Segir Napoli ekki nógu gott fyrir sextán liða úrslit Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. janúar 2026 11:00 Antonio Conte var niðurlútur á blaðamannafundi eftir leikinn í gær. Kristian Tuxen Ladegaard Berg/NurPhoto via Getty Images Antonio Conte skilur ekkert í því hvernig Napoli gat gert jafntefli við FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í gærkvöldi, eftir að hafa verið marki yfir og manni fleiri. Hann segir liðið ekki vera á því getustigi sem þarf til að komast í sextán liða úrslit.
Allt virtist vera að ganga upp fyrir Napoli þegar flautað var til hálfleiks. Thomas Delaney var rekinn af velli með rautt spjald og Scott McTominay tók forystuna fyrir Napoli skömmu síðar. Tíu leikmönnum FCK tókst hins vegar að taka völdin í seinni hálfleik og tryggja sér jafntefli, þökk sé marki Jordan Larsson. Klippa: FC Kaupmannahöfn - Napoli 1-1 „Þetta fannst mér sárt og þetta ætti að særa leikmenn líka. Við eigum að vera mjög reiðir út í okkur sjálfa. Leikurinn spilaðist fullkomnlega fyrir okkur, til að tryggja sigurinn og sæti í umspilinu. Við getum örugglega fundið þúsund afsakanir en þetta gekk bara ekki upp og við gátum ekki unnið í þessum kringumstæðum“ sagði Conte eftir leikinn. „Þetta var fjórði leikurinn í röð þar sem liðið sýnir veikleikamerki. Við vorum alveg við stjórn, ellefu á móti tíu, þannig að þó við söknum tíu leikmanna og séum þreyttir þá eigum við að vinna svona leiki“ hélt Conte áfram en Napoli hefur gert fjögur jafntefli í síðustu fimm leikjum. Ítalíumeistararnir eru nú í þeirri stöðu að þurfa helst að vinna Chelsea á heimavelli í næstu umferð til að tryggja sér sæti í umspilinu um að komast í sextán liða úrslit. Conte gaf hins vegar í skyn að liðið væri ekki nógu gott til að komast þangað. „Vonbrigðin eru svo mikil því við náðum ekki markmiðinu okkar í [gær]kvöld, en það sýnir bara að við erum ekki að spila á því getustigi sem þarf í þessu móti. Það er ekki mikið meira hægt að segja, við eigum að vera reiðir við okkur sjálfa því þetta var gullið tækifæri, en kannski skildum við ekki alveg hvað var undir.“
Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira