Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Aron Guðmundsson skrifar 18. janúar 2026 19:58 Leikmenn færeyska landsliðsins fagna með sínu fólki í Osló í kvöld eftir sigurinn á Svartfellingum. Engu líkara er en að öll færeyska þjóðin sé mætt til Noregs miðað við stemninguna þar. Vísir/EPA Orð á borð við „töfrandi“ og „einstakt“ eru mikið notuð núna í tengslum við sögulegan sigur færeyska karlalandsliðsins í handbolta á EM í kvöld.
Færeyjar unnu sinn fyrsta sigur á stórmóti í handbolta í kvöld þegar að liðið valtaði yfir Svartfjallaland í D-riðli EM. Lokatölur 24-37 og von Færeyja um sæti í milliriðlum lifir. Sigurinn er sá fyrsti í stórmótasögu Færeyja og jafnframt eru Færeyjar nú fámennasta þjóðin til þess að vinna leik á stórmóti í handbolta. Íbúafjöldinn í Færeyjum er í kringum 56 þúsund manns en fyrir sigur kvöldsins voru það Grænlendingar sem áttu metið, landslið Grænlands í handbolta vann leik á HM 2021 en þá var íbúafjöldi landsins um 57 þúsund manns. Montenegro 24-37 Fairytale Islands🇫🇴The Faroe Islands become the smallest nation ever (measured per capita) to win a match in a major handball championship for men (European Championship, World Championship, Olympics) in the history:🆕Faroe Islands EC 2026 = 56.000🆕… pic.twitter.com/CilKNRNxmq— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) January 18, 2026 „Þetta verður ekki betra en akkúrat svona,“ sagði Óli Mittún, lykilleikmaður færeyska landsliðsins í viðtali hjá Viaplay eftir sigurinn sögulega í dag en sérfræðingar streymisveitunnar áttu vart orð yfir árangri þessarar fámennu þjóðar. „Það er engu líkara en að öll færeyska þjóðin sé hér í Noregi,“ sagði Daniel Höglund, sérfræðingur Viaplay og kollegi hans Kristian Kjelling, fyrrverandi landsliðsmaður Noregs, tók í svipaðan streng. 🇫🇴 HISTORY. 😍💫#ehfeuro2026 #puregreatness #handball pic.twitter.com/w9pTm9wiDk— EHF EURO (@EHFEURO) January 18, 2026 „Þetta er töfrum líkast,“ sagði hann og höfðu viðstaddir aldrei upplifað annað eins. „Þetta er algjörlega einstakt,“ sagði Ole Erevik, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Norðmanna og sérfræðingur Viaplay. The Faroe Islands won their first-ever win at the EHF EURO 🇫🇴😍👏#ehfeuro2026 #puregreatness #handball pic.twitter.com/4h5gVSjSEg— EHF EURO (@EHFEURO) January 18, 2026
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Færeyjar Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Sjá meira