Grinch siglt til hafnar í Marseille Samúel Karl Ólason skrifar 23. janúar 2026 16:23 Franskur hermaður fyrir utan brú Grinch. AP/Etat-Major des Armees Franskir saksóknarar eru að rannsaka olíuflutningaskip sem stöðvað var á Miðjarðarhafinu í gær. Skipið, sem ber nafnið Grinch er talið tilheyra svokölluðum „skuggaflota“ sem notaður er til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Áhlaupið í gær var í fyrsta sinn Evrópuþjóð stöðvar skip á siglingu með þessum hætti og tekur stjórn á því.
Bandaríkjamenn hafa tekið að minnsta kosti sjö slík skip en það hefur í tengslum við herkví þeirra á Venesúela. Sjá einnig: Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Grinch var siglt frá Múrmansk í Rússlandi og telja saksóknarar það hafa verið notað til að flytja rússneska olíu, í trássi við refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Le Parisien segir að verið sé að sigla skipinu til hafnar í Marseille. Nú er til rannsóknar hvort áhöfn skipsins hafi reynt að hylma yfir hvaðan skipið kom. Frakkar birtu í dag myndband sem sýnir áhlaupið um borð í Grinch. Hundruð skipa tilheyra skuggaflotanum en þeim hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Flotinn er talinn hafa flutt um 3,7 milljarða tunna af olíu í fyrra eða um sex til sjö prósent af heildarmarkaði síðasta árs. Mörg skipanna eru orðin gömul og eru slys nokkuð tíð. Þá eru mörg skipanna einnig ótryggð. Samkvæmt alþjóðasamþykktum um skipaflutninga eiga skip að vera skráð í tilteknum ríkjum og bera fána þeirra. Skip eru þá bundin reglum og lögum þeirra ríkja þar sem þau eru skráð. Kerfið var þróað til að tryggja að flutningaskip séu tryggð og að komið sé vel fram við áhafnarmeðlimi. Svokölluð skuggaskip notast oft við fána fátækra smáríkja og í mörgum tilfellum í skiptum fyrir greiðslur til þessara ríkja.
Frakkland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Skipaflutningar Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Sjá meira