkomulagi og skipulagi sambandsins á EM á blaðamannafundi fyrir úrslitahelgi mótsins í Herning.
Forsetinn, Michael Wiederer, sat blaðamannafund í Herning í dag þar sem hann var spurður út í gagnrýni Dags sem fór mikinn á blaðamannafundi í aðdraganda undanúrslitaleiks Króata við Þýskaland á EM. Dagur sagði EHF þar bera litla sem enga virðingu fyrir leikmönnum og starfsfólki liðanna á EM og benti á skekkju í hvíldartíma liða fyrir undanúrslitin.Dagur líkti svo evrópska sambandinu við skyndibitakeðju og liði sínu líkti hann við frosinn kjúkling. „Þau eru eins og skyndibitastaður, þeim er alveg sama um gæðin, þau vilja bara selja. Eða reyndar, þau eru eins og viðburðarfyrirtæki, sem pantar bara einhverja listamenn til að setja upp sýningu og flottan blaðamannafund. Það skiptir þau engu máli að við hefðum þurft að keyra í fjóra tíma frá Malmö í morgun, það skiptir þau engu máli.“ Út í akkúrat þessa líkingu var forseti EHF spurður á blaðamannafundi þar sem að hann sagði strax að Dagur hefði beðist afsökunar á þessu orðavali sínu. Í samtali við Vísi fyrr í dag sagðist Dagur, sem stýrir liði sínu í leiknum um bronsið á EM gegn Íslandi á morgun, að hann hefði sæst við framkvæmdastjóra EHF, góðan vin sinn. Það hafi legið fyrir að Dagur myndi láta sambandið heyra það fyrir blaðamannafundinn umrædda.
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Hættir í NFL til að fara að bjarga mannslífum Sport Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti „Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Sport Fleiri fréttir Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Valur sótti deildarmeistaratitil til Eyja Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Póllands Íslendingaliðið lauk leik með tapi en Bjarki Már mætir GOG eða PSG Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Viktor Gísli frábær og Barca endaði á toppnum „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Ýmir og félagar með tvo sigra í röð í fyrsta sinn í fjóra mánuði Fá Egypta í Höllina fyrir HM og heimsækja þá líka Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Sjáðu markasýningu Viggós í dag Á góðri leið með því að tvöfalda framlagið sitt frá því í fyrra Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Haukur þriðji tíu marka maður Íslands í þýsku deildinni í dag Uppgjör: Svartfjallaland - Ísland 33-24 | Hér varð hrun Sjá meira