Sport

Dæmd í bann fyrir að veðja á frjálsar í­þróttir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aurore Fleury græddi meira en sjö hundruð þúsund krónur á veðmáli sínu en var seinna dæmd í bann og til þess að greiða stóra sekt.
Aurore Fleury græddi meira en sjö hundruð þúsund krónur á veðmáli sínu en var seinna dæmd í bann og til þess að greiða stóra sekt. @aurfleury

Eftirlitsstofnun alþjóðafrjálsíþróttasambandsins (AIU) hefur refsað þremur evrópskum frjálsíþróttamönnum fyrir að veðja á eigin íþrótt.

Þetta eru þýsku kringlukastararnir Henrik Janssen (27 ára) og Steven Richter (22 ára) og franski millivegalengdahlauparinn Aurore Fleury (32 ára). Með því að veðja á frjálsar íþróttir brutu þau siðareglur Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins.

AIU sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem lögð var áhersla á algjört umburðarleysi gagnvart hvers kyns veðmálum sem tengjast íþróttinni.

Sögðust ekki vita af banninu

Enginn íþróttamannanna veðjaði á greinar sem þeir kepptu í sjálfir né hagræddu úrslitum. Þau halda öll þrjú því fram að þau hafi ekki vitað af banninu við að veðja á eigin íþrótt.

Samkvæmt siðareglum Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins brjóta veðmál af hvaða tagi sem er á mótum sambandsins í bága við reglu 10.6 og grafa undan heilindum íþróttarinnar. Þetta eru fyrstu opinberu refsiaðgerðir AIU fyrir veðmálabrot í frjálsum íþróttum.

Þjóðverjinn Henrik Janssen beðjaði á greinar á heimsmeistaramótinu í Tókýó 2025, þar á meðal á liðsfélaga sinn. Hann viðurkenndi að hafa lagt undir þrisvar sinnum, samtals 100 evrur. 

Janssen kvaðst ekki hafa vitað af reglunni fyrr en liðsfélagi sagði honum frá henni. Reyndi hann þá að afturkalla veðmálin og veðjaði ekki frekar eftir að hafa komist að því að það væri bannað. Hann samþykkti 3 mánaða bann, afturvirkt til september 2025, sem þýðir að það er nú útrunnið.

Þjóðverjinn Steven Richter lagði undir í gegnum eigin aðgang í farsímaforriti í æfingabúðum fyrir meistaramótið. Hann veðjaði fjörutíu evrum en ekkert benti til innherjaupplýsinga eða tilrauna til að hagræða úrslitum. 

Hann reyndi að afturkalla veðmálið eftir að hafa komist að því að það væri bannað og tilkynnti brotið til fulltrúa AIU í Tókýó. Richter samþykkti 3 mánaða bann, afturvirkt til september 2025, sem þýðir að það er nú útrunnið.

Græddi 727 þúsund krónur

Hin franska Aurore Fleury veðjaði á Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum 2024 í Róm.

Hún lagði undir tvö þúsund evrur og vann fimm þúsund evrur eða yfir 727 þúsund íslenskar krónur. Fleury samþykkti sex mánaða bann, afturvirkt til 1. september 2025, en hún var einnig sektuð um þrjú þúsund evrur sem hún á að gefa til góðgerðamála.

Öllum þremur íþróttamönnunum var einnig gert að ljúka netnámskeiði Alþjóðaólympíunefndarinnar um varnir gegn hagræðingu úrslita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×