Seinka sýningum fyrir leikinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. janúar 2026 18:06 Borgarleikhúsið Vísir/Vilhelm Borgarleikhúsið hefur ákveðið að seinka öllum leiksýningum um korter á morgun svo leikhúsgestir geti horft á fyrri helming af leik Íslands í undanúrslitunum á EM í handbolta.
Hlynur Páll Pálsson, samskiptastjóri Borgarleikhússins, segir breytinguna ekki vera til komna vegna fjölda fyrirspurna um að breyta miðum heldur einungis til að koma til móts við gesti. „Svo ætlum við að sýna frá leiknum frammi í forsal,“ segir Hlynur. Til stendur að sýna Moulin Rouge og Niflungahringinn auk þess sem Ekki hugmynd verður frumsýnt. „Það eru örugglega margir sem hefðu viljað sleppa því að fara í leikhús en það er ekki hægt að sleppa því að fara í leikhús.“ Leikhúsgestir fengu sendan tölvupóst þess efnis að hægt verði að fylgjast með fyrri hálfleiknum í forsal leikhússins. Gera eigi ráð fyrir að sýningar hefjist 20:15. Þá hefur tónleikum Moses Hightower einnig verið seinkað. Engin seinkun hjá Þjóðleikhúsinu Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri segir að nokkrir hafi haft samband við leikhúsið í þeirri von um að færa miðann yfir á annan dag. „Það hefur verið eitthvað um óskir um að breyta miðunum, bæði hjá okkur og annars staðar. Leikhúsin hafa á undanförnum árum verið að bæta þjónustuna með því að rýmka möguleika á að breyta miðanum eftir að þeir eru keyptir,“ segir Magnús. Hins vegar segja miðsöluskilmálar leikhúsanna að ekki sé hægt að breyta miðanum seinna en tveimur sólarhringum fyrir sýninguna. „Þetta helgast af því að það er búið að leggja mikinn kostnað í þessar sýningar og boða fólkið. Ef leikhúsgestir gætu verið að breyta miðunum fram á síðustu stundu yrðu leikhúsin fyrir miklu tekjufalli.“ Þau stefna ekki á að seinka sýningunum líkt og Borgarleikhúsið. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um neitt slíkt.“ Karlalandslið Íslands í handbolta á leik á móti liði Danmerkur klukkan 19:30 annað kvöld í undanúrslitum á EM.
Leikhús EM karla í handbolta 2026 Borgarleikhúsið Þjóðleikhúsið Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira