Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. janúar 2026 07:01 Kolbrún Baldursdóttir hefur ekki áhyggjur af fylgi Flokks fólksins. Vísir/Vilhelm Fylgi Flokks fólksins er ekki áhyggjuefni að mati þingmanns flokksins sem telur ekki víst að kjósendur flokksins svari skoðanakönnunum í gegnum vefinn. Hún segist stolt af verkum flokksins og minnir á að stutt er liðið á kjörtímabilið.
Greint var frá því í gær að Flokkur fólksins mælist annan mánuðinn í röð utan þings í könnun Maskínu. Ríkisstjórnarflokkurinn mælist nú með 4,3 prósenta fylgi en mældist fyrir mánuði síðan með 4,8 prósent. Þar áður var flokkurinn með 5,6 prósenta fylgi í nóvember. Kolbrún Baldursdóttir þingmaður flokksins telur tíðindin ekki áhyggjuefni. Klippa: Hefur ekki áhyggjur af fylgi Flokks fólksins Ekki nýtt fyrir flokkinn „Þetta eru náttúrulega búnar að vera svona tölur að undanförnu en við höfum engar áhyggjur af þessu, þetta er ekkert nýtt fyrir okkur í Flokki fólksins að mælast lágt en síðan vitum við bara þegar uppi er staðið hver útkoman er og hefur verið,“ segir Kolbrún. Hefur þetta engin áhrif á ykkar störf í ríkisstjórninni, þú hefur engar áhyggjur af þessum tölum? „Nei, akkúrat ekki neinar. Það sem við erum að sjá eru mjög öflugir ráðherrar og formaðurinn hefur verið mjög öflugur og er að skila frábæru verki og aðrir ráðherrar líka. Það hafa náttúrulega verið þarna skipti en þarna eru eins og Eyjólfur Ármannsson ráðherra að gera góða hluti. Hér er bara verið að vinna á fullu og þessi flokkur hefur bara ótrúlega mikla seiglu og úthald og samstarfið í ríkisstjórnarflokkunum er bara algjörlega frábært.“ Langt í næstu kosningar Þið eruð stolt af ykkar verkum en fylgið heldur áfram að mælast svona, þið náið ekki inn á þing miðað við núverandi kannanir, hvað heldurðu að valdi því? „Sko, margir í Flokki fólksins eru kannski ekkert endilega fyrir framan tölvuna alla daga. Þetta er auðvitað, eins og þú veist, okkar hópur er kannski frekar eldri en yngri,“ segir Kolbrún. Fylgistölur hafi gjarnan sýnt flokkinn með minna fylgi en þegar á hólminn er komið. „Og nú eru þrjú ár í næstu kosningar. Þannig að ef að maður ætti að hafa miklar áhyggjur á þessari stundu um að eitthvað væri virkilega að fara niður á við, þá held ég að við myndum nú ekki gera mikið annað en að hafa þær áhyggjur. En við erum hvergi þar og mér finnst allir mjög slakir í mínum flokki og í kringum mig og við erum sjaldan að spekúlera í þessu. En síðan sjáum við bara til hvernig fram líður og hvað kemur næst fram í þessum könnunum.“
Skoðanakannanir Flokkur fólksins Alþingi Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira