Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2026 15:59 Ollie Watkins fagnar seinna marki Aston Villa sem innsiglaði sigurinn. Getty/George Wood Nottingham Forest og Aston Villa unnu bæði góða útisigra í ensku úrvalsdeildinni í dag. Villa-menn sóttu stigin þrjú norður til Newcastle en Forest-menn sóttu þrjú stig suður til London.
Aston Villa vann 2-0 sigur á Newcastle United á St. James' Park og komst þar með upp að hlið Manchester City í öðru sæti deildarinnar. Villa og City eru fjórum stigum á eftir toppliði Arsenal sem á síðan leik á móti Manchester United á eftir. Emiliano Buendia kom Villa í 1-0 á 19. mínútu með frábæru skoti, Villa-menn stóðust síðan stórsókn heimamanna áður en Ollie Watkins innsiglaði sigurinn á 88. mínútu. Þetta var fyrsti sigur liðsins á St. James' Park frá 2005 eða í næstum því 21 ár. Newcastle er í 9. sæti en þetta var fyrsta tapið á nýju ári og það fyrsta í fimm leikjum. Liðið var með mun hærra xG í leiknum og skapaði sér fleiri færi en það dugði ekki til. Villa-liðið komst aftur á sigurbraut eftir að hafa aðeins náð í eitt stig út úr síðustu tveimur deildarleikjum sínum. Nottingham Forest vann á sama tíma 2-0 útisigur á Brentford í London og er eftir það fimm stigum fyrir ofan fallsætið þar sem West Ham situr. Þetta var mikilvægur sigur því West Ham vann sinn annan leik í röð í gær. Igor Jesus skoraði fyrra mark Forest á 12. mínútu en Taiwo Awoniyi innsiglaði sigurinn á 79. mínútu. Brentford tapaði þarna öðrum leiknum í röð en liðið er í áttunda sæti eða í næsta sæti fyrir ofan Newcastle.
Enski boltinn Aston Villa FC Newcastle United Brentford FC Nottingham Forest Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Sjá meira