Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. janúar 2026 15:57 Stjórn FAB segir ekkert athugavert við fundinn þar sem ákveðið var að lýsa yfir vanhæfi á rektor skólans. vísir/vilhelm Stjórn Félags akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) segir að stjórnendur bifrastar, þar með talið rektor, byggi á því fyrir stjórn skólans að ekki hafi verið staðið rétt að málunum á fundi félagsins á miðvikudag þegar vantrausti var lýst yfir á yfirstjórn skólans. FAB segir ekkert til í þeim málflutningi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn félagsins. Þar segir meðal annars: „Stjórn félagsins bárust upplýsingar um það að stjórnendur Háskólans á Bifröst byggi nú á því að eitthvað hafi verið athugavert við framkvæmd félagsfundarins og að stjórn sé ekki fullmönnuð og félagið þ.a.l. ekki starfhæft. Ekkert er hæft í þessum vangaveltum. Hér er auk þess augljóslega á ferðinni tilraun til þess að beina athyglinni frá aðalatriði málsins sem eru efnisatriði ályktunar félagsmanna og sú staðreynd að málarekstur rektors, deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra gegn þremur félagsmönnum FAB hefur valdið þeim alvarlega trúnaðarbresti sem lýst var í ályktuninni.“ Greint var frá því í vikunni að Félag akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) hafi lýst yfir vantrausti á Margréti Jónsdóttir Njarðvík, rektor skólans, yfirmann viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra Bifrastar. Það kom í kjölfar þess að yfirstjórn skólans nýtti gervigreindarlíkanið Claude til að meta það hvort þrír starfsmenn skólans hefðu verið réttilega skráðir meðhöfundar tveggja fræðigreina. Í gögnum málsins kemur fram að persónugreinanlegum og höfundarréttarvörðu efni hafi verið hlaðið upp í mállíkanið. Þar kemur einnig fram að rektor hafi óskað eftir því við siðanefnd skólans að starfsmennirnir þrír yrðu ekki látnir vita að mál þeirra væri til skoðunar. Siðanefnd hafnaði því á grundvelli meginreglna stjórnsýsluréttar. Rektor Bifrastar hefur ekki gefið kost á viðtali vegna málsins. Hanna Kristín Skaftadóttir, lektor við Háskólann á Bifröst, er ein þeirra sem eiga hlut að máli en hún tjáði sig í yfirlýsingu í gær. Þess ber að geta að Hanna Kristín er jafnframt formaður FAB en hún tók við formennsku á föstudag. Umrætt mál er nú til skoðunar hjá Siðanefnd Bifrastar, stjórn skólans og Persónuvernd. „Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa meðal annars brugðist við ályktuninni með því að halda því fram að félagsfundurinn hafi verið ómarktækur eða ólögmætur. Að gefnu tilefni er því rétt að halda eftirfarandi staðreyndum til haga,“ segir í yfirlýsingu FAB. Þar er ítrekað að félagið hafi verið sett á laggirnar í apríl árið 2025 til að standa vörð um réttindi félagsmanna, vinna að bættri starfsaðstöðu félagsmanna og hafa aðkomu að skipulagsbreytingum. Aðeins akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst sem eru fastráðnir kennarar og eiga sæti á deildarfundum skólans geta tilheyrt FAB. Félagsmenn eru 27 talsins en sautján félagsmenn sóttu fundinn þar sem greidd voru atkvæði varðandi yfirlýsingu um vantraust. Sextán greiddu atkvæði með yfirlýsingunni. „Á fundinum las fundarstjóri upp drög að ályktun sem var í kjölfarið samþykkt af yfirgnæfandi meirihluta félagsmanna. Samkvæmt samþykktum félagsins ræður einfaldur meirihluti mættra félagsmanna úrslitum mála á félagsfundum. Þá lá fyrir fundinum ósk þriggja stjórnarmanna að ganga úr stjórn. Í lok fundarins var stjórn skipuð þremur stjórnarmönnum og voru tveir stjórnarmenn félagsvísindadeildar tilnefndir í stjórn félagsins á deildarfundi deildarinnar daginn eftir. Stjórn félagsins er því fullskipuð og er hún skipuð tveimur fulltrúum úr viðskiptadeild, tveimur fulltrúum úr félagsvísindadeild og einum fulltrúa úr lagadeild.“ Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan: Nokkur umræða fer nú fram á opinberum vettvangi um ályktun FAB frá því á félagsfundi félagsins þann 14. janúar sl. Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa meðal annars brugðist við ályktuninni með því að halda því fram að félagsfundurinn hafi verið ómarktækur eða ólögmætur. Að gefnu tilefni er því rétt að halda eftirfarandi staðreyndum til haga. Félagið var sett á laggirnar í apríl 2025 í þeim tilgangi að standa vörð um réttindi félagsmanna, vinna að bættri starfsaðstöðu félagsmanna og hafa aðkomu að meiriháttar skipulagsbreytingum á starfi skólans. Samkvæmt samþykktum félagsins sem samþykktar voru á stofnfundi þess geta þeir einir orðið félagsmenn í FAB sem eru akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst og eru fastráðnir kennarar, sem eiga sæti á deildarfundum og semja um starfsáætlanir við deildarforseta. Félagsmenn í FAB eru 27 talsins. Stjórn félagsins boðaði til félagsfundarins 14. janúar sl. með fundarboði í samræmi við samþykktir félagsins. Á fundinum fór fram ítarleg umræða um aðdraganda þess að þrír félagsmenn í félaginu voru tilkynntir til siðanefndar Háskólans á Bifröst af rektor. Þá fór fram ítarleg umræða um forsendur rektors, sem má meðal annars finna í minnisblöðum sem send voru siðanefnd, og um sjónarmið starfsmannanna þriggja, sem má meðal annars finna í ítarlegum greinargerðum lögmanns þeirra til siðanefndar. Á fundinum las fundarstjóri upp drög að ályktun sem var í kjölfarið samþykkt af yfirgnævandi meirihluta félagsmanna. Samkvæmt samþykktum félagsins ræður einfaldur meirihluti mættra félagsmanna úrslitum mála á félagsfundum. Þá lá fyrir fundinum ósk þriggja stjórnarmanna að ganga úr stjórn. Í lok fundarins var stjórn skipuð þremur stjórnarmönnum og voru tveir stjórnarmenn félagsvísindadeildar tilnefndir í stjórn félagsins á deildarfundi deildarinnar daginn eftir. Stjórn félagsins er því fullskipuð og er hún skipuð tveimur fulltrúum úr viðskiptadeild, tveimur fulltrúum úr félagsvísindadeild og einum fulltrúa úr lagadeild. Stjórn félagsins bárust upplýsingar um það að stjórnendur Háskólans á Bifröst byggi nú á því að eitthvað hafi verið athugavert við framkvæmd félagsfundarins og að stjórn sé ekki fullmönnuð og félagið þ.a.l. ekki starfhæft. Ekkert er hæft í þessum vangaveltum. Hér er auk þess augljóslega á ferðinni tilraun til þess að beina athyglinni frá aðalatriði málsins sem eru efnisatriði ályktunar félagsmanna og sú staðreynd að málarekstur rektors, deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra gegn þremur félagsmönnum FAB hefur valdið þeim alvarlega trúnaðarbresti sem lýst var í ályktuninni. Skóla- og menntamál Gervigreind Höfundar- og hugverkaréttur Háskólar Deilur í Háskólanum á Bifröst Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn félagsins. Þar segir meðal annars: „Stjórn félagsins bárust upplýsingar um það að stjórnendur Háskólans á Bifröst byggi nú á því að eitthvað hafi verið athugavert við framkvæmd félagsfundarins og að stjórn sé ekki fullmönnuð og félagið þ.a.l. ekki starfhæft. Ekkert er hæft í þessum vangaveltum. Hér er auk þess augljóslega á ferðinni tilraun til þess að beina athyglinni frá aðalatriði málsins sem eru efnisatriði ályktunar félagsmanna og sú staðreynd að málarekstur rektors, deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra gegn þremur félagsmönnum FAB hefur valdið þeim alvarlega trúnaðarbresti sem lýst var í ályktuninni.“ Greint var frá því í vikunni að Félag akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) hafi lýst yfir vantrausti á Margréti Jónsdóttir Njarðvík, rektor skólans, yfirmann viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra Bifrastar. Það kom í kjölfar þess að yfirstjórn skólans nýtti gervigreindarlíkanið Claude til að meta það hvort þrír starfsmenn skólans hefðu verið réttilega skráðir meðhöfundar tveggja fræðigreina. Í gögnum málsins kemur fram að persónugreinanlegum og höfundarréttarvörðu efni hafi verið hlaðið upp í mállíkanið. Þar kemur einnig fram að rektor hafi óskað eftir því við siðanefnd skólans að starfsmennirnir þrír yrðu ekki látnir vita að mál þeirra væri til skoðunar. Siðanefnd hafnaði því á grundvelli meginreglna stjórnsýsluréttar. Rektor Bifrastar hefur ekki gefið kost á viðtali vegna málsins. Hanna Kristín Skaftadóttir, lektor við Háskólann á Bifröst, er ein þeirra sem eiga hlut að máli en hún tjáði sig í yfirlýsingu í gær. Þess ber að geta að Hanna Kristín er jafnframt formaður FAB en hún tók við formennsku á föstudag. Umrætt mál er nú til skoðunar hjá Siðanefnd Bifrastar, stjórn skólans og Persónuvernd. „Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa meðal annars brugðist við ályktuninni með því að halda því fram að félagsfundurinn hafi verið ómarktækur eða ólögmætur. Að gefnu tilefni er því rétt að halda eftirfarandi staðreyndum til haga,“ segir í yfirlýsingu FAB. Þar er ítrekað að félagið hafi verið sett á laggirnar í apríl árið 2025 til að standa vörð um réttindi félagsmanna, vinna að bættri starfsaðstöðu félagsmanna og hafa aðkomu að skipulagsbreytingum. Aðeins akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst sem eru fastráðnir kennarar og eiga sæti á deildarfundum skólans geta tilheyrt FAB. Félagsmenn eru 27 talsins en sautján félagsmenn sóttu fundinn þar sem greidd voru atkvæði varðandi yfirlýsingu um vantraust. Sextán greiddu atkvæði með yfirlýsingunni. „Á fundinum las fundarstjóri upp drög að ályktun sem var í kjölfarið samþykkt af yfirgnæfandi meirihluta félagsmanna. Samkvæmt samþykktum félagsins ræður einfaldur meirihluti mættra félagsmanna úrslitum mála á félagsfundum. Þá lá fyrir fundinum ósk þriggja stjórnarmanna að ganga úr stjórn. Í lok fundarins var stjórn skipuð þremur stjórnarmönnum og voru tveir stjórnarmenn félagsvísindadeildar tilnefndir í stjórn félagsins á deildarfundi deildarinnar daginn eftir. Stjórn félagsins er því fullskipuð og er hún skipuð tveimur fulltrúum úr viðskiptadeild, tveimur fulltrúum úr félagsvísindadeild og einum fulltrúa úr lagadeild.“ Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan: Nokkur umræða fer nú fram á opinberum vettvangi um ályktun FAB frá því á félagsfundi félagsins þann 14. janúar sl. Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa meðal annars brugðist við ályktuninni með því að halda því fram að félagsfundurinn hafi verið ómarktækur eða ólögmætur. Að gefnu tilefni er því rétt að halda eftirfarandi staðreyndum til haga. Félagið var sett á laggirnar í apríl 2025 í þeim tilgangi að standa vörð um réttindi félagsmanna, vinna að bættri starfsaðstöðu félagsmanna og hafa aðkomu að meiriháttar skipulagsbreytingum á starfi skólans. Samkvæmt samþykktum félagsins sem samþykktar voru á stofnfundi þess geta þeir einir orðið félagsmenn í FAB sem eru akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst og eru fastráðnir kennarar, sem eiga sæti á deildarfundum og semja um starfsáætlanir við deildarforseta. Félagsmenn í FAB eru 27 talsins. Stjórn félagsins boðaði til félagsfundarins 14. janúar sl. með fundarboði í samræmi við samþykktir félagsins. Á fundinum fór fram ítarleg umræða um aðdraganda þess að þrír félagsmenn í félaginu voru tilkynntir til siðanefndar Háskólans á Bifröst af rektor. Þá fór fram ítarleg umræða um forsendur rektors, sem má meðal annars finna í minnisblöðum sem send voru siðanefnd, og um sjónarmið starfsmannanna þriggja, sem má meðal annars finna í ítarlegum greinargerðum lögmanns þeirra til siðanefndar. Á fundinum las fundarstjóri upp drög að ályktun sem var í kjölfarið samþykkt af yfirgnævandi meirihluta félagsmanna. Samkvæmt samþykktum félagsins ræður einfaldur meirihluti mættra félagsmanna úrslitum mála á félagsfundum. Þá lá fyrir fundinum ósk þriggja stjórnarmanna að ganga úr stjórn. Í lok fundarins var stjórn skipuð þremur stjórnarmönnum og voru tveir stjórnarmenn félagsvísindadeildar tilnefndir í stjórn félagsins á deildarfundi deildarinnar daginn eftir. Stjórn félagsins er því fullskipuð og er hún skipuð tveimur fulltrúum úr viðskiptadeild, tveimur fulltrúum úr félagsvísindadeild og einum fulltrúa úr lagadeild. Stjórn félagsins bárust upplýsingar um það að stjórnendur Háskólans á Bifröst byggi nú á því að eitthvað hafi verið athugavert við framkvæmd félagsfundarins og að stjórn sé ekki fullmönnuð og félagið þ.a.l. ekki starfhæft. Ekkert er hæft í þessum vangaveltum. Hér er auk þess augljóslega á ferðinni tilraun til þess að beina athyglinni frá aðalatriði málsins sem eru efnisatriði ályktunar félagsmanna og sú staðreynd að málarekstur rektors, deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra gegn þremur félagsmönnum FAB hefur valdið þeim alvarlega trúnaðarbresti sem lýst var í ályktuninni.
Nokkur umræða fer nú fram á opinberum vettvangi um ályktun FAB frá því á félagsfundi félagsins þann 14. janúar sl. Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa meðal annars brugðist við ályktuninni með því að halda því fram að félagsfundurinn hafi verið ómarktækur eða ólögmætur. Að gefnu tilefni er því rétt að halda eftirfarandi staðreyndum til haga. Félagið var sett á laggirnar í apríl 2025 í þeim tilgangi að standa vörð um réttindi félagsmanna, vinna að bættri starfsaðstöðu félagsmanna og hafa aðkomu að meiriháttar skipulagsbreytingum á starfi skólans. Samkvæmt samþykktum félagsins sem samþykktar voru á stofnfundi þess geta þeir einir orðið félagsmenn í FAB sem eru akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst og eru fastráðnir kennarar, sem eiga sæti á deildarfundum og semja um starfsáætlanir við deildarforseta. Félagsmenn í FAB eru 27 talsins. Stjórn félagsins boðaði til félagsfundarins 14. janúar sl. með fundarboði í samræmi við samþykktir félagsins. Á fundinum fór fram ítarleg umræða um aðdraganda þess að þrír félagsmenn í félaginu voru tilkynntir til siðanefndar Háskólans á Bifröst af rektor. Þá fór fram ítarleg umræða um forsendur rektors, sem má meðal annars finna í minnisblöðum sem send voru siðanefnd, og um sjónarmið starfsmannanna þriggja, sem má meðal annars finna í ítarlegum greinargerðum lögmanns þeirra til siðanefndar. Á fundinum las fundarstjóri upp drög að ályktun sem var í kjölfarið samþykkt af yfirgnævandi meirihluta félagsmanna. Samkvæmt samþykktum félagsins ræður einfaldur meirihluti mættra félagsmanna úrslitum mála á félagsfundum. Þá lá fyrir fundinum ósk þriggja stjórnarmanna að ganga úr stjórn. Í lok fundarins var stjórn skipuð þremur stjórnarmönnum og voru tveir stjórnarmenn félagsvísindadeildar tilnefndir í stjórn félagsins á deildarfundi deildarinnar daginn eftir. Stjórn félagsins er því fullskipuð og er hún skipuð tveimur fulltrúum úr viðskiptadeild, tveimur fulltrúum úr félagsvísindadeild og einum fulltrúa úr lagadeild. Stjórn félagsins bárust upplýsingar um það að stjórnendur Háskólans á Bifröst byggi nú á því að eitthvað hafi verið athugavert við framkvæmd félagsfundarins og að stjórn sé ekki fullmönnuð og félagið þ.a.l. ekki starfhæft. Ekkert er hæft í þessum vangaveltum. Hér er auk þess augljóslega á ferðinni tilraun til þess að beina athyglinni frá aðalatriði málsins sem eru efnisatriði ályktunar félagsmanna og sú staðreynd að málarekstur rektors, deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra gegn þremur félagsmönnum FAB hefur valdið þeim alvarlega trúnaðarbresti sem lýst var í ályktuninni.
Skóla- og menntamál Gervigreind Höfundar- og hugverkaréttur Háskólar Deilur í Háskólanum á Bifröst Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira