Mýrar skipta máli - Alþjóðlegur dagur votlendis Álfur Birkir Bjarnason skrifar 2. febrúar 2026 07:03 Fífa Jónsdóttir Mýrar eru merkileg vistkerfi. Blautur en næringarríkur jarðvegur, eða raunar mór, setur lífinu strangar skorður en verðlaunar ríkulega þau sem þar geta lifað. Í dag, 2. febrúar, er alþjóðlegur dagur votlendis og því er ekki úr vegi að velta fyrir okkur þessu merkilega umhverfi. Hvað er votlendi, hvar er það, og hvers vegna er það mikilvægt fyrir Íslendinga? Við fyrstu sýn kunna mýrar að virðast nokkuð látlausar með lágvöxnum og einsleitum gróðri. Þegar betur er að gáð finnast þó fjölmargar tegundir sem hafa aðlagast þessu blauta umhverfi á merkilegan hátt og þrífast vart annars staðar. Bjöllur synda í smátjörnum með loftbólur á bakinu til öndunar, fífur hafa loftæðar í rótum sínum til að koma súrefni niður í loftfirrtan móinn, og vaðfuglar eins og jaðrakan standa á stultum og bora löngum goggnum eftir gómsætum smádýrum. Votlendi þekur um 20% af grónu flatarmáli Íslands. Á landsvísu hefur um helmingi votlendis verið raskað eða það framræst. Ef einungis er horft til láglendis fer þetta hlutfall upp í 70%. Flói, Mýrar, Fljót og Kringlumýrarbraut eru allt örnefni sem lýsa gegnsósa landi en þó stendur stór hluti þess þurr í dag. Undanfarið hefur umræða um endurheimt votlendis náð nokkru flugi, sérstaklega í samhengi loftslagsbreytinga. Endurheimt votlendis er þó ekki bara loftslagsaðgerð sem snarminnkar losun kolefnis og bindur það í blautum jarðvegi. Hún er líka tilraun til að græða upp hnignað vistkerfi og styrkja þannig þanþol og líffræðilega fjölbreytni landsins. Við mannfólkið nýtum okkur einnig mýrar þó við séum ekki jafn sérhæfð og jaðrakaninn hér að ofan. Til að mynda virkar votlendi sem svampur sem getur tekið við miklu vatni í vætutíð og flóðum en viðhaldið afrennsli þegar þurrkar geisa. Þar að auki síast vatn við það að renna um votlendisjarðveg. Þannig vernda mýrar til dæmis bæði vatnsból og fiskveiðiár fyrir áföllum. Heilbrigð votlendi binda mikið magn kolefnis í jarðvegi, sem er mikilvægur orku- og næringarforði. Til marks um þetta má nefna að kolefnið sem grafið er úr jörðu í dag varð til úr plöntuleyfum sem söfnuðust upp í mýrum fortíðar. Framræst votlendi er því verðmætt og frjósamt landbúnaðarland þar sem unnt er að nýta uppsöfnuð næringarefni. En framræst land sem ekki er nytjað losar kolefni mýrarinnar út í andrúmsloftið og orka og næringarefni tapast án þess að því fylgi nokkur ávinningur. Þekking er undirstaða bæði verndar og sjálfbærrar nýtingar votlendis. Hjá Landi og skógi er lögð áhersla á að kortleggja og vakta stöðu votlendis á Íslandi, eðli þess, tækifæri og ógnir. Þessi þekking nýtist meðal annars við árangursmat endurheimtar- og verndaraðgerða, skipulagsgerð og ákvarðanatöku, og í nákvæmu loftslagsbókhaldi Íslands. Rannsóknir, vöktun og árangursmat eru lykillinn að sjálfbærri landnýtingu. Við, líkt og jaðrakan, eigum mikið undir heilbrigðum mýrum. Vatn, loftslag og lífríki. Nýtum þær af ábyrgð, verndum þær sem enn eru ósnortnar og endurheimtum votlendi þar sem því verður við komið. Höfundur er vistfræðingur hjá Landi og skógi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skógrækt og landgræðsla Umhverfismál Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar