Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Kjartan Kjartansson skrifar 19. janúar 2026 10:47 Kjósendur Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra voru flestir skoðanalausir um ákvörðun hans um að slá Fjarðarheiðargöngum á frest. Rúmur helmingur sagðist hvorki óánægður né ánægður. Fleiri voru þó óánægðir en ánægðir. Vísir/Anton Brink Tæplega fjörutíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast óánægð með ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fresta Fjarðarheiðargöngum, um tvöfalt fleiri en eru ánægðir. Flestir hafa þó enga skoðun á frestuninni.
Eyjólfur Ármannsson, samgönguráðherra, ákvað að fresta Fjarðarheiðargöngum í samgönguáætlun í haust og setja í staðinn Fjarðagöng í forgang. Ákvörðunin mæltist afar illa fyrir hjá Seyðfirðingum sem vildu frekar tengingu við Egilsstaði en Norðfjörð. Af þeim sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Prósents um ákvörðunina sögðust 42 prósent hvorki ánægð né óánægð. Óánægð voru 39 prósent en nítján prósent sögðust ánægð. Marktækt fleiri landsbyggðarbúar voru óánægðir með ákvörðunina en höfuðborgarbúar. Á landsbyggðinni sögðust 44 prósent óánægð en 36 prósent á höfuðborgarsvæðinu. Um fimmtungur sagðist ánægður á báðum svæðum. Þá var mikill munur á ánægju fólks með ákvörðunina eftir aldri. Aðeins fimm prósent í yngsta aldurshópnum, 18 ti 24 ára sögðust ánægð með að jarðgögnunum hefði verið frestað, en þriðjungur í elsta aldurshópnum, 65 ára og eldri. Óánægðir með eigin ákvörðun Fleiri voru óánægðir en ánægðir með ákvörðunina á meðal stuðningsmanna allra flokka á Alþingi, jafnvel ríkisstjórnarflokkanna sem tóku hana. Mesta ánægjan reyndist á meðal kjósenda Samfylkingarinnar og Viðreisnar þar sem fjórðungur og rúmlega fimmtungur studdu ákvörðunina. Þriðjungur stuðningsmanna flokkanna sögðust þó óánægðir. Hjá kjósendum Flokks fólksins, flokks Eyjólfs ráðherra, sagðist innan við fimmtungur ánægður en 28 prósent óánægður. Hlutfall þeirra sem sögðust hvorki óánægðir né ánægðir var langhæst hjá Flokki fólksins, 54 prósent. Mesta óánægjan með frestunina var á meðal kjósenda Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins, 54 og 45 prósent. Á meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins og annarra flokka sem innan við fimm prósent svarenda sögðust styðja sagðist fimmtungur ánægður með ákvörðun ríkisstjórnarinnar en rúm fjörutíu prósent óánægð.
Samgöngur Samgönguáætlun Múlaþing Skoðanakannanir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira